Einherji - 09.06.1953, Blaðsíða 1
W//////////
msóknarfl.
w w w W W "W w
atnsóknatmanita t sox
5. tölublað.
Þriðjudaginn 9. júní 1953
—¦—— iiiii mii ¦ ¦—
22. árgangur.
er í Norðurgötu 4.
Opin 5—7 og 8,30—10,30
síðd. — Framsóknarmenn
og annað stuðningsfólk
Jóns Kjartanssonar er
beðið að hafa samband
við skrifstofuna.
Kosnimganefndin
Stefna Framsóknarflokksins í sjávar-
útvegs- og iðnaðarmálum
SJÁVARÚTVEGSMÁL ,
Tíunda flokksþing Framsóknaraianna telur það eitt af megjn-
skilyrðum fyrir efnahagslegiu sjálfstæði þjóðarinnar, að sjávarútveg-
inum séu búin svo arðvænieg skilyrði, að unnt sé að reka hann á
fjárhagslega öruggum grundvelii og að þeir, sem við hann vhina,
hafi sambærileg kjör við aðrar stéttir, og .njóti sannvirðis vinnu
sinnar.
Stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum markar flokksþingið í meg-
inatriðum þannig:
1. Flokksþingið lýsir ánægju sinni yfir þeim áfanga, sem náðst
hefur með stækkun fiskveiðiiandhelginnar og þakkar forgöngu
ríkisstjórnarinnar í málinu. Telur flokksþingið, að ekki komi til
mála að veita neinar ti'lslakanir varðandi hina nýju friðunarlínu
og skorar á þjóðina að standa einhuga saman um þá ákvörðun,
sem tekin hefur verið. Ennfremur telur flokksþingið brýna nauð-
syn bera til, að vinna að friðiun ákveðinna veiðisvæða, sem liggja
utan núverandi friðunarlínu og sem reynslan hefur sýnt, að hafa
orðið fyrir sérstakri ágengni togara, t. d. veiðisvæði vélbáta á
Vestf jörðum þar sem sérstök góðfiskimið liggja undir gereyðingu.
Þá leggur flokksþingið áherzlu á, að landhelgisgæzlan verði aukin
og bætt frá því, sem nú er.
2. Flokksþingið telur æskilegt að þeir, sem vinna að framleiðslu
;sjávarafu;rða, eigj beinna hagimuna að gæta um rekstursafkomu
útgerðarinnar með hlutaskipti m, ef um einkarekstur er að ræða,
eða beinni þátttöku í félagsformi. Flokksþingið telur, að vinna
beri að því, að jafnbliða einkarekstri á útgerð séu rekin sam-
vinnuútgerðarfélög sjómanna. Flokksþingið telur það mjög nauð-
... .synlegt, að útgerðarmenn og sjómenn verði beinir aðilar að
vinnslu og nýtingu aflans og sölu hans, svo þeir njóti sannvirðis
vörunnar.
Þá telur flokksþingið rétt að stofnuð verði, þar sem nauðsyn
krefur, féiög um rekstur togara til atvinnuaukningar i hinum
ýmsu landshlutum, með stofnfranilögum frá rikinu, kaupstöðum
og kauptúnum.
3. Flokksþingið telur nauðsyniegt, að ^tgerðinni sé jafnan séð í
tæka tíð fyrir fullnægjandi hagkvæmum rekstrarlánum, og vextir
af þeim lækkaðir frá því sem nú er, svo að til stöðvunar atvinnu-
tækjanna komi ekki vegna skorts á rekstursfé, enda sé gætt fullr-
ar hagsýni i rekstrinum. Þá telur það, að stefnu bankanna beri
að breyta í það horf, að lánum til útgerðar verði beint til ver-
stöðva v'íðsvegar um landið meira en nú er gert, og bankaútibú-
um verði gefnar frjálsari hendur ism útlán í því skyni. Harmar
þingið þá þróun, sem undanfarið hefur átt sér stað, að fleiri og
og fleiri bátar eru fluttir frá útgerðarstöðum úti á landi, þar sem
útgerðarskilyrði eru góð, með þeim afleiðingum, að atvinnulíf
lamast og byggðir eyðast.
4. Áherzla sé lögð á að ljúka þeim hafnargerðum, sem byrjað hefur
verið á og mikla þýðingu hafa fyrir útgerðina. Þá sé einnig, stefnt
að því, að fcoma upp hafnarmannvirkjum, þar sem skammt er í
auðug og lítt notuð fiskimið.
5. Sjómönnum og öðru starfsfólki útgerðarinnar sé tryggð gpð að-
búð í viðleguhöfnum og annars staðar, þar sem það dvelur vegna
atvinnu sinnar.
0, Flokk&bingið telur, að reynsla slðustu ára af síldyeiðum fyrir
Norður- og Austurlandi sýni nauðsyn þess, að aukin verði f jöl-
breytni í útgerð, og meiri áherzla verði -lögð á reknetasíldveiðar
og síldveiðar á úthafinu, en vorið hefur. Flokksþingið ályfctar að
fela þingmönnum iflokksins að vinna að þv'i, að Islendingar fái
aðstöðu til útgerðar við Grænland.
7. Flokksþingið ályktar að vinna beri að því, að sala saltfisks verði
frjálsari en nú er og bendir á í því sambandi, að S.Í.S. verði
ilöggiltur útflytjahdi, ásamt S.I.F.
8. Efldar séu vísindalegar rannséknir í þágu fiskveiða og nýtingar
sjávarafurða, og þeim búin þau skilyrði, að þær geti komið að
sem beztum notum. 1 því sfcyni verði útvegað fnilkomið skip til
haf- og fiskrannsókna og rannsóknarstofnun sjávarútvegsins bú-
in betri og fullfcomnari starfsskilyrði.
9. Flokksþingið áréttar fyrri álylitanir um að æskilegt sé, að komið
verði upp reikningaskrifstofu fyrir togaraútgerðina á sama hátt
og fyrir vélbátaflotann.
10. Flokfcsþingið leggur áherzlu á, að fuit tillit sé tekið til smábáta-
útgerðarinnar í löggo'öf og stjórnarframkvæmdum varðandi sjáv-
arútvegsmál. Lýsir flokksþingið ánægju sinni yfir þingsályktun
.. um rekstrarlán til opinna vélbáta, er samþykkt var á síðasta
Alþingi.
11. Flofcsþingið telur nauðsynlegt, að varzia verði allan sólarhringinn
árið um kring á talstöðvum, þar sem það kann að þykja nauð-
synlegt vegna öryggis sjófarenda og ennfremur að greitt sé fyrir
Framhald á 2, síðu
BETLARINN
I Neista, sem út fcom 30. f.m.
birtist grein eftir einhvern
ónefndan Alþ.fl.mann innlendan
eða „erlendan", undir fyrirsögn-
inni: „Hver verður stefna Fram-
söknarfl. eftir næstu kosningar?"
Efni þessar greinar er ekkert
nýmeti fyrir Siglfirðinga. Upphaf
hennar og endir er áskorun til
Framsóknarmanna hér, um að
svíkja flokk sinn og frambjóð-
anda á kosningadaghin 28. þ.m.
Álíka áskoranir hafa Aiþýðufl-
menn hér sent frá sér fyrir
iiverjar alþingiskosningar, allt frá
því Siglufjörður varð sérstakt
kjöirdæmi, og eru þær ýmist fram
settar í blaði þeirra eða í gegn-
um „talstöðvar" flokksins.
Þessi áróðursaðferð Alþýðu-
flokfcsmanna hér, er einstök í
sinni röð og sýnir glöggt móral-
inn, sem þarna tókir hjá þessu
fólki.
I umræddri grein , Neista birt-
ist t. d. þessi klausa:
„Ef flokkurinn (Framsóknarfh)
ætlar sér að gera heiðarlega til-
raun til þess að hverfa frá íhalds-
pólitikinni og taka upp umbóta-
sinnaða vinstri stefnu, þá getur
hann ekk'i á isaina tíma stutt af
fremst megni andstseðinga þeirrar
stefnu til áhrifa í þjóðl'élagsmál:
um, eða stuðlað beinlínis að kosn-
ingu fulltrúa kommúnista eða
Sjálfstæðismanna í ákveðnum
kjördæmum.
En þetta gerir flokkurinn visu-
lega hér í Siglufirði. Allir vita,
að kosning Jóns Kjartanssonar er
vonlaus. — Með því að beita allri
orku sinni.að því hér í Siglufirði
að fá frjálslynda Framsóknarmenn
til þess að eyðileggja atkvæði sín
og áhrif á íslenzk. stjórnmál, með
því að kasta þeim á glæ, er flokk-
urinn beinlínis að stuðla að kosn-
ingu kommúnista á Siglufirði."
Þessi „móralska" grein endar
Framhald á 3. síðu