Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Page 25
TÍU ÞREP TIL VEL
HEPPNAÐRAR BRJÓSTAGJAEAR
Árið 1992 var í fyrsta sinn haldin alþjóðleg brjósta-
gjafarvika og var hún helguð baráttunni fyiár bam-
vænum sjúkrahúsum. Þessu átaki var hrundið af stað
af Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni (WHO) og
Barnahjálp Sameinuðu þjóðana (UNICEF) sem hluta
af áætlun þeirra um heilbrigði fyrir alla árið 2000.
Þau sjúkrahús sem vilja gerast barnvæn verða að
fara eftir ákveðnum reglum sem settar voru fram í
sameiginlegri yfirlýsingu þessara tveggja stofnana
árið 1990. Þessi yfirlýsing inniber eftirfarandi tíu
þrep til velheppnaðrar brjóstagjafar, sem eru undir-
staða þess að geta orðið barnvænt sjúkrahús:
Sérhver stofnun sem veitir mæðraþjónustu og um-
önnun nýfæddra barna skyldi:
1. Hafa skriflega stefnu varðandi brjóstagjöf, sem
miðlað er reglulega til alls heilbrigðisstarfsfólks.
2. Þjálfa allt heilbrigðisstarfsfólk í vinnuaðferðum
sem nauðsynlegar eru til að framfylgja þessari
stefnu.
3. Fræða allar barnshafandi konur um kosti brjósta-
gjafar og hvemig best sé að standa að henni.
4. Aðstoða mæður við fyrstu brjóstagjöf innan
hálfrar stundar frá fæðingu.
5. Sýna mæðrum hvernig á að leggja á brjóst og
hvernig hægt sé að viðhalda mjólkurmyndun jafnvel
þótt móðir og barn séu aðskilin.
6. Ekki gefa nýfæddum börnum aðra fæðu eða
vökva en brjóstamjólk nema heilsufarsleg rök liggi
að baki.
7. Hafa sólarhringssamveru, lofa móður og barni að
vera saman allan sólarhringinn.
8. Hvetja til að börnum sé gefið brjóst þegar þau
vilja.
9. Ekki gefa brjóstfæddum börnum túttur eða snuð.
10. Styðja uppbyggingu stuðningshópa við brjósta-
gjöf og vísa mæðmm á þá við útskrift af fæðingar-
stofnun.
Engin heilbrigðisstofnun á íslandi fullnægir þeim
kröfum sem gerðar eru til barnvænna sjúkrahúsa eða
uppfyllir þrepin tíu. Bamvæn sjúkrahús byggja vel-
gengni sína að mestum hluta á störfum ljósmæðra
sem hafa tekið að sér að framfylgja þrepunum tíu og
efla velgengni við brjóstagjöf og þar með hróður
sinnar stofnunar. Ef ljósmæður standa saman geta
þær lyft grettistaki í tíðni og tímalengd brjóstagjafar
sem og öðrum þeim málum sem mestu skipta fyrir
heilbrigði og hamingju bama.
Dagný Zoega
1998
Áhrif starfsaðferða og óiðhorfa fagfólks sem annast móður og barn skipta miktu máti
Úr Is he biting again? eftir Neil Matterson. Marion Books 1984
25
UÓSMÆÐRABLAPIV