Ljósmæðrablaðið - 15.11.2004, Page 37
RÁÐSTEFNUR, NÁMSKEIÐ OG FUNDIR
Stjórnarfundur
Norðurlandasamtaka Ijósmæðra (NJF)
Fundurinn var haldinn í Reykjavík
dagana 19. og 20. maí í tengslum við
Norðurlandaráðstefnuna.
Fundinn sátu: Asta von Frenckell,
frá Finnlandi, forseti NJF,
Merja Kumpula frá Finnlandi.
Anne Marit Tangen og Siri Kjellberg
frá Noregi.
Anna Nordljell, Ingela Wiklund
annan daginn og Lena Mártensson
hinn, frá Svíþjóð.
Lillian Bondo og Anne Christi Eng-
vig frá Danmörku. Eyðfrið Lisberg
Jacobsen og Annika Heidal frá Fær-
eyjum og frá íslandi Ólafía M. Guð-
'Uundsdóttir og Hildur Kristjánsdóttir.
Aheyrnarfulltrúar voru Áse Romm-
etveit, frá ljósmæðradeild Hjúkrunar-
félags Noregs, Kit Hansen, frá Ljós-
niasðrafélagi Danmerkur til að kynna
verkefnið - „Going south“ og Ástþóra
Kristinsdóttir ráðstefnustjóri NJF ráð-
stefnunnar í Reykjavík.
Ritari: Björk Steindórsdóttir, LMFÍ.
Fundurinn hófst á hefðbundnum
fundarstörfum þar sem þátttakendur
Fynntu sig, kosinn var ritari, dagskrá
fundarins var samþykkt sem og fundar-
sköp. Farið var yfir fúndargerð síðasta
fundar, sem var haldinn i Bergen síðast-
liðið vor, enginn fulltrúi frá íslandi sat
þann fúnd. Asta von Frenckell forseti
flutti því næst skýrslu sína. Hildur
Kristjánsdóttir sagði frá undirbúningi
lÁIF ráðstefnunnar, góðri þátttöku og
áhuga Qölmiðla á henni. Fulltníar land-
anna lýstu ánægju sinni með dagskrá og
hlökkuðu til ráðstefnunnar.
hví næst fluttu fúlltrúar landanna
skýrslur sínar og sögðu frá helstu mál-
urn hver í sínu landi. Skýrslumar voru
'agðar frant skriflega íyrir fundinn og
spunnust nokkrar umræður um þær.
Hér á eftir er innihaldi þeirra lýst stutt-
•ega og bent á að þær liggja frammi á
skrifstofu félagsins eins og áður.
Skýrslur landanna
Eins og tíðkast hefúr er stafrófsröð
þeirra landa sem sendu inn og kynntu
skýrslur sínar látin ráða uppröðun og
Hildur Kristjánsdóttin
Ijósmóðir
varðandi ísland var skýrsla okkar í
samræmi við skýrslu stjórnar á aðal-
fúndi hér heima og vísast til hennar.
Danmörk
í Danmörku er verið að endurskoða allt
heilbrigðiskerfið. Gert er ráð fyrir að „
ömtum“ (amt) verði fækkað og ábyrgð
á verkefnum trúlega skipt milli þeirra.
Heilbrigðismálin og verkefni þess eru
mál málanna í þessari umræðu. Ljós-
mæðrafélagið hefúr verið virkt í þessari
umræðu og ítrekað bent á að forvarnar-
starf sé í hættu á því að hverfa í stóru
sjúkrahúsakerfi og að leggja eigi
áherslu á að byggja upp öflugt forvarn-
arstarf í þessari umbyltingu allri.
Mikið hefur verið rætt um skort á
ljósmæðrum og um gæði þeirrar þjón-
ustu sem ljósmæður eru að veita konum
og fjölskyldum þeirra. Heilbrigðisráðu-
neytið gerði könnun á aðstæðum og
þjónustu ljósmæðraeininga og fæðinga-
stofa og þessi skýrsla styrkir þá skoðun
Danska Ljósmæðrafélagsins að þjón-
ustunni hafi hrakað verulega.
Mikil pólitísk umræða er um þjón-
ustu ljósmæðra og hefur vinstriflokkur-
inn „Enhedslisten“ lagt fram frumvarp
til laga unt að konur eigi að eiga rétt á
því að hitta ljósmóður á meðgöngu
samkvæmt þörfúm og óskum, eiga rétt
á samfellu í þjónustu í fæðingu og rétt á
samtali við ljósmóður eftir fæðingu.
Um þetta lagafrumvarp hefur verið
mikil umræða síðastliðin tvö ár og
hefúr Ljósmæðrafélagið verið virkt í
þeirri umræðu. Þær hafa á fúndum með
Heilbrigðisráðherra landsins sýnt fram
á að konur fá þjónustu ljósmæðra í fæð-
ingu, í færri klukkustundir nú en fyrir
20 árum síðan, á sama tíma og verkefn-
um ljósmæðra hefur fjölgað.
Talsverð umræða er enn um mennt-
un ljósmæðra í Danmörku og eru nú út-
skrifaðar fleiri ljósmæður á ári en áður.
Ráðgert er að stofna þriðja ljósmæðra-
skólann í Danmörku og verður hann í
Esbjerg. Lítið fjármagn hefur fengist til
endurmenntunar ljósmæðra, þó eru
nokkrar ljósmæður í meistaranámi í há-
skólum landsins, flestar á eigin kostnað
en einstaka eru þó með launaðar stöður
við einhvern háskóla til þess að sinna
náminu.
Ljósmæðrafélagið hefur miklar
áhyggjur af aukningu á inngripum í
fæðingar. Keisaratíðni er nú 19,6 % í
landinu og skýrist aðeins að mjög litlu
leyti af óskum kvenna um keisaraskurð.
Skýringar á þessu liggja ekki fyrir og
spannst nokkur umræða um málið.
Heilbrigðisyfirvöld í landinu hafa lýst
því yfir að þau líti ekki á keisaraskurð
sem frítt val kvenna. Verkjameðferð er
einnig mikið í umræðunni og var sagt
frá lítilli rannsókn sem birtist í Danska
Læknablaðinu. Helsta niðurstaða hennar
var að Ijósmæður upplýsa konur ekki
nægjanlega unt valkosti i verkjameð-
ferð. Ljósmæðrum þykir rannsóknin lé-
leg og segja úrtak of lítið (n=50) og
benda á að víða sé verið að vinna þró-
unarverkefni um upplýst val og fleiri
valkosti í verkjameðferð í fæðingu.
Ljósmæðrafélagið hefur í samvinnu
við félag kvensjúkdóma- og fæðinga-
lækna í Danmörku sett af stað verkefn-
ið „Den gode fódsel“. Um er að ræða
rannsókn tveggja mannfræðinga á því
hvað konum finnist vera góð fæðing.
Heilbrigðisstarfsmenn í Danmörku
sitja nokkuð eftir starfsmönnum í
einkageiranum hvað varðar laun og er
það áhyggjuefni. Félagið mun semja
sjálft um eigin kjör í næstu kjarasamn-
Ljósmæðrablaðið nóvember 2004 37