Ljósmæðrablaðið - 01.12.1985, Síða 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
45
Einnig skal segja frá hreinsuninni og mögulegum stálma í
brjóstum. Ræða skal um getnaðarvarnir og benda konunni á að
ekki sé æskilegt að verða þunguð aftur fyrr en hún hefur náð sér
eftir þetta áfall.
Enda skal viðtalið á því að hvetja konuna að hafa samband við
deildina hvenær á sólarhringnum sem er, ef eitthvað bjátar á.
Sorgarferlið
Skiptist niður í 5 stig sem hvert og eitt lýsir ákveðnu atferli.
Fólk sem er dauðvona, aðstandendur þeirra og þeir sem verða fyrir
öðrum missi ganga í gegnum þetta ferli. Mjög mikilvægt er að
fólk komist í gegnum öll stigin í sinni sorg og mismunandi er hve
langan tima það tekur fyrir hvern og einn.
Foreldrar sem missa fóstur ganga í gegnum þetta ferli eftir á, því
stundum gerast hlutirnir hratt. Hjá þeim er sorgin háð meðgöngu-
lengd og hve oft missirinn hefur orðið áður.
1. Stigið: Afneitun og einangrun.
Fólkið segir: ,,Ég trúi þessu ekki,” þegar það fær fréttir um
einhvern missi. Kona sem missir fóstur, þar sem engin sýnileg
ástæða virðist vera fyrir hendi, gengur oft á milli lækna til að fá
einhverja haldbæra skýringu. Afneitun þessa fólks kemur fram
eftir á. Algengt er að konan láti ekkert uppi um fósturlátið og er
það dæmi um einangrun.
2. Stigið: Reiði
Á þessu stigi segir fólk gjarnan: ,,Af hverju ég.” Reiðin getur
beinst í allar áttir og er mjög algengt með konur sem missa fóstur
að reiðin beinist gegn henni sjálfri. Henni finnst hún ekki vera
kona og að líkami hennar hafi svikið hana. Einnig getur reiðin
beinst að lækninum t. d. ef konan er óánægð með meðferðina.
Konan hugsar alltaf: ,,Ef ég hefði gert hlutina öðruvísi hefði þetta
kannski ekki gerst.” En það er alltaf þetta stóra ,,EF”.
3. Stigið: Samningar
Fólk lofar öllu fögru sem það getur svo ekki staðið við. Á þetta
stig frekar við konur sem hafa misst fóstur áður og er aftur orðnar
ófrískar. Þær hugsa sér að hætta hinu og þessu, bara svo þetta
takist nú.