Ljósmæðrablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 15
Og meta þörf á örvun eftir framgangi
fæðingar, þe. útvíkkun og stöðu höfuðs
á alveg sambærilegan hátt og ef konan
væri án deyfingar. Mikilvægt er að við
læknum ekki hríðamynstur eins og það
ritast á pappírnum heldur metum við
vinnuna sem hríðarnar skila.
Oxytocin á þriðja
stigi fæðingar
Sýnt hefur verið fram á að fyrirbyggj-
andi notkun oxytocins á þriðja stigi
fæðingar dregur verulega úr blóðtapi og
blóðleysi hjá nýorðnum mæðrum (5).
Það ætti því að gefa öllum fæðandi
konum þetta lyf um leið og bamið er
fætt þar sem þörf á blóðgjöf minnkar
verulega. Aukaverkanir þessa lyfs í
skammtinum 10 ae í vöðva eða 5 ae
hægt í æð eru mjög fátíðar, en þó er
alvarlegur hjartasjúkdóniur frábending
þar sem lyfið getur valdi - blóðþrýst-
ingslækkun sem konur mtJ fast útflæði
hjartans geta ekki bætt upp með aukn-
ingu á hjartsláttartíðni. Einnig getur
verið varasamt að gefa mjög hypo-
volemískum konum þetta lyf þar sem
það getur valdið enn frekara blóðþrýst-
ingsfalli (6). Fyrirbyggjandi notkun
oxytocins á þriðja stigi fæðingar hefur
þó mun færri og vægari aukaverkanir í
för með sér en t.d. gjöf Methergins og
þó að virkni oxytocins sé e.t.v. aðeins
minni en Methergins er það kjörlyf í
öllum fæðingum þar sem ekki er
sérstök hætta á blæðingum.
Heimildir
(1) Williams Obstetrics, Eighteenth Ed.,
Cunningham, MacDonald, Gant. 1989
Bls. 195
(2) High Risk Pregnancy. Management Op-
tions. James, Steer, Weiner, Gonik. 1994
Bls. 1046
(3) Friedman EA (1954) The graphic analysis
of labour. American Joumal of Obstetrics
and Gynecology 68:1568-1571.
(4) ArulkumaranS, Yang M, Ingemarssonl,
PiaraS, Ranam SS (1989) Augmentation
of labour: Does oxytocin titration to
achieve preset active contraction area
values produce better obstetric outcome?
Asia and Oceania Journal of Obstetrics
and GYnaecology 15:333-337.
(5 Elboume, DR. Prendiville, WJ. Carroli, G.
Wood, J. McDonald, S. Prophylactic use
of oxytocin in the third stage of labour.
[Systematic Review] Cochrane Pregnancy
and Childbirth Group Cochrane Database
of Systematic Reviews. 3, 2004.
(6) Why Mothers Die 1997-1999 The Con-
fidential Enquiries into Matemal Deaths
in the United Kingdom 1997-1999,
London, RCOG Press 2001.
Framboð
_ /
til formanns LMFI
Ég heiti Guðlaug Einarsdóttir
og hef gefið kost á ntér til for-
mannsembættis í Ljósmæðra-
félaginu frá næsta vori. Ég er
35 ára gömul, hlaut B.Sc.
gráðu í hjúkrunarfræði frá
Háskóla íslands vorið 1994
og útskrifaðist sem ljósmóðir
frá sama skóla árið 1998.
Á tæplega sjö ára ljós-
móðurferli mínurn hef ég starfað á Selfossi, Landspítalanum,
Isafirði og á Akureyri, auk þess sem ég vann með sjálfstætt
starfandi ljósmæðrum í Hollandi í nokkra mánuði. Siðast
vann ég á fæðingardeild í Danmörku í hálft annað ár.
Undanfarin rúm þrjú ár höfum við ijölskylda mín búið i
Danmörku vegna byggingarfræðináms mannsins míns, Jóns
Friðriks Matthíassonar. Við eigum ijögur börn og munum við
flytja til íslands næsta vor.
Áður en ég fluttist til Danmerkur gegndi ég ritarastarfi í
Ljósmæðrafélaginu í eitt ár og fékk þá innsýn í störf stjórnar-
innar.
Eg hef mikinn áhuga á því að starfa meira fyrir félagið og
ie8gja mitt að mörkum í að gera Ljósmæðrafélagið að öflugu
stéttarfélagi sem ber hagsmuni félagsmanna iyrir brjósti,
hvort sem það eru kaup og kjör, menntunarmál eða kærumál.
Félagi sem hvetur ljósmæður til dáða.
Með kveðju,
Guðlaug Einarsdóttir
LANDSPÍTALI
HÁSKÓLASJ ÚKRAHÚS
Ljósmæður óskast
á fæðingagang
Ekki missa af auglýsingu:
Einstakt tilboð; lestu það!
Viltu láta Ijós þitt skína
leggja rækt við færni þína
vera á góðum vinnustað?
Fæðingagangur mikils metur
munir þú hefja störf í vetur.
Ljósmóðurstarf ef viltu vinna
vissulega muntu finna
frábæran vettvang fyrir þig.
Láttu nú fljótt til skarar skríða
skrifaðu umsókn innan tíðar
eða talaðu beint við mig.
Guðrún G. Eggertsdóttir yfirljósmóðir
Símar: 543-3247 / 698-9359
e-mail:gudregg@landspitali.is
Ljósmæðrablaðið nóvember 2004 15