Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Page 36
36
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
Sólveig Þórðardóttir
Ijósmóóir.
Hugleiðing um
starfsréttindi
Ijósmæðra,
og slökunar—
námskeið
Engum sem vinnur að fæðingarhjálp í dag blandast hugur um
að slökunar- og fræðslunámskeið séu nauðsynlegur þáttur í
fæðingarhjálp. Frú Hulda Jensdóttir er brautryðjandi í þessum
efnum á íslandi, og á hún þakkir skilið fyrir skelegga baráttu þar
að lútandi. En þrátt fyrir að öllum sé ljós nauðsyn þessa þáttar í
mæðravernd, er því miður víða pottur brotinn í þessum efnum.
Óvíða utan Stór-Reykjavíkursvæðisins eiga konur kost á slíkum
námskeiðum. Því hlýtur að vakna sú spurning, hver sé orsök þess
að svo sé. Er það vegna þess að ljósmæður hafa ekki litið á það
sem sitt verksvið, eða vegna þess að þær hafa ekki tíma né
aðstæður til að vinna að því? Mér er nær að halda að hvort
tveggja komi til. Mjög svo breytt viðhorf innan heilbrigðisstétt-
anna, vegna örrar þróunar, bæði efnahags- og tæknilega, hefur
leitt til þess að nýjar stéttir hafa orðið til innan heilbrigðiskerfis-
ins, sem hefur aftur leitt til þess að hefðbundin störf innan stétta
t.d. hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, hafa lent í höndum ann-
arra stétta. Á þingi Alþjóðasambands ljósmæðra 1972 í Washing-
ton í Bandaríkjunum, var starfssvið ljósmæðra skilgreint þannig:
„Fæðingarhjálp, umönnun um meðgöngutímann, meðferð ung-
barna og mæðra eftir fæðingu, fjölskylduáætlanir og foreldra-
fræðsla.” Ef við lítum á þau störf, sem ljósmæðrum er ætlað eftir
samþykktinni, vantar nokkuð á að þau séu öll verksvið ljósmæðra