Ljósmæðrablaðið - 15.11.2004, Síða 42
RÁÐSTEFNUR, NÁMSKEIÐ OG FUNDIR
Punl<tar frá ráðstefnu
Miðstöðvar mæðraverndar
Önnur ráðstefha Miðstöðvar mæðra-
verndar (MM) var haldin á Hótel Loft-
leiðum fostudaginn 1. október 2004.
Við á MM höfum ásett okkur að bjóða
á hveiju vori upp á símenntunarráð-
stefnu og upphaflega átti þessi ráð-
stefna því að vera síðastliðið vor. Dr.
Jason Gardosi, aðalfyrirlesari hennar
gat hins vegar ekki komið þá, og var
ráðstefnunni því frestað þar til með
„haustskipunum“.
Nálægt 150 manns sátu ráðstefnuna
og voru ljósmæður fjölmennastar, sem
ekki kemur á óvart, það eru jú ljósmæð-
ur sem bera hitann og þungann af með-
gönguvernd landsmanna. Milli fyrir-
lestranna gafst, auk fræðslu hjá sölu-
mönnum, gott tækifæri til að spjalla og
spyrja frétta því þátttakendur voru alls
staðar af landinu.
Þrjú fyrstu erindin tengdust útkomu
nýs fræðslubæklings „Matur og með-
ganga“. Hildur Harðardóttir, yfirlæknir
á LSH reið á vaðið og fjallaði um þau
vandamál sem skapast af ofþyngd (lík-
amsþyngdarstuðull (Lþ) 25.0-29.9) og
offitu (30 eða >) á lifsleiðinni sem og á
meðgöngu. Kona sem er yfir kjörþyngd
á meðgöngu er m.a. í aukinni hættu á
háþrýstingsvandamálum, pre-eclamp-
siu og meðgöngusykursýki. Þegar
kemur út í fæðinguna eru auknar líkur á
gangsetningu, bráðakeisaraskurði,
blæðingu eftir fæðingu, sýkingum,
hárri fæðingarþyngd og andvana fæð-
ingum. Hildur lagði áherslu á að upp-
lýsa þurfi verðandi mæður um áhrif
ofþyngdar/offitu á meðgöngu og fæð-
ingu og mikilvægi mataræðis og hreyf-
ingar ekki einungis á meðgöngu heldur
út allt lífið.
Anna Sigríður Ólafsdóttir matvæla -
og næringarfræðingur hélt næsta erindi.
1 því skýrði hún frá niðurstöðum rann-
sóknar á mataræði og holdafari á með-
göngu. Þessar niðurstöður eru hluti af
stærri rannsókn á mataræði og lífshátt-
um 549 íslenskra kvenna á meðgöngu.
Leiðbeiningar um þyngdaraukningu á
meðgöngu eru í nýja bæklingnum
„Matur og meðganga“. Niðurstöður
voru þær að samkvæmt leiðbeiningum
þyngjast fáar konur hæfilega. í hópi
kvenna sem eru í eða undir kjörþyngd
eru 44% sem þyngjast hæfilega en 36%
of lítið og 20% of mikið. í hópnum yfir
kjörþyngd þyngjast aðeins 34% hæfi-
lega en 55% þyngjast of mikið og 11%
of lítið. Mjög mikilvægt er að fylgjast
með þyngdaraukningu á meðgöngu,
Dr. Jason Gardosi.
ráðleggja og veita stuðning þeim kon-
um sem þurfa á að halda.
Jóhanna Skúladóttir aðstoðaryfi r-
ljósmóðir á MM var síðasti frammæl-
andi í þessum hluta ráðstefnunnar. Hún
kynnti sjálfan bæklinginn (sjá nánar hér
í blaðinu). í framhaldi af þessum fyrir-
lestrum urðu umræður um hlutverk
okkar heilbrigðisstarfsmanna i ráðgjöf
og stuðningi til kvenna á meðgöngu-
Einnig var rætt um að snemma í skóla-
kerfinu þyrfti að byrja að kenna fólki
um samsetningu fæðu, kaloríur, skamnrta
og gildi hreyfingar. Ljóst er að mikið
verk er framundan hjá okkur við að
auka þekkingu fólks á heilbrigðum lífS'
og matarvenjum.
Dr. Jason Gardosi tók síðan við-
Hann er einn af áhrifamestu fræði-
mönnum í rannsóknum á vaxtarseinkun
fósturs. Hann er yfirmaður vísinda-
rannsókna hjá West Midlands Perinatal
Institute í Bretlandi og eftir hann liggur
fjöldi fræðigreina. Hægt er að kynnast
störfum Dr.Gardosi og samstarfsmanna
hans nánar á www.perinatal.org.uk.
Fyrir hádegi fjallaði hann um grein-
ingamat á vexti fósturs, þegar grun-
semd vaknar um vaxtarseinkun
(IUGR). Kynnti hann tölvuprógram
sem hann hefur þróað þar sem einstak-
lingsbundin viðmið eru notuð til að sér-
42 Ljósmæðrablaðið nóvember 2004