Ljósmæðrablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 20
56
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
B. Fundarstjóri Jónína Ingólfsdóttir býður ljósmæður
velkomnar á 66. aðalfund félagsins, kynnir síðan dagskrá fundar-
ins.
Ber það undir fundarmenn hvort þeir hafi eitthvað við fundar-
gerð aðalfundar 1984 að athuga, en hún birtist í Ljósmæðra-
blaðinu 1. tölublaði 1984, eða hvort þeir vilji að hún verði lesin
upp — svo var ekki, engin athugasemd var gerð. Hún skoðast því
samþykkt.
C. Fundarstjóri gefur formanni Guðrúnu Björgu Sigurbjörns-
dóttur orðið. Flytur hún síðan skýrslu stjórnar.
Skýrsla stjórnar Ljósmæðrafélags íslands 30. mars 1985
Á starfsárinu voru haldnir 7 stjórnarfundir, jólatrésskemmtun,
2 vinnustaðafundir, 3 fræðslufundir og 2 endurmenntunarnám-
skeið. Gefin voru út 2 fréttabréf.
Ný ljósmæðralög voru lögfest í maí 1984. í vetur var síðan
unnið að drögum að reglugerð með ljósmæðralögunum. Sama
nefnd, þ. e. Eva S. Einarsdóttir, Dýrfinna Sigurjónsdóttir, Jónína
Ingólfsdóttir og Guðrún B. Sigurbjörnsdóttir, vann að reglu-
gerðinni og kynnir Eva S. Einarsdóttir drögin hér á eftir, einnig
voru unnin drög að erindisbréfi fyrir ljósmæður á heilsugæslu-
stöðum.
Ljósmæðratalið kom út í lok maí 1984.
Ritstjóri Ljósmæðrablaðsins, Hildigunnur Ólafsdóttir lét af
störfum 1984 vegna anna. Nýr ritstjóri hefur verið ráðinn frá og
með næsta hausti, Sigurlaug Magnúsdóttir sem útskrifast frá
Ljósmæðraskóla íslands nú í vor. 1. tölublað er nú í vinnslu og
ritstýrði Eva S. Einarsdóttir því.
Tvö endurmenntunarnámskeið voru haldin í Ljósmæðraskóla
íslands, 14.—16. jan. og 25.—27. mars sl.
Endurmenntunarnefnd hafði veg og vanda af þeim en Ljós-
mæðraskólinn lagði til húsnæði og greiðir launakostnað kennara.
Frumvarp til laga um Ljósmæðraskóla Islands, hefur verið salt-
að í bili. Ekkert verður aðhafst frekar af hálfu ráðherra, nema til
komi hvatning frá Ljósmæðrafélagi íslands. Stjórnin hefur því
ákveðið að skipa nefnd er geri drög að nýju frumvarpi, og væri
æskilegt að koma endurmenntuninni þar með.
Skipaður var starfshópur til að vinna að sameiningu allra ljós-