Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Side 27
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
27
bura er tvímælalaust hjúkrunarliðið, sem smitar þá með höndum
sínum og úða frá öndunarvegum.
Beta hæmolytiskur streptococcus af grúppu B er mjög sjaldan
sjúkdómavaldur fyrir eldri aldursflokka, en talið er, að hann sé
til staðar í vagina a.m.k. 10% kvenna.5Á síðustu árum hafa menn
í auknum mæli veitt athygli lífshættulegum sýkingum i nýburum
af völdum þessara baktería. í mörgum tilfellum og jafnframt
þeim hættulegustu virðist svo sem nýburi smitist á leið sinni í
gegnum fæðingarveginn. Þessi baktería reynist hinn mesti vágest-
ur, einkum ef hún nær að valda heilahimnubólgu.
Pseudomonas pyocyaneus er hinn frægi „water bug”, sem lifir
og margfaldast í raka. Til nýburans kemst sú baktería einmitt frá
rakatækjum og öðrum áhöldum, sem legu sinnar vegna eru
umlukt raka, svo sem barkaslöngum.
Listeria monocytogenes lifir oft i chroniskum leghálssárum og
getur smitað nýburann í fæðingunni. Mér vitanlega hefur slík sýk-
ing ekki fundist hér á landi ennþá.
Á síðustu árum er talið að veruleg aukning hafi orðið á lekanda
og sárasótt hjá hinum svokölluðu siðmenntuðu þjóðfélögum. Því
ber að virða þær tilraunir, sem gerðar eru til að fyrirbyggja sýk-
ingar þessar hjá nýburum með því að leita að sárasótt hjá
þunguðum konum og dreypa auga allra nýbura með silfurnitrati.
Aðrar bakteríur en ofantaldar eru mun sjaldgæfari og sýkingar
af þeirra völdum ekki teljandi frábrugðnar sýkingum hjá eldri ein-
staklingum. Oft er það svo, að nýburi er sterklega grunaður um
sepsis, enda þótt ekki takist að sanna það með ræktun. Bent hefur
verið á, að í þeim tilfellum sé oft um að ræða sýkingu af völdum
anerób baktería.6
Bacteriology
E. coli
Staph. aureus
B hemol. strep. Gr. B
Pseudomonas pyocyaneus
Listeria monocytogcnes
Neisseria gonorrhocae
TAFLA 1
TAFLA2
Anticipation
Maternal factors
Infection
P.R.O.M.*
I.D.M.**
Prcmaturitas
Posimalurilas