Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 32
Leiðbeiningar \>iö noíkun mjaltaOélar
Hreinlecti
Við alla meðhöndlun brjóstana
og mjólkurinnar er nauðsynlegt að
viðhafa gott hreinlæti. Handþvott-
ur með sápu er nauðsynlegur áður
en mjaltaáhöldin eru snert og eins
eftir mjaltir. Mjaltaáhöldin þarf að
sótthreinsa eftir hverja notkun.
Einnig þarf að gæta þess að snerta
ekki mjaltaáhöldin og geymslu-
pokana að innan.
■Kjólkun
Gott er að hafa í huga að mjólk-
urframleiðslan fer eftir því hve
mikla örvun brjóstin fá. Þvf oftar
sem þau eru mjólkuð, því meiri
mjólk kemur. Flestar konur þurfa
að mjólka sig 5 sinnum á dag eða
oftar til að örva og viðhalda
mjólkurmyndun.
Mjaltavélin er þannig gerð að
hún líki sem mest eftir sogi bams-
ins. Þess vegna er ekki stöðugt
sog í henni, heldur kemur það í
bylgjum. Þannig sog örvar einnig
betur mjólkurmyndunina. Ef kona
þarf að mjólka sig frá upphafi, t.d.
ef barnið er á Vökudeild er nauð-
synlegt að hún fái sem fyrst eftir
fæðinguna aðstoð við mjaltir. Til
að mjólkurframleiðsla komist sem
fyrst af stað og hún haldist sem
jöfnust er gott að konan mjólki sig
5-6 sinnum á dag og láti ekki
líða meira en 3 til 4 klukkutíma
milli mjalta yfir daginn og ekki
mikið yfir 6 til 8 tíma á nóttinni.
Athuga ber þó að á nóttinni er
mjólkurframleiðslan ömst. Þó ber
að gæta þess að konan ofgeri sér
ekki því þreyta hefur slæm áhrif á
mjólkurmynd-
un. Svipuð lög-
mál gilda ef
konan þarf að
mjólkasigseinna,
t.d. vegna fjar-
veru frá barn-
inu, brjóstin
þurfa tíða örv-
un og tæm-
ingu til að við-
halda mjólk-
urmyndun.
Best er að
byija hverjar
mjaltir á
mildasta sogi
til að geirvört-
umar verði
síður aumar.
Einnig getur
verið gott að
bleyta brjósta-
skjöldinn með
hreinu vatni til
að hann sé ekki
eins stamur.
Brjóstaskjöldurinn er lagður þétt
að brjóstinu, án þess að hann
þrýsti neins staðar á það. Gott er
að konan halli sér fram á við til að
mjólkin renni betur ofan í pelann
og ekki skildi þurrka innan úr
mjaltavélarskildinum meðan á
mjöltum stendur til að ekki berist
sýklar í mjólkina. Þó er óhætt að
halda hreinu stykki undir skildin-
um til að grípa mjólk sem fer út-
fyrir.
Best er að mjólka hvort brjóst
um sig þar til hættir að leka (5-7
mínútur ) og endurtaka síðan þar
til hættir að leka aftur (3-5 mín-
útur). Hver mjaltastund ætti ekki
að taka minna en 15 mínútur en
lítið er fengið með lengri mjöltum
en 30 mínútum, nema mjólkin
streymi enn á fullu.
Ge>?msla brjóslamjólkur
Eftir mjaltir þarf að kæla mjólk-
ina sem fyrst til að bakteríur nái
ekki að fjölga sér. Ef ekki á að
nota mjólkina innan sólarhrings,
þarf að frysta hana. Ekki er æski-
legt að bæta ferskri mjólk saman
við frosna eða kælda mjólk. Best
er að frysta mjólkina í þar til
gerðum frystipokum, sem fást í
apótekunum eða plastpelum.
Venjulegir klakapokar eru ekki
góðir til að frysta brjóstamjólk
vegna þess að fitan úr mjólkinni
festist innan á þeim.
Talið er óhætt að nota brjósta-
mjólk innan 4 klst. við stofuhita,
sólarhrings í ísskáp eða 3 mánaða
í frysti við -18°C.
Dagný Zoega
Ljósmóðir og IBCLC Brjóstagjaf-
arráðgjafi. 1998
Heimilcl:
Auerbach, KG. og Riordan, J.
(1993). Breastfeeding and human
Hjálpum mæðrum
ad qefa börnunum
bestu mjólkina
SÍMI 5600 900
f AX 5600 901
Bkautarholti 26-28
105 Reykjavík
32
LJÓSMÆÐRABLAÐIP