Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Síða 30
.10
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Apnea spells
Tachycardia
Tachypnea
E.S.R.
Swab from ear canal
Gastric aspirate
Radiograms
Temperature instability
Abdominal distension
Vomitting
Diarrhea
Oedema
Jaundice
Rannsóknir
Til greiningar bakteríusýkingar hjá nýburanum er ekki svo ýkja
mikla hjálp að fá frá rannsóknastofunni, utan þess sem næst með
ræktunum. Helstrar hjálpar er að vænta í gegnum eitthvert þeirra
atriða, sem nefnt er í töflu 4.
Flestir leggja mikið upp úr vinstri hneigð hvítra blóðkorna.
Fjöldi hvítra blóðkorna getur verið allt frá 8—30 þús., en
eiginlegur fjöldi stafkjarnafruma á ekki að vera meiri heldur en
16—1800 fyrstu vikuna.10
Blóðflögum fækkar og blóðsykur fellur hjá nýbura með bakter-
íusýkingu. Reynt hefur verið að nota fjölda blóðkorna í maga-
innihaldi og eyrnagöngum barns á fyrstu mínútunum eftir
fæðingu, en það hefur ekki reynzt haldgott til greiningar.
Nýlega var bent á gildi hækkaðs sökks, einkum ef rannsóknin
er endurtekin nokkrum sinnum og sýnt er fram á hækkandi
gildi.11
Sjálfsagt er að taka röntgenmyndir af lungum og kvið, ef hann
er þaninn.
Mænuvökva á einnig að taka til rannsóknar, þar eð meðferð
hinnar mögulegu sýkingar er mun hvatskeytlegri, ef um menin-
gitis er að ræða.