Ljósmæðrablaðið - 15.05.2001, Side 14
Samtök hjúkrunarfræðinga og
Ijósmæðra gegn tóbaki.
Stofnfundur samtakanna var haldinn 9.
febrúar 2000
Markmið samtakanna er að hvetja þessar
fagstéttir til að fræða um tóbaksvarnir og
leiðbeina og styðja þá sem vilja hætta að
reykja.
í stjórn samtakanna eru:
Guðrún Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur formaður,
Dagmar Jónsdóttir
hj úkrunarfræðingur,
Álfheiður Árnadóttir lj ó s m ó ð i r,
Jónína Sigurgeirsdóttir
hj úkrunarfræðingur,
Sigríður Birna Ólafsdóttir
hj úkrunarfræðingur,
Guðrún G. Eggertsdóttir ljósmóðir,
Þuríður Bachman
hjúkrunarfræðingur.
Stofnfundurinn var auglýstur með
dreifibréfi, sem sent var á allar
sjúkrastofnanir og heilsugæslustöðvar á
landinu.
Opinn hádegisverðarfúndur var haldinn á
Hótel Borg 24.október 2000 undir
yfirskriftinni:
“Hvers vegna eru lyf gegn reykingum ekki
niðurgreidd af ríkinu”.
Frummælendur voru:
Dagmar Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Guðmundur Þorgeirsson 1 æ k n i r ,
Karl Steinar Guðnason f o r s t j ó r i
Tryggingastofnunar ríkisins og
Þórir Haraldsson aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra
í janúar s.l hafði lyfjafyrirtækið Glaxo-
Smith-Kline samband við samtökin og bað
þau um að vera með fræðslu og ráðgjöf um
reykingavarnir og leiðir til reykleysis, í
apótekum víða um land.
Stjórnin tók þetta tilraunaverkefni að sér
og skiptust meðlimir hennar á um að fara
í apótekin í alls 17 skipti.Greiðslan fyrir
þetta starf rann til samtakanna og verður
m.a. varið til að fjármagna merki
samtakanna sem er í hönnun.
Afmælisfundur var auglýstur og haldinn
þann 23. febrúar s.l.
Erindi fluttu Anton Bjarnason læknanemi
og fjallaði hann um niðurstöður rannsóknar
sinnar á áhrifum reykinga á meðgöngu og
súrefnisflutning til fósturs.
Guðrún Jónsdóttir flutti erindi Dagbjartar
Bjarnadóttur í Mývatnssveit þar sem hún
forfallaðist, og fjallaði um “Ráðgjöf í
reykbindindi “ sem er símaþjónustuna sem
er veitt í samvinnu við Heilbrigðistofnun
Þingeyinga og Tóbaksvamamefiid.
Mikilvægt er að ljósmæður og hjúkrunar-
fræðingar skrái sig sem flestir í samtökin
til að starfíð megi eflast og styricjast.
Hægt er að skrá sig hjá Álfheiði Ámadóttur
í síma 560 1141 Kl. 08.00 til 16.00,
netfang:alfheida@rsp.is
Með baráttukveðjum,
Guðrún G. Eggertsdóttir
Alfheiður Arnadóttir