Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 9

Ljósmæðrablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 9 unar. Denver þroskascali er unninn og staðlaður samkvæmt þroska eðlilegra barna. Timasetning skoðana er valin samkvæmt eðlilegum þroskaferli. Ef barn útskrifast af sjúkrahúsinu alheil- brigt að þvi er virðist, er ákaflega ólíklegt að hægt sé að finna nokkuð í fari þess, sem bendir til taugakerfisskemmda, fyrr en barnið er orðið þriggja mánaða gamalt. Á næsta Vi árinu eða svo, gerist hins vegar geysilega margt i þroskaferli barns og Ieggjum við áherslu á þéttar skoðanir á þessum tíma. Heppilegast væri að greina öll hreyfihömluð börn á þessum tíma. Gróf heyrnarathugun fer nú fram á börnunum áður en þau út- skrifast af sjúkrahúsinu eftir fæðingu. 16 mánaða barn á að vera farið að ganga jafnvel þótt það sé svolítið seinþroska. Vægustu miðtaugakerfisskemmdir, sem við rekumst á eftir súrefnisskort við burðarmál, koma oft fram i skertri eða truflaðri taugastarf- semi í fótum. Það er því ágætur tími að skoða barn nokkru áður en það verður eins og hálfs árs, með tilliti til þess að leita að skemmdum. Tveggja ára barn á að vera byrjað á því að gera sig skiljanlegt með tali. Talkennarar telja hins vegar að ekki sé endilega sjúklegt þótt orðaforði og tal sé takmarkað á þeim tíma. Lokaorð í þessu stutta erindi hefur ekki verið gerð grein fyrir því, hvað verður um þá einstaklinga, sem finnast skemmdir eftir þessari leit, sem lýst hefur verið. Við höfum hins vegar haft samvinnu við sérfræðinga Grein- ingardeildar Öskjuhlíðarskóla varðandi uppbyggingu á þessu göngudeildareftirliti okkar, og með þeirra hjálp verður því komið svo fyrir að þessir einstaklingar, sem finnast skemmdir, fái bestu þjónustu og þjálfun, sem völ er á hér á landi. Til stóð i upphafi, og reyndar ennþá, að nánari athugun ýmissa sérfræðinga færi fram á barninu við tveggja ára aldurinn. Var ætlunin að sú athugun yrði á vegum Göngudeildar Öskjuhliðar- skóla.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.