Ljósmæðrablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 34
LANDSPÍTALI
HÁSKÓLASJ ÚKRAHÚS
Ágrip
Inngangur
Fósturgreining hefur staðið öllum konum á
Islandi til boöa frá árinu 1986. Hófst þá skimun
fyrir fósturgöllum með ómskoðun við 18-19
vikur. Frá árinu 1976 hafði öllum konum eldri
en 35 ára verið boðin legvatnsástunga. Árið
1999 hófst skimun við 11-14 vikur til að reikna
m.a. líkur á litningagöllum og hjartagöllum.
Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna
hvaða fósturgalla við erum að finna, og að
kanna hvort að tilkoma skimunar við 11-14
vikur hafi dregið úr inngripum eins og
legvatnsástungum.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturvirk, skoðaður var fjöldi
18-19 vikna ómskoðana , fjöldi fylgjusýna og
legvatnsástunga árin 1994-2003 og fjöldi 11-
14 vikna ómskoðana árin 1999-2003. Tekinn
var saman fjöldi fósturgalla sem greindir voru
með ómun og/eða litningarannsókn og útkoma
eftir fæðingu eða krufningu ef fóstureyðing var
gerð.
Ályktanir
Skimun við 11-14 vikur hefur verulega dregið
úr inngripum til greiningar litningagalla eins
og legvatnsástungum. Á móti kemur að
fylgjusýnatökum hefur aðeins fjölgað þar sem
konur sem fá vitneskju um að auknar líkur séu
á að um litningagalla geti verið að ræða velja
þessa aðferð oftar en áður var. Heildarfjöldi
inngripa er þó mun minni en áður en skimprófið
vartekið upp. Sem dæmi má nefna að á árinu
1995 misstum við 2 fóstur sem má búast við
að hafi verið heilbrigð í kjölfar ástungu en
greindum 1 litningagalla. Árið 1999 þegar 11-
14 vikna skimun hófst misstum við 1 heilbrigt
fóstur en greindum 4 litningagalla. Árið 2002
misstum við 1 heilbrigt fóstur á móti 6 greindum
litningagöllum þrátt fyrir að gera mun færri
inngrip
Heildarfjöldi kvenna í meðgöngu árið 2002
eldri en 35 ára voru um17% sem fyrir
hnakkaþykktarmælingu hefði þýtt um 700
ástungur. Því má Ijóst vera að mikil breyting
hefur átt sér stað sem hefur það I för með sér
að nú greinum við fleiri litningagalla með færri
inngripum og þar með missum við færri
heilbrigð fóstur.
Inngrip pr tilfelli Heilbrigö fóstur tapast: Greint
greint
'95 225
'99 27
'02 17
'03 8
2 : 1
1 : 4
1 : 6
1 : 12
Fósturgreining á íslandi síðastliðin 10 ár,1994-2003.
Maria J. Hreinsdóttir, Kristín Rut Haraldsdóttir, Fósturgreiningadeild Kvs.LSH.
Við 11-14 vikna skoðun er hægt að staðfesta
fjölda annara fósturgalla en litningagalla og
fósturlát greinast oft fyrr en annars hefði verið.
Vert er að hafa í huga að um skimpróf er að
ræða og greinast því ekki öll tilfelli. Frá upphafi
hnakkaþykktarmælinga hafa 3 konur sem
mælst hafa skim-neikvæðar fætt börn með
litningagalla.
Einnig má benda á að allartvíburameðgöngur
eru staðfestar snemma, betri upplýsingar fást
um fylgju og belgjaskil og er þetta mjög
mikilvægt fyrir áhættumat og eftirlit í
tvíburameðgöngum.
Eins og sést I töflu greinast flestir fósturgallar
viö 20 vikna ómun og eru þeir margskonar, allt
frá heilaleysi sem ekki er lífvænlegt I að greina
t.d. klofna vör og nýrnagalla.
Hlutverk fagfólks er að veita foreldrum ráðgjöf
stuðning og áframhaldandi eftirlit eftir því sem
við á í hverju tilfelli.
Legvatnsástunga
19 viKna fóstur
Greindir fósturgallar við 19-20 vikna skimum
50
40
30
20
10
0
IÍ1994
■ 1995
Veggspjaldið var kynnt á ráðstefnu NJF sem haldin var á Grand hótel 20.-22. maí 2004.