Ljósmæðrablaðið - 15.05.2001, Síða 4
" Ég var 9 ára þegar ég ákvað
að verða Ijósmóðir”
Viðtal tók
Bjarney R. Jónsdóttir
Ljósmóðir sem starfar við
sjúkrahúsið á Blönduósi
Þegar ég kom til Dýrfmnu
til að taka viðtalið, tók
hún á móti mér, jafn hlýleg
og róleg og hennar er
vísa. Það er ekld hægt
annað en að líða vel í
nærveru þessarar traustu
konu. Mérfinnst fara best
á því að hafa viðtalið að
mestu óbreytt, þannig
kemst best til skila,
frásögnin hennar
Dýrfmnu.
Ljósmæðrablaðið
maí 2001
í viðtalinu segir hún frá þegar hún tekur í
fyrsta skipti á móti heima,óundirbúin, af því
hún getur ekki neitað konu sem er að fæða.
Eftir það er ekki aftur snúið. Dýrfinna lýsir
vel andrúmsloftinu heima, trausti kvennanna
á henni, mikilvægi rólegheita og þess að fella
fæðinguna inn í daglegt líf, það er eðlilegast.
Hún grípur sjaldan inn í eðlilegan gang
fæðingar, klippir sjaldan og sprengir helst ekki
belgina. í orðum hennar speglast hin sanna
trú ljósmóður að allt muni ganga vel, þangað
til annað komi uppá. Þá sendir hún líka frá
sér, því maður bíður ekki eftir hættu.
Dýrfinna lýsir tíðarandanum, hvernig fólkið
var oft að hræða konurnar.
Hún fékk bæði stuðning og gagnrýni frá
samstarfsfélögum, en hún var ákveðin og stóð
við sína sannfæringu. Hún segir frá sterkum
konum, sem hafa ákveðnar skoðanir,og
Dýrfinna virðir óskir þeirra. Hún þjónar þeim,
tók á móti fyrsta barninu sem fæddist í vatni
hér á landi og sá þá strax að þetta yrði ffamtíðin.
Hún tekur jafnvel að sér barn þegar þess
er þörf, eins og fram kemur í viðtalinu.Hún
lýsir einnig hvað starfið gefur og hvers það
krefst. Hún þurfti að vera tilbúin þegar kallið
kom, jafnvel þegar hún var sjálf með tvö
nýfædd börn. Taskan hennar stendur tilbúin,
ef einhver skyldi kalla.
Eins og virðulega konan
Dýrfinna hvar ert þú fædd og uppalin?
Ég er fædd héma í Reykjavík,það var þá sveit
þar sem Háaleitisbrautin og Safamýrin er.
Seljaland hét það. Ég er nú fædd á Land
spítalanum, með fyrstu bömunum sem fæddust
þar 1931. Þá fóru margar konur inn á
Landsspítala til þess að vígja nýju
fæðingadeildina.
Varfjölskyldan stór?
Ég á fimm systkyni, ég er næstelst af þeim og
svo bjuggu foreldrar mínir þama að Seljalandi.
Mamma hafði smá búskap með, hafði kindur
og kýr og maður hjálpaði oft til þegar að
kindurnar og kýrnar voru að bera.
Þannig að þú hefur fljótt
ákveðið að verða Ijósmóðir?
Já ég var 9 ára þegar ég ákvað að verða
ljósmóðir.
Hvernig kom það til?
Þær voru nú að fæða heima konumar, í næstu
húsum og ljósmóðirin kom með tösku. Mér
fannst þetta svo virðuleg kona, þannig að ég
hugsaði, ég ætla að verða svona, svoleiðis
byrjaði það.
Og það hefur gengið eftir?
Já.
Hvernig var svo náminu háttað?
Ljósmæðraskólinn ?
Annaðhvort varð maður að vera búin að vera
í húsmæðraskóla eða gagnífæðiskóla og ég var
búin að vera í gagnfræðiskóla og kvöldskóla
KFUM, var þar tvo vetur líka. Svo
vann ég við að keyra blindan mann í tvö ár,
þangað til að ég var tvítug. Maður fékk ekki
inngöngu fyrr en tvítugur. Þá var það eitt ár,
þegar ég lærði. Svo vann ég í tvö sumur við
að leysa af í sumarfrí, eftir að ég lærði '53 og
'54, sem ljósmóðir á fæðingargangi. Til að fá
réttindi til þess að fá að