Einherji - 22.04.1953, Page 1
4
2. tölublað. Miðvikudaginn 22. aprll 1953 22. árgangur.
IMMIIIMHMIII || lllllllllWMWIWeBMTWBIMIIIlMMMMMMK
BSðSBMUE^MDnMMBHEaMIBJ
EINHEKJI
óskar öllum
GLEÐILEGS
S U M A R S !
SKÝRSLA
sendinefndar bæjarstjórnar Siglufjarðar, sem
kjörin var 10. febrúar s.l.
Einherji birtir í dag skýrslu
sendinelndar bæjarstjórnar
Siglufjarðar, sem kjörin var
10. febr. s.I. til að vinna að
lausn togaramálanna.
Skýrsla |»essi var rædd á
bæ/arstjórnarfundi föstudag-
inn 17. þ.m. Vegna þrengsla
í blaðinu í dag er ekki unnt að
rekja umræðurnar á þessum
fundi, en þar kom berlega í
ljós, að tveir af bæjarfulltrú-
um Alþýðufl. vildu heldur láta
ganga að togurunum og selja
þá á nauðungaruppboði og
segja síðan bæinn á ríkið,
heldur en að taka 4,5 millj.
kr. að láni eins og gert var.
Umræðum þessum verður
gerð skil síðar og þá ræddar
þær stefnur, er virtust ríkja
í togaramálinu í bæjarstjórn.
Á fundi bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar, þann 10. febrúar s.l., vor-
um við undirritaðir kjörnir til
þess að fara til Reykjavíkur, til
viðræðna við r'ikisstjórnina og
stjórn Sildarverksmiðia ríkisins
o.fl. aðila um framtíðarrekstur
bæjartogaranna og önnur hags-
munamál Siglufjarðarkaupstaðar,
svo sem aukningu skipastólsins
hér, ríkisábyrgð vegna erlendrar
lántöku v. Skeiðsfossvirkjunar-
innar o.fl. Tillagan, sem sam-
þykkt var varðandi för nefndar-
innar og erindi var svohljóðandi:
„Fjárhag togara bæjarins er nú
svo ikomið, vegna hallarekstrar
undanfarinna ára, að skipin liggja
hér aðgerðarlaus og ekki er sýni-
legt. að nægilegt lánsfé fáist til
hð tryggja öruggan rekstur
þeirra í framtíðinni, og þvi yfir-
vofandi hætta á að skipin verði
seld úr bænum. Hinsvegar telur
bæjarstjórn brýna nauðsyn á, að
skipin séu staðsett og starfrækt
sem atvinnutæki í bænum og
samþykkir því að láta athuga nú
þegar möguleika á að selja Síld-
arverksmiðjum ríkisins togara
bæjarins.
Eftirfarandi skilyrði verði sett
fram af hálfu bæjarins fyrir sölu
skipanna:
1. Skipin verði gerð út frá Siglu-
firði með siglfirzkum áhöfn-
pm,
2. Áherzla verði lögð á að sá afli,
sem landað verður hérlendis,
verði lagður upp á Siglufirði.
3. Bærinn hafi forkaupsrétt ef
verksmiðjurnar vilia selja tog-
arana, annan eða báða.
,,Þar sem nauðsyn er á, að tog-
ararnir komist út á vertið, þá er
nú fer í hönd, samþykkir bæjar-
stjórn að kjósa 3 menn, sem
ásamt bæjarstjóra lari með fyrstu
ferð til Reykjavíkur til að vinna
að þessu máli við stjórn Síldar-
verksmiðja ríkisins og ríkisstjórn,
samhliða því að nefndin vinni að
framgangi annarra þeirra -mála.
sem bæjarstjórn hefur beint til
r'ikisstjórnarinnar."
Fimmtudaginn 12. febrúar kom
nefndin saman á fyrsta fund sinn.
Nefndin fór héðan áleiðis til
Reykjavíkur með m.s. Heklu 19.
febr. s.l., Þar sem forsætisráð-
herra var erlendis . og nauðsyn
var á að ná fundi hans, sá nefndin
ekki ástæðu til að hraða frekar
ferð sinni. Nefndin kom til Reykjá
víkur 21. febrúar s.l. Fyrsti við-
i ræðufundur varð við stiórn Sild-
! arverksmiðja ríkisins, mánudag-
inn 23. febrúar. Var málið lagt
fyrir stjórn S.R. og var það all
mikið rætt á þessum sameigin-
lega fundi.
Þann 27. febrúar barst svar
frá Síldarverksmiðjum r’ikisins
um þá málaleitan bæjarstjórnar
Siglufjarðar, að S.R. keyptu tog-
ara Siglufjarðarkaupstaðar.
Tillagan sem samþykkt var i
verksmiðjustjóminni var svo-
hljóðandi:
„Stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins telur sig ekki geta orðið við
tilmælum bæjarstjórnar Siglu-
f jarðar, er samþykkt voru á fundi
hennar hinn 10. þ.m. um að Síldar
verksmiðiur ríkisins kaupi tog-
ara bæjarins, m.a. vegna þess, að
ekkl er lagaheimild til slikra
kaupa né fjárhagsgeta fyrir
hendi hjá verksmiðjunum til
kaupanna. Hinsvegar telur
stjórn Síldarverksmiðja ríkisins
mikla nauðsyn á því, að togar-
arnir verði áfram gerðir út frá
Siglufirði, og fundinn verði fjár-
hagsgrundvöllur fyrir rekstri
þeirra þar.“
Bréf Síldarverksmiðja ríkisins
var sent áfram til rikisstjórnar-
innar, laugardaginn 28. febrúar.
Ræddi nefndin við forsætisráð-
herra. Steingr'im Steinþórsson,
um erindi bæjarstjórnarinnar og
gerði grein fyrir því hvernig þessi
mál §tæðu nú.
Miðvikudaginn 4. marz gekk
nefndin á fund fjármálaráðherra,
Eysteins Jónssonar og atvinnu-
málaráðherra, Ólafs Thors, ráð-
herrarnir tjáðu nefndinni að
ríkisstjórnin hefði ifiyllsta vilja á
að greiða úr þeim vandamálum,
sem skapast hefðu í Siglufirði í
sambandi við stöðvun togaranna
og ákveðið væri, að skrifstofu-
stiórarnir í Fjármálaráðuneytinu
og Átvinnumálaráðuneytinu þeir
hr. Sigtryggur Klemenzson og hr.
Gunnlaugur Briem rannsökuðu af-
komu togaraútvegsins í landinu
og yrðu þá togaramál Siglfirðinga
þar efst á blaði.
Ákveðið var, að skrifstofustjór-
arnir tækju til starfa á fimmtu-
dag 5. marz og var fundur ákveð-
inn með þeim þann dag. Á þessum
fundi var mikið rætt um ástand
og horfur í atvinnumálum Sigl-
firðinga og þátt bæjarútgerðar-
innar til úrbóta í þeim málum.
Á tímabilinu frá 6. marz til 11.
marz var rætt við Atvinnumála-
nefnd ríkisins, Sameinaða verk-
taka, Fjármálaráðuneytið, v.
Skeiðsfossvirkjunarinnar, fiski-
málastjóra o.fl., varðandi ýms
vandamál Siglfirðinga, og verður
síðar vikið að. þeim viðtölum í
skýrslu þessari.
Á tímabilinu frá 11. marz til
19. marz var rætt oftar en einu
sinni við fyrrnefnda ráðherra og
skrifstofustjóra og þess óskað, að
afgreiðslu málsins yrði hraðað.
Svör þeirra voru jafnan á þá leið,
að sýnt væri að bæjarútgerðin
þyrfti minnst 4—5 milíj. króna til
að komast á réttan kjök og verið
væri að kanna, hvort svo stór
lánveiting fengist, slíkt hlyti að
taka nokkurn tíma, ef það tækist
þá.
20. marz skrifaði nefndin ríkis-
stjórninni svohljóðandi bréf:
„Við undirritaðir sendinefndar-
menn Sigluf jarðarkaupstaðar höf- -
um nú dvalið hér í Reykjavík um
mánaðartlma.
Eins og hæstvirtri ríkisstiórn
er kunnugt, var aðalerindi okkar
að leysa fjárhagsvandamál bæjar-
útgerðar Siglufjarðar.
Okkur er mjög vel ljóst hve
lausn þessa máls er erfið og
vandasöm og einnig ,að málsmeð-
ferðin tekur langan tíma. En við
viljum þó leyfa okkur að benda á
eftirfarandi, sem er að okkar áliti
höfuð ástæðan fyrir því, að þess-
um málum verði flýtt svo sem
kostur er á.
í fyrsta lagi, að sjómenn og
fjölskyldur þeirra, eru þegar farp-
ir að líða algera neyð vegna
greiðsluvandræða' útgerðarinnar.
og versnar það ástand með hvei’j-
um degi sem líður.
í öðru lagi má telja likur til að
vertiðin, sem hefst um mánaða-
mótin næstu, gefi vonir um betri
afkomu útgerðarinnar.
Hver dagur sem líður án þess
að málið leysist, minnka líkurnar
fyrir því, að skipin komist út á
vertíð í tæka tíð.
í-þriðja lagi bendum við á, að
ef ekki leysist úr fjárhagserfið-
leikum útgerðarinnar næstu daga,
eru mjög miklar likur fyrir því,
að yfirmenn á skipunum, sem
viðurkenndir eru sem dugnaðar-
menn, ráði sig fyrirvaralaust á
önnur skip.
I fjórða lagi viljum við benda
á, að skipin verða ófrávíkianlega
boðin upp laugardaginn 28. þ.m.
til lúkningar sjóveðskröfum og
öðrum dómkröfum.
Af íramangreindum ástæðum
viljum við því beina þeim tilmæl-
um til hæstvirtrar ríkisstjórnar,
að. mál þetta verði leyst eins
fljótt og töku eru á.“
Laugardaginn 28. marz barst
nefndinni tilkynning frá ríkis-
stjórninni þess efnis, að hún hefði
ákveðið að útvega og ábyrgjast
*— gegn vissum skilyrðum —
4,5 milljónir króna lán til Siglu-
fjarðarkaupstaðar, vegna bæjarút
gerðarinnar.
Þar sem skilyrði ríkisstjórnar-
innar voru birt fulltrúum í bæjar-
stjórn Siglufjarðar i skeyti frá
nefndinni innlögðu til ritsímans
samdægurs og þau bárust nefnd-
inni í Reykjavík, sjáum við ekki
ástæðu til að endurprenta þau hér
með.
Því miður var ekki símasam- *
band við Siglufiörð á laugardag-
inn 28/3, eftir að kunnugt var um
svar ríkisstjórnarinnar, og þv'í
ekki unnt þann dag að skýra nán-
ar í síma frá máli þessu, en það
var gert í samtölum strax á
sunnudag, þegar talsamband
komst á við Siglufjörð.
1 framangreindu skeyti lagði
- nefndih til, að Bæjarstjórn Siglu-
fjarðar samþykkti skilyrði ríkis-
stjórnarinnar fyrir lántökunum til
bæjarútgerðar Siglufjarðar og
málið yrði afgreitt á fundi bæjar-
stjórnar sunnudaginn 29/3.
Nefndin lagði þetta til að vel
athuguðu máli, og eftir að hafa
rætt þetta við bæjarfulltrúana
Ragnar Jóhannesson og Jón Stef-
ánsson, sem staddir voru í Reykja
v'ík og samþ. voru till. nefndar-
innar. Að dómi nefndarinnar var
þetta eina færa leiðin út úr þeim
vanda, sem bæjarútgerðin var
stödd í. 1 sambandi við þá ákvörð
un nefndarinnar að leggja til að
Framhald á 4. síðu