Ljósmæðrablaðið - 01.12.1985, Blaðsíða 23
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
59
Margt athyglisvert kom fram í fyrirlestri þessum. Gestum
fundarins var boðið á fundinn til að við gætum rætt saman um
brjóstagjöf almennt og til þess að við gætum reynt að samræma
og standa saman um að leiðbeina konunum, eins til þess að þær
og börn þeirra geti notið brjóstagjafarinnar, sem lengst og áfalla-
laust. Fyrirhugað er að stofna áhugamannafélag um brjóstagjöf á
Akureyri og í nágrenni. Að lokum sýndi Ingibjörg Björnsdóttir
myndir frá Ástralíuför sinni.
í stjórn Norðurlandsdeildar LMFÍ eru:
Margrét Þórhallsdóttir
Svana Zóphoniasdóttir
Heba Ásgrímsdóttir
formaður
varaformaður
gjaldkeri
ritari
meðstjórnandi
Sumarlína Pétursdóttir
Freydís Laxdal
Starfsskýrsla Suðurlandsdeildar 1984—1985
Elín Stefánsdóttir gerir grein fyrir henni.
Starfsemi Suðurlandsdeildar LMFÍ var með líkum hætti og
undanfarin ár. Basar og fundur var haldinn fyrsta sunnudag í
nóvember á Selfossi. Inn komu fyrir basarinn kr. 11.000,00.
Aðalfund á að halda i maí hjá Ingibjörgu ljósmóður á Blesa-
stöðum á Skeiðum.
Samband sunnlenskra sveitarfélaga og Læknafélag Suðurlands
bauð til ráðstefnu um heilbrigðismál á Suðurlandi, laugardaginn
16. mars sl. Til ráðstefnunnar var boðið starfsfólki heilbrigðis-
stétta og framámönnum sveitarfélaga á Suðurlandi.
Fulltrúi ljósmæðra var Svanborg Egilsdóttir og ræddi hún um
mæðravernd og fæðingarhjálp og aðra þá þjónustu sem ljós-
mæður veita í sínu starfi. Fram kom að á sára fáum heilsugæslu-
stöðum á Suðurlandi eru ráðnar ljósmæður i þær stöður sem
heimild er fyrir.
Á Selfossi er t. d. engin ljósmóðir fastráðin við heilsugæslu-
stöðina, en um mæðraskoðun sér Svanborg Egilsdóttir ljósmóðir
og er hún unnin í tímavinnu, þar sem ekki er fyrir hendi áhugi að
ráða í þá 50% stöðu sem heimild er fyrir.