Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Blaðsíða 25

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Blaðsíða 25
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 21 að eftir fósturhljóðum. Þó er þetta síðasta ekki gert sé konan komin mjög stutt. Þar sem fyrstu einkennin koma oftast ekki fyrr en eftir 24 viku má með fyrrtöldum athugunum greina sjúkdóma sem geta haft svipuð einkenni og pre-eclampsi t. d. kroniskur háþrýstingur og kroniskir nýrnasjúkdómar. Erfitt gæti reynst, ef konan kemur í fyrstu skoðun á III. trimestri, að greina þarna á milli. Það hefur sýnt sig að sumar konur eru útsettari fyrir að fá pre- eclampsi en aðrar og þarf því að fylgjast mjög vel með þessum konum. Undir þennan hóp falla: Frumbyrjur, sem eru langalgengastar Tvíbura — fleirburameðgöngur Konur sem hafa of mikið legvatn Konur með blöðurfóstur (Mola Hydatiosa) Vanskapað fóstur Konur með sykursýki Konur með kroniskan háþrýsting og nýrnasjúkdóma. Pre-eclampsi er hægt að skipta niður í alvarlega og milda. Talað er um milda pre-eclampsi þegar blóðþrýstingurinn mælist 140/90—160/100. Ef hann lækkar ekki við hvíld í 'A klst. eða ef konan hefur þyngst óeðlilega mikið eða hefur dreifðan bjúg er hún oft látin hvíla sig heima í nokkra daga. Einkennin ganga þá oft til baka en ef ekki er hún lögð inn. Við alvarlega pre-eclampsi er blóðþrýstingurinn meira en 160/100, eggjahvíta í þvagi eða mjög mikil þyngdaraukning, er þá konan strax lögð inn á sjúkra- hús. Rannsóknir Eftirfarandi rannsóknir eru gerðar á konum með pre-eclampsi. Með þeim er hægt að gera sér mynd af sjúkdómsástandi konunn- ar. Blóðþrýstingur: er mældur hjá konum liggjandi og diastoliskur þrýstingur er mældur þegar tónninn dofnar. Alltaf skal blóð- þrýstingur mældur á sama handlegg. Blóðþrýsting skal mæla x2 á dag og oftar ef þörf krefur.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.