Ljósmæðrablaðið - 15.05.2001, Qupperneq 10
eitthvað sérstakt út og segja þeim hvar ég væri
bæði í afmæli og annað. Ég var kölluð út
tvisvar í leikhúsinu.
Þurftir þú aðfara af sýningu?
Já, það er svona. Krakkarnir voru stundum
pirruð sérstaklega ef ég var kölluð um jólin,
það skeði þrisvar. Það var ein frumbyrja 31
árs og það gekk allt vel. Hún var alla nóttina
alveg fram til hádegis á jóladag. Krökkunum
þótti þetta voðalegt að mamma skildi fara. Ég
sagði þakkið þið fyrir að þetta sé ekki á
aðfangadag, það hefði verið ennþá verra hefði
það verið.
Voru þœr stundum lengi?
Já þær gátu verið sólarhring og meira, þú veist
sko aldrei hvað þú verður lengi svo að ég sagði
við mín börn og mann ég veit aldrei hvað ég
verð lengi. Ég er að fara að taka á móti og ég
veit ekki hvað ég verð lengi. Stundum var
ekki sími og ég gat ekki látið vita.
Nei, égfékkleyfijyrirbíl, '58
þá þurfii maður að sœkja
um leyfi fyrir bíl, ogfékk
fyrsta bílinn minn '59. Það
gekk ansi etfiðlega. Egheld
að ég hafi þurft aðfara 24
ferðir að tala við alla
flokkana.
Þau hafa tekið þessu?
Já, já,þetta vandist eins og allt annað.
Svo varstu búin að segja mérfrá því að þú
hafir tekið á móti þínum barnabörnum?
Já, ég hef tekið á móti öllum mínum
bamabömum nema einu þau em orðin 23, þau
em 5 fædd heima, en ekki neitt upp á síðkastið
fætt heima, nei. Það er orðið 22ja ára, 15 ára,
12 ára og 6 ára þau sem em fædd heima. Það
var alveg hreint eins og ég væri með mínar
vinkonur. Ég var ekkert nervus eða hugsaði
að þetta væri bamið mitt. Ég hef aldrei neitt
fundið fyrir því að ég væri neitt kvíðin, alls
ekki. Af því mér gekk vel, þó ég hafi stundum
verið lengi en mér gekk vel og var allt eðlilegt
og ég vissi að það myndi ganga ágætlega.
Ljósmæðrablaðið
maí 2001
Þessi eini hann er þá ekkifœddur hérna?
Nei, hann fæddist í Svíðþjóð, þau voru að
læra þar. Ég ætlaði en hún fæddi viku fyrir.
Hún hringdi í mig og þá var hún orðin veik,
mér leið ekki vel að vera hérna, en svo fór
hún svona eins og það er orðið héma núna,
hún fór heim eftir sólarhring.
Fórstu til hennar?
Nei, ég fór svo ekki fyrst hún var búin að
fæða, maðurinn hennar var hjá henni.
Stelpurnar voru orðnar svolítið stórar.
Ein tengadóttir mín fæddi tvisvar heima og
hún var mjög fljót en læknamir náðu yfirleitt
ekki, en af því að hún óskaði eftir lækni þá
kallaði ég í hann, en barnið var yfrleitt
fætt og fylgjan þegar þeir komu, hún var svo
fljót. Þegar hún var komin með fimm þá var
hún eiginlega búin. Það var svo mjúkur
legháls, það var bara, þegar ég var í síma að
ná í lækni, þá sagði sonur minn, “mamma ég
held að bamið sé að koma” og þá sáum við í
kollinn á barninu. Læknirinn náði ekki en
kom nú samt. Og hún á 6 ára dreng núna, hann
fæddist líka heima. Þetta þótti voða skrýtið
að vera að eiga böm heima, “þekkist það enn”
sagði fólkið. Stelpan hennar er 15 ára hún
fæddist í stórri blokk og það var fólk í
blokkinni sem talaði svona. Ég fór líka austur
til dóttur minnar, við vorum bara tvær, því
það kom enginn læknir. Eldri læknirinn sagðist
geta komið en hinn aftur fór að hræða hana.
Svoleiðis að það gekk allt ljómandi vel, ég
var hjá henni í 6 daga á eftir.
Fíat fyrir lán
Varstu á bíl sjálf?
Nei, ég fékk leyfi fyrir bíl,'58 þá þurfti maður
að sækja um leyfi fyrir bfl, og fékk fyrsta
bflinn minn '59. Það gekk ansi erfiðlega. Ég
held að ég hafi þurft að fara 24 ferðir að tala
við alla flokkana. Sko þá voru það stjórn-
málaflokkarnir sem réðu. Það var Alþýðu-
flokkurinn og Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkurinn. Svoleiðis að mér fannst nú best
að tala við einn sem hét Guðjón Oddsson sem
var fyrir sjálfstæðisflokkinn. Því ég vildi fá
Fíat því að ég vissi að ein ljósmóðir var að fá
Fíat station en hinir vildu selja mér Moskovitz
eða Skoda.
Seldu stjórnmálamennirnir bíla?
Nei, þeir gáfu leyfi. Ég lét mig ekki
fyrr en ég fékk Fíat því að Þórdís Olafsdóttir
var að fá svona Fíat, ég vissi það. Hún var