Ljósmæðrablaðið - 15.11.2004, Síða 10
Kynning á nýjunn bæklingi:
Matur og meðganga
Fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri.
Nýr bæklingur var formlega kynntur á
ráðstefnu Miðstöðvar mæðraverndar 1.
október sl. Að útgáfu hans standa Lýð-
heilsustöð, Heilsugæslan/Miðstöð
mæðraverndar og Umhverfisstofnun.
Hann var unninn af sérfræðingum á
þeirra vegum: Jóhönnu Skúladóttur
ljósmóður, Jóhönnu Torfadóttir næring-
arfræðingi, Laufey Steingrímsdóttur
næringarfræðings og Þóru Steingríms-
dóttur lækni. Dr. Bryndís Eva Birgis-
dóttir næringarfræðingur stýrði verk-
inu.
Markmið með útgáfu bæklingsins er
m.a. að:
• Birta skýrar leiðbeiningar um matar-
ræði barnshafandi kvenna sem
byggðar eru á rannsóknum.
• Samræma upplýsingar frá ýmsum
stofnunum til barnshafandi kvenna
um fæðuval, bætiefni, hreinlæti og
öryggi matvæla.
I bæklingnum eru almennar ráðlegg-
ingar um mataræði frá Manneldisráði
íslands sem og sérhæfðar ráðleggingar
um eftirfarandi atriði:
Þyngdaraukningu og hreyfingu
Fólasín
Járn
A og D vítamín
Fisk og sjávarafurðir
Hrá matvæli
Hreinlæti og munnhirðu
Mataræði á ferðalögum erlendis.
Reykingar og vímuefni
Hvað varðar mataræði á með-
göngu er aðaláhersla lögð á að ráð-
leggja konum að borða hollan og
íjölbreyttan mat, en ráðleggingar
um þyngdaraukningu taki mið af
hverri konu.
Konur í kjörþyngd eða undir
kjörþyngd (BMK25) 12 - 18 kg. og
konur yfir kjörþyngd (BMI>25) 7 -
12 kg.
Ekki er mælt með því að
ráðleggja öllum barnshafandi kon-
Jóhanna Skúladóttir
aðstoðaryfi rljósmóði r
um að taka járnbætiefni á meðgöngu,
heldur er lögð áhersla á járnríkt fæði.
Ráðleggingar um járnbætiefni byggjast
á blóðhag viðkomandi konu. Konum er
þó ekki ráðlagt að borða lifur eða
afurðir unnar úr henni vegna þess hve
mikið A-vítamín er í lifur.
Talið er óhætt að ráðleggja lýsi á
meðgöngu, þar sem A-vítamínmagnið
hefur verið minnkað mjög eða niður í
1/5 frá því er áður var. Einnig er lýsi
mikilvægur D-vítamíngjafi fyrir alla
íslendinga.
Öllum konum á barneignaraldri er
ráðlagt að taka fólasín 400 pg, daglega
ásamt því að borða fólasínríkt fæði.
Barnshafandi konum er ráðlagt að
borða a.m.k. tvær fiskmáltíðir á viku
rétt eins og öðrum landsmönnum.
í bæklingnum er upptalið sérstak-
lega:
Fæða er inniheldur mikið járn og
fólasín.
Fæða sem ekki er ráðlögð á með-
göngu, má þar nefna hráan fisk og stór-
flyðru.
Fæða sem borða má i takmörkuðu
magni á meðgöngu, s.s túnfisk úr dós,
tvisvar í viku.
Minnst er á koffein, áfengi, tóbak,
náttúru- og fæðubótaefni og lyf. í bæk-
lingnum er sérstakur kafli sem fjallar
um hreinlæti við matargerð og matar-
æði á ferðalögum erlendis, ásamt
fræðslu um tannheilsu og hreyfingu.
Fjölbreytt fæði á meðgöngu skiptir
miklu máli fyrir heilbrigði, bæði fyrir
konurnar sjálfar og börn þeirra. Sem
heilbrigðisstarfsmenn er mikilvægt að
við gerum okkur grein fyrir að aðstæð-
ur fólks eru mismunandi og því þurfum
við ávallt að miða fræðsluna við
þarfir hvers og eins. Það er því
mikilvægt að ráðleggingar valdi ekki
áhyggjum eða kvíða.
Dreifingaraðili bæklingsins er
Miðstöð mæðraverndar. Pantanir
sendist á mm@hr.is
Hópurinn sem sá um gerð bæk-
lingsins sá einnig um gerð ítarefnis
sem komið verður fyrir á heimasíð-
um viðkomandi stofnanna: Heilsu-
gæslunnar í Reykjavík www.hr.is.
Lýðheilsustöð: www.lydheilsustod.is
og hjá:
Umhverfisstofnun: www.ust.is.
10 Ljósmæðrablaðið nóvember 2004