Ljósmæðrablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 43
Ráðstefnugestir í kaffihléi.
sruða fyrir hverja konu vaxtamöguleika
fósturs. Aðferðina kallar hann, SGA-
cust. (= custumized = sérsniðinn). Þetta
tólvuprógram er aðgengilegt á síðunni
vvww.gestation.net Prógramið hefitr
verið þróað með vísindarannsóknum í
Bretlandi, Svíþjóð og Nýja-Sjálandi og
er frjálst til afnota.
Eftir hádegið fjallaði Dr. Gardosi
nanar um mikilvægi þess að greina
vaxtarseinkun fósturs og fjallaði um
tengsl milli vaxtarseinkunar og t.d.
fyrirburafæðinga, pre-eclampsíu, cere-
fnal palsy og andvana fæðinga. Einnig
koni fram hjá honum gildi samhæfðra
aðferða við legbotnsmælingar okkar
sem vinnum við meðgönguverndina.
Þannig fæst á legvaxtarriti áreiðanleg
mæling sem vel er hægt að byggja á -
áður en kallað er eftir nánari greininga-
mati í sónar, einkum flæðismælingum.
Miklar og líflegar umræður sköpuðust
eftir fyrirlestra Dr. Gardosi og voru ráð-
stefnugestir mjög ánægðir með framlag
hans til símenntunar okkar hér.
í síðasta hluta ráðstefnunnar voru
þrír fyrirlestrar um málefni sem eru
ofarlega á baugi í meðgönguverndinni
hér. Kristín Rut Haraldsdóttir ljósmóðir
á Fósturgreiningadeild fór yfir helstu
ábendingar um mismunandi ómskoðan-
ir á meðgöngu. Hvernig heilbrigðis-
starfsfólk skuli standa að útfyllingu
beiðna og mikilvægi þess að fræða
verðandi mæður vel um tilgang skoð-
unarinnar. Einnig kom fram i fyrirlestri
hennar að þegar gert er vaxtarmat verða
að liða tvær vikur milli sónarskoðana til
að fá marktækar mælingar.
Brjánn Á. Bjarnason, geðlæknir á
LSH ræddi í sínum fyrirlestri um nei-
kvæð áhrif geðvandamála á verðandi
móður og barn og þá einkum þung-
lyndis. Hann fjallaði síðan um stöðu
mála í dag varðandi helstu flokka lyfja
sem notaðir eru við meðferð á geðsjúk-
dómum og lagði áherslu á að mikilvægt
sé fyrir konur með geðsjúkdóma að
skipuleggja meðgöngu fyrirfram, þar
sem möguleiki er að breyta þurfi lyfj-
um.
Lokafyrirlestur ráðstefnunnar féll í
skaut Önnu Bjargar Aradóttur, hjúkrun-
arfræðings hjá landlæknisembættinu.
Hún talaði um breytingar sem orðið
hafa á félags- og heilbrigðismálum
þjóðarinnar og heilsulæsi verðandi for-
eldra. Þar er átt við hversu vel einstak-
lingnum gengur að nálgast og nýta sér
upplýsingar til að efla og viðhalda
góðri heilsu sinni. Fræðsluþarfir þarf
að miða út frá hæfni fólks til að nýta sér
upplýsingar á gagnrýninn hátt og til
lengri tíma litið - hvaða félagslegu - og
heilsufarslegu áhrifa er vænst.
Ég vil nota tækifærði hér í lok þess
yfirliti frá ráðstefnu MM og þakka
öllum þátttakendum fyrir komuna sem
og fyrirlesurum fyrir þeirra framlag.
Hlakka til að sjá ykkur öll á næstu
ráðstefnu.
Með kveðju,
Sigríður Sía Jónsdóttir
yfirljósmóðir
Miðstöð mœðraverndar.
Kæru Ijósmæður!
Alþjóðlega ljósmæðraráðstefnan (ICM)
verður haldin í Ástralíu dagana 24.-28. júlí
2005. Þar sem um langt ferðalag er að
ræða, er ekki ráð nema í tíma sé tekið.
Eélagið vill leitast við að greiða götu ljós-
^æðra sem hafa áhuga á að komast á
raðstefnuna, með því að vinna að ferða-
a®tlun og leita tilboða. Þærsem hafa áhuga
eru vinsamlegast beðnar um að setja sig í
Sarnband við skrifstofu félagsins.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er
'u'' I inna á vefsíðu ráðstefnunnar
http://midwifes2005.com/index.shtml.
Ráðstefnur á næstunni
17. - 23. mars 2005. Ráðstefna á vegum Midvvifery Today, haldin í
Eugene, Oregon í Bandaríkjunum. Vefslóð ráðstefnunnar er http://www.
midwiferytoday.com/conferences/ eugene2005/
18. -22. maí 2005. Önnur ráðstefna á vegum Midvvifery Today, haldin í
Kaupmannahöfn. Vefslóð ráðstefnunnar er http://www.midwiferytoday.
com/conferences/denmark2005/
24. -28 júlí 2005. Alþjóða Ijósmæðraráðstefnan (ICM) verður haldin í
Brisbane, Ástralíu. Vefslóð ráðstefnunnar er www.midwives2005.com/
2. - 5. júlí 2005. Ráðstefna um brjóstagjöf á vegum La Leche League
Intcrnational, haldin í Washington DC, USA. Vefslóð ráðstefnunnar er
www.lalecheleague.org.
8,- 12 júlí 2005. Ráðstefna urn brjóstagjöf á vegum ILCA, haldin í
Chicago, USA. Vefslóð ráðstefnunnar er www.ilca. org/conference/
index.php
Ljósmæðrablaðið nóvember 2004 43