Ljósmæðrablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 19
sem bamið deyr strax eftir fæðingu vegna
alvarlegs fósturgalla eins og til dæmis
gerist við heilaleysi, klofinn hrygg, eða
þegar vatnshöfuð var svo stórt að bora
varð gat á höfuð barnsins til að hleypa út
vökva svo það gæti fæðst. Stundum komu
óvænt tvö börn eða jafnvel þrjú. Við
höfum líka lært að hlusta vel á foreldr-
ana, hvað þau vilja gera með upplýsing-
amar sem hægt er að fá um ófætt bam
þeirra, lært að virða skoðanir þeirra og
reynum að koma til móts við foreldr-
ana og styðja við þá ákvörðun sem þau
kunna að taka. A sama tíma reynum við
að nýta tækifæri sem gefast til að skapa
góð og jákvæð viðhorf til þungunarinnar
og gerum okkur grein fyrir að við erum
sem fagfólk með nám í ljósmóðurfræðum
í einstakri aðstöðu til að koma að þung-
uninni með þeim hætti og styrkja þannig
fjölskylduna.
I dag vinnum við á nýrri og vel búinni
fósturgreiningardeild með fimm skoð-
unarherbergjum búnum tækjum af bestu
gerð. Ljósmæður framkvæma um það
bil 90 % af öllum skoðunum sem fram-
kvæmdar eru á fósturgreiningardeild
Kvennasviðs Landspítalans og flestar
kerfisbundnar skoðanir, en heildarfjöldi
skoðana eru um tíu þúsund á ári. Þær sjá
því um alla grunnstarfsemina, en í góðri
samvinnu við fæðingalæknanna. Svörin
sem við sendum frá okkur eru ekki
lengur handskrifuð og teiknuð fríhendis,
heldur er nú allt gert rafrænt. Myndir og
mælingar eru sendar frá ómtækjunum
yfir í tölvu í sérsniðnu skráningar- og
samskiptakerfi og niðurstöðumar síðan
prentaðar út. A deildinni er sérstakt
ráðgjafaherbergi, móttaka og biðstofa.
Aðstaða fyrir ritara og starfsfólk er orðin
eins og best verður á kosið á deild sem
þessari.
Störf ljósmæðra við fósturgreiningar
á Islandi hafa fest sig í sessi. Það er
góð viðbót við ljósmóðurstarfið að geta
sérhæft sig í fósturgreiningu og ráðgjöf
til verðandi foreldra. Þróunin í þessari
sérhæfingu hefur verið með þeim hætti
að ljósmæður hafa tileinkað sér allar
nýjungar eftir því sem þær hafa þróast,
sótt ráðstefnur og námskeið erlendis og
tekið próf með árlegri viðbót til að halda
réttindum til snemmskimunar. Þrátt fyrir
háan menntunarstaðal hefur þó ekki enn
tekist að tengja þetta sémám við háskóla-
samfélagið á íslandi og er svo jafnvel
víðar. Það er hins vegar von okkar að það
verði gert í framtíðinni og þannig verði
styrkari stoð undir því námi sem ljósmóðir
leggur á sig til að geta framkvæmt þessar
rannsóknir á tryggum grunni. Þeir sem
Tafla 3. Læknar sem starfa við
ómskoðanir á meðgöngu á íslandi:
Reynir Tómas Geirsson - Kvennadeild LSH
Hildur Harðardóttir - Kvennadeild LSH
Hulda Hjartardóttir - Kvennadeild LSH
Vilhjálmur Andrésson - Akranesi
Edward Kieman - Akranesi
Alexander Smárason - Akureyri
Anna Mýrdal Helgadóttir - Akureyri
Ragnheiður Baldursdóttir - Akureyri
Þorsteinn Þorsteinsson - Sauðárkróki
Rúnar Reynisson - Seyðisfirði
Einar E. Jónsson - Vestmannaeyjum
Konráð Lúðvíksson - Keflavík.
ætla að starfa við fósturgreiningar þurfa
að mati flestra erlendra fagaðila að hafa
að baki nám og þjálfun frá viðurkenndum
fósturgreiningardeildum. Við teljum það
ótvíræðan kost að vera ljósmóðir í þessu
fagi, því sú víðtæka menntun sem við
fáum í ljósmæðranáminu er afar gagn-
legur grunnur þegar skoða á fóstur í
móðurkviði og skilja þarfir móðurinnar
og fjölskyldu hennar. Víða framkvæma
röntgentæknar þessar skoðanir og læknar
lesa síðan úr myndunum án þess að sjá
konumar sjálfir. Heilbrigðisstarfsfólk
með þann menntunarbakgrunn vantar
mikið upp á þau tengsl sem fást úr ljós-
mæðrafaginu. Þá er enn talsvert um
að verið sé að kaupa ómskoðunartæki
án þess að þekking til að nota þau sé
fyrir hendi eða að grunnur notkunar sé
byggður á nægilegum fjölda skoðana til
að hægt sé að halda uppi fæmi. Til em
þeir sem halda að það sé nóg að stinga
tækinu í samband og þá komi allt hitt af
sjálfu sér eða vilja nýta öfluga greining-
artækni einvörðungu til skemmtunar og
til að græða fé sjálfir. Ábyrgir ómskoð-
endur um allan heim óttast þá illa grund-
uðu þróun og þær hættur á misvísandi og
röngum upplýsingum sem í því felast. Því
Tafla 4. Læknar sem hafa starfað
við ómskoðun á meðgöngu:
Jón Hannesson - Kvennadeild LSH
Kristján Baldvinsson
- Kvennadeild LSH og FSA
Guðjón Vilbergsson - Kvennadeild LSH
Þóra F. Fischer -Kvennadeild LSH
Stefán Helgason - Akranesi
Jósep Blöndal - Stykkishólmi
Sigursteinn Guðmundsson - Blönduósi
Andrés Magnússon - Sigluftrði
Jónas Franklín - Akureyri
Eggert Brekkan - Neskaupsstað
Einar Hjaltason - ísaftrði
Jón B. Stefánsson - Selfossi
teljum við nauðsynlegt að tryggja eins vel
og hægt er að þeir sem skoða kunni sitt
fag og uppfylli kröfur sem alþjóðasamtök
viðurkenna. Þar eigum við ljósmæður
að standa betur að vígi en flestir til að
tryggja fagleg vinnubrögð samfélaginu til
framdráttar.
Þakkir
Reynir Tómas Geirsson, prófessor, fyrir
yfirlestur, upplýsingar og góð ráð.
Heimildir
1. Geirsson RT. Intrauterine volume in pregnancy.
Acta Obstet Gynecol Scand 1986;Suppl 136:1-
74.
2. Geirsson RT, Sigurjónsson SV. Ómskoðanir á
íslandi. Læknablaðið 1986;72:151-153.
3. Geirsson RT, Hreinsdóttir M, Sigurbjömsdottir
GB, Persson PH. Fósturvöxtur íslenskra einbura
Læknablaðið 1990;76;405-410.
4. Jóhannsson JH. Litningarannsóknir til fóstur-
greiningar. 2001;87:451-3-7.
5. Hjartardóttir H. Legvatnsástunga og fylgjuvefs-
sýni til greiningar á litningagerð fósturs.
2001;87:447-9.
6. Geirsson RT. Leiðbeiningar um ómskoðun í
meðgöngu. Ljósmæðrablaðið 1986;64:170-
174, en einnig í Læknablaðið, Fréttabréf lækna
1987;3:12-13. og Hjúkrun 1987;63:14-16.
7. Geirsson RT. Breytingar á útreikningi
meðgöngulengdar og mat á fósturvexti.
Læknablaðið 1997;83:751-2.
8. Geirsson RT. Ómskoðun við 18-20 vikur.
Læknablaðið 2001;87:403-7.
9. Gardosi J, Geirsson RT. Routine ultrasound is
the method of choice for dating pregnancy. Brit
J Obstet Gynaecol 1998;105:933-936.
10. Geirsson RT, Weldner B-M. The routine
obstetric ultrasound. Acta Obstet Gynecol
Scand 1999;78:745-748.
11. Harðardóttir H. Þróun fósturgreiningar. Lækna-
blaðið 2001;87:399-400.
12. Harðardóttir H. Greining á fósturgöllum snemma
í meðgöngu. Læknablaðið 2001 ;87:fylgirit
42:36-8.
13. Harðardóttir H. Ómskoðun við 11-13 vikur,
hnakkaþykktarmæling og líkindamat með tilliti
til litningagalla og hjartagalla. Læknablaðið
2001;87:415-21.
14. Haraldsdóttir KR. Líkindamat með tilliti til
litningagalla fósturs eftir hnakkaþykktarmæl-
ingu. 2001;87:422-3.
15. Torfadóttir G, Jónsson JJ. Lífefnaskimun fyrir
fósturgöllum. 2001;87:431-40.
16. Hreinsdóttir M. Ráðgjöf til foreldra um ómskoð-
anir í meðgöngu. 2001;87:459-61
17. Haraldsdóttir KR. Áhugi kvenna á ómskoðun,
upplýst val og ráðgjöf. Læknablaðið
2001 ;87:íylgirit 42:44-6.
Til stóð að eftirfarandi grein birtist
í síðasta tölublaði Ljósmœðrablaðsins
en röð atvika varð til þess að það fórst
fyrir. Biður ritnefnd blaðsins höfunda
og aðra hlutaðeigendur innilegra afsök-
unar á þessu leiðu mistökum.
Ljósmæðrablaðið - Desember 2009 19