Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Page 45
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
45
Svarbréf frá Félagi
íslenskra kvensjúkdómalækna.
Ljósmæðrafélag íslands,
frú Steinunn Finnbogadóttir, formaður
8. febrúar 1980
Vegna bréfs yðar dagsett þann 4. febrúar 1980 og
fyrirspurnar Ljósmæðrafélags íslands um þörf ljós-
mæðra við mæðraskoðanir, óskar Félag islenskra
kvensjúkdómalækna að taka fram eftirfarandi:
Við lítum á mæðravernd og fæðingarhjálp sem tvær
hliðar á sama máli. Það er samdóma álit þeirra sem
fást við fæðingarhjálp að þáttur mæðraverndar vegi
meira í hinni miklu lækkun burðarmálsdauða, sem
orðið hefur seinustu 20 árin, en þær framfarir sem
orðið hafa í fæðingarhjálp.
Mæðravernd með öllum þeim fyrirbyggjandi ráðstöf-
unum, sem við verður komið, krefst í dag mikillar sér-
menntunar og reynslu. Góð mæðravernd fæst við náið
samstarf ljósmóður og fæðingarlækms. Þar getur
hvorugt án hins verið.
Vissulega ber að fagna aukinni menntun annarra
heilbrigðisstétta í fæðingarfræði, sem hluta af menntun
þeirra í almennri læknisfræði. Það er þó álit okkar að
slík skammtíma menntun nægi hvergi nærri til þess að
annast mæðravernd svo vel sé. A það skal bent að
ljósmæður framkvæma skoðanir og taka sjálfstæðar
ákvarðanir út frá eigin mati á ástandi sjúklings oft án
þess að læknir sé viðstaddur.
Félag íslenskra kvensjúkdómalækna telur það
algjöra forsendu góðrar mæðraverndar að hún sé að
verulegu leyti framkvæmd af Ijósmæðrum, sem hafa
fengið haldgóða menntun í nútíma fæðingarfræði. —