Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Side 41
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
41
4. Setning markmiðs sem þarf að nást.
a. samstundis
b. eftir nokkurn tíma
c. lokamarkmið
Meðhöndlun
5. Gera framkvæmdaráætlanir.
6. Framkvæmdin.
7. Mat árangurs.
8. Fylgja eftir áætlun og henni breytt ef ástæða þykir til.
Sjúkrasaga sú sem er notuð, miðast við nákvæmar upplýsingar,
sjúkrasögu, fjölskyldusögu, rannsóknir og fyrirmæli, ásamt
venjulegri skoðun og niðurstöðum hennar.
Þá koma dagsettar framvindunótur um hvert vandamál fyrir
sig, sem eru skilgreind á þennan hátt S.O.A.P., en S. stendur fyrir
subjectiv, O. objectiv (huglægar), A. assessment (mat), P. plan
(áætlun) en þá er reynt að samræma vilja sjúklings sjálfri
meðferðinni.
Nokkur reynsla er nú komin á notkun ferlisins, einkanlega
erlendis, þar sem það ryður sér til rúms. Sýnt hefur verið fram á
að ef það er notað ásamt betur menntuðu hjúkrunarfólki, leiði
það til þess að þeir „sjúklingar, sem hafa verið meðhöndlaðir eftir
því, koma fimm sinnum sjaldnar á sjúkrahús, en sjúklingar frá
öðrum deildum. Dvalartíminn hefur einnig stytst frá fjórum
vikum í þrjar vikur”.(l)
Hér á landi eru nokkrar deildir sem hafa komið þessu á. Einnig
hefur verið gerð tilraun með það á Heilsugæslustöðinni á Egils-
stöðum. Nokkuð snemmt er að skera úr um reynslu þess hér á
landi, þar eð það tekur tíma að tileinka sér ný vinnubrögð og
nýjan hugsunarhátt.
Helstu rökin gegn því að hagnýta ferlið hafa verið, að því fylgi
aukin skriffinnska, sem flestum þykir nóg fyrir, en ég tel að það sé
á nokkrum misskilningi byggt. Það er meðal annars miðað við að
skrá ekki nema það sem marktækt getur talist, en þess í stað fylgja
þeim þáttum betur eftir sem úrlausnar þurfi. Hver kannast ekki
við skriffinnsku á borð við þessa morgun eftir morgun: ,,Jón svaf