Ljósmæðrablaðið - 15.11.2004, Side 40
RÁÐSTEFNUR, NÁMSKEIÐ OG FUNDIR
Norræn ráðstefna á vegum
Ljósmæðrafélags Islands
Ágætu ljósmæður.
Eins og allar vita var haldin hér á landi
í maí sl. stór ráðstefna á vegum Ljós-
nræðrafélags íslands. Nordisk Jordnror
Kongress, Mothers of Light: Gentle
warriors from past to present. Undir-
búningur ráðstefnunnar var mikill.
Strax árið 2000 skipaði þáverandi for-
maður LMFI Ástþóra Kristinsdóttir
undirbúningsnefnd fyrir ráðstefnuna. í
þeirri nefnd voru ásamt undirritaðri
Hildur Kristjánsdóttir, Ólöf Ásta Ólafs-
dóttir, Margrét Hallgrímsson, Hrefna
Einarsdóttir, Sigfríður Inga Karlsdóttir
og Sigriður Sía Jónsdóttir - síðar
bættist svo við núverandi formaður
félagsins Ólafía Margrét Guðmunds-
dóttir. Árið 2002 baðst Hrefna Einars-
dóttir undan nefndarsetu.
Fyrsti fundur nefndarinnar var hald-
inn 20. nóvember 2000. Þá var strax
farið að vinna við að finna þema fyrir
ráðstefnuna og hvenær hún skyldi
haldin þ.e. finna dagsetningu. Einnig
var farið að vinna í að finna hönnuð til
að búa til merki (logo) fyrir ráðstefn-
una. Fljótlega var ákveðið að dagarnir
skyldu vera tveir þ.e. einn og hálfur
fyrir fræðslu og einn fyrir skemmtun.
Leitað var eftir tilboðum til ráðstefnu-
skrifstofa og fyrir valinu urðu Islands-
fundir þar sem Þórunn og Unnur ráða
ríkjum.
Ákveðið var að gera ráð fyrir 3-500
gestum og settir niður dagarnir 20-22.
maí 2004. Hana nú þá var það komið og
rnikið frá! Eftir miklar vangaveltur í
nefndinni var ákveðið að tungumál
ráðstefnunnar yrði enska.
Helga Birgisdóttir ljósmóðir og lista-
kona var fengin til að taka að sér að
gera merki fyrir ráðstefnuna og gerði
hún það með sóma. Valið var merki í
samvinnu við nefndina. Merkið var
síðan notað á alla pappíra sem tengdust
ráðstefnuni á einhvern hátt. Ákveðið
var jafnframt að Helga tæki að sér að
gera hluti með merki ráðstefnunnar
sem seldir yrðu á ráðstefnunni.
Verndari ráðstefnunnar var Frú Vig'
dís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti-
Verkaskipti í nefndinni urðu þannig
að Ástþóra formaður nefndarinnar og
Hildur tóku að sér að sjá um samskipt'
við íslandsfundi. Hildur, Ólöf Ásta,
Margrét, Sigfríður Inga og Sigríður Sía
tóku að sér að vera í abstracta nefnd og
fóru þær yfir alla innsenda pappíra sem
og veggspjöld (postera). Útbúin var
heimasíða fyrir ráðstefnuna og hún var
auglýst í öllum Norðurlöndunum-
Einnig var auglýst i blöðum ljósnræðra-
40 Ljósmæðrablaðið nóvember 2004