Ljósmæðrablaðið - 15.05.2001, Side 13
Atriði sem í þessu sambandi geta átt við og
eru gagnleg til umræðu.
Flest andvana börn eru heilbrigð að sjá og
virðast sofa
Hvetja þarf foreldra til að horfa á og halda
á barninu og einnig að hafa systkyni þess
með og þá fjölskyldumeðlimi og vini sem
þau sjálf óska eftir að séu til staðar. Vara
þarf þó foreldra við húðinni sem getur verið
mikið flögnuð um allan kroppinn.
Að sannleikurinn um barnið er betri en
ímyndun um það.
Góður tími til að kveðja barnið gefur
foreldrum oftast dýrmætari minningu um
barnið.
Minningar um barnið s.s. ljósmynd, hárlokk,
fótspor , handarför og armband.
Að gefa barninu nafn.
Undirbúningur fyrir útför.
Erfitt er að setja mælistiku á sorgina og okkur
öllum finnst erfiðast að horfa á fullburða fallegu
börnin dáin en það þarf ekki að vera erfiðara
en að horfa á þau börn sem deyja fyrr á
meðgöngunni.
Allir hafa einhverjar væntingar um ófætt bam
sitt. Böm sem em fædd mikið fyrir tímann og
hafa jafnvel verið dáin í einhvern tíma fyrir
fæðingu, líta ekki jafnvel út og þau sem fæðast
stærri við fæðingu. Þannig að minningarnar
em ef til vill ekki eins fallegar. Til að reyna
að bæta líðan foreldra sem misst hafa böm sín
á þennan hátt voru í ársbyrjun 1999 komið á
fót stuðningshópum með þáttöku fæðingar
deildarinnar undir stjórn greinarhöfúndar og
sr. Ingileifar Malmberg sjúkrahússprests.
Upphaf þessa starfs má rekja til að nokkrir
foreldrar sem misst höfðu börn sín hvöttu til
að komið yrði á fót einhverri eftirfylgni og
meiri stuðningi við þá, en hingað til hafði verið
til staðar. Stuðningurinn er í formi hópvinnu
þar sem að við hittum ákveðinn fjölda foreldra
fimm til sex skipti hvem hóp og fara fúndimir
fram að jafnaði einu sinni í mánuði.
Stuðningsvinnan er byggð upp með þeim hætti
að við forum í gegnum þá sáru reynslu sem
foreldrarnir höfðu orðið fyrir. Má þar nefna,
fæðinguna og aðdraganda hennar, tilfinninga-
viðbrögð, viðbrögð umhverfis , nánustu fjöl-
skyldu, ættingja og vina, kistu- lagningu og
útför. Einnig er rætt um næstu þungun og
tilfinningum henni tengdar. Það hefúr sýnt sig
að mikil þörf var fyrir starf sem þetta þar sem
mikill áhugi hefúr verið meðal foreldra sem
hafa orðið fyrir þessari sáru reynslu sem er
fólgin í að missa barn.
Þessi stuðningur fer fram á Kvennadeild
Landspítalans og stendur öllum foreldrum og
eúistaklingum til boða hvar sem þeir em staddir
á landinu eftir því sem því verður við komið.
Nánari upplýsingar um stuðningshópana má
fá hjá greinarhöfundi sem starfar á fæðinga-
gangi Kvennadeildar Lsp.
Reykjavík í mars 2001
Guðrún Guðbjömsdóttir Ijósmóðir.
Erfitt er að setja mæli-
stiku á sorgina og
okkur öllum finnst
erfiðast að horfa á
fullburða fallegu bömin
dáin en það þarf ekki
að vera erfiðara en að
horfa á þau börn sem
deyja fyrr á
meðgöngunni.
Heilbrigdisstofnun
Suðausturlands
Höfn Hornafirði
auglýsir stöðu ljósmóður lausa
ffá l.júlí n.k.
Upplýsingar veita;
Guðrún Júlía Jónsdóttir
hjúkrunarforstjóri
og
Jóhann Olafsson
framkvæmdastjóri
ísíma 478-1400.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
Höfn Hornaflrði.
Fjórðungssjúkrahúsið íNeskaupstað
óskar eftir að ráða ljósmóður með hjúkrunarmenntun í fullt
starf frá 1. júní 2001 (umsemjanlegt).
Um er að ræða starf á fæðingadeild og heilsugæslu sem skiptist
á milli tveggja ljósmæðra. í boði eru húsnæðis og flutnings
hlunnindi. Allar nánari upplýsingar um starfið eru veittar hjá:
Hildi í síma: 477-1340 eða
Bóthildi í síma: 477-1965.
Elísabet rekstrarstjóri veitir allar upplýsingar um launakjör í
síma:477-1402
Fj órðungssj úkrahúsið
í NesRaupsstað
Ljósmæðrablaðið
maí 2001