Ljósmæðrablaðið - 15.12.2009, Page 26
Stofnun fagdeildar
heimaþjónustu innan LMFÍ
Á félagsfundi LMFÍ þriðjudaginn 17.
nóvember var formlega stofnuð fagdeild
heimaþjónustu innan félagsins.
Ljósmæður sem sinna heimaþjónustu
hafa lengi haft orð á því sín á milli að það
vantaði samráðsvettvang fyrir ljósmæður
sem vinna sjálfstætt. Á öðrum starfs-
sviðum vinnum við náið með öðrum
ljósmæðrum og finnum styrk hvor hjá
annarri. Draumurinn er að í fagdeildinni
geti ljósmæður sem sinna heimafæð-
ingum og heimaþjónustu í sængurlegu
skapað sér vettvang til skoðanaskipta sem
efla okkur allar í starfi.
Á fundi vinnuhóps um heimaþjónustu
voru nú í haust lagðar fram hugmyndir að
stofnskjali sem rammar inn hlutverk og
verkefni fagdeildarinnar, en þau eru eftir-
farandi:
1. Fagleg þróunarvinna, s.s.:
- Sérhæfð viðmið um heimaþjónustu.
- Gæðavísar, skráning og fl., í samráði
við Landlæknisembættið.
- Símenntun/endurmenntun.
2. Rekstrarlegt umhverfi s.s.:
- Seta í samráðsnefnd v/samninga við
Sjúkratryggingar Islands.
- Seta í nefnd Heilbrigðisráðuneytis um
þróun barneignarþjónustu.
- Samvinna við LSH, aðra fæðing-
arstaði og heilsugæslu um tilvísunarleiðir
til og frá ljósmæðrum.
3. Samráðsvettvangur, faglegt bakland
fyrir liósmæður í einyrkjastarfsemi.
Kallað var til fundar 17. nóvember þar
sem fagdeildin var formlega stofnuð.
Boðið var upp á súpu og brauð, sem af
mætingu að dæma virtist falla vel í kramið
hjá Ijósmæðrum, en á fundinn mættu milli
40 og 50 ljósmæður. I stjóm voru kosnar
ljósmæður í vinnuhóp, þær Björk Stein-
dórsdóttir, Hildur Sigurðardóttir, María
Þórisdóttir, Jenný Árnadóttir, Jóhanna
Skúladóttir og Berglind Hálfdánsdóttir.
Að lokinni stofnun fagdeildar var rætt
um málefni heimaþjónustunnar, þar sem
sýnt þykir að breytinga sé að vænta í
rekstrarumhverfinu. Hingað til hefur
skipulag heimaþjónustu í sængurlegu
verið frekar laust í reipunum. Það kemur
m.a. fram í því að fæðingarstaðir þurfa
gjarnan að leggja talsverða vinnu í að
útvega konum ljósmóður í heimaþjón-
ustu. Þetta er sérstaklega áberandi á
sumarleyfistíma og í kringum stórhátíðir.
Landspítalinn og Sjúkratryggingar
Islands hafa á síðustu mánuðum sýnt
áhuga á að skoða aðra möguleika varð-
andi umgjörð heimaþjónustunnar. Nú
hafa nokkrar kraftmiklar, nýútskrifaðar
ljósmæður stofnað fyrirtækið Björk-
ina og eru í viðræðum við þessa aðila
um aðkomu fyrirtækisins að útfærslu og
skipulagi heimaþjónustu. Á félagsfund-
inum kynntu ljósmæður Bjarkarinnar
hugmyndir sínar og gafst fundarmönnum
tækifæri til að viðra skoðanir sínar á
þeim. Ennfremur var óskað eftir frek-
ari hugmyndum ljósmæðra á netfang
fyrirtækisins, bjorkin@bjorkin.is. Fund-
armenn lögðu til að Björkin ætti fulltrúa
í stjórn fagdeildarinnar og bættust þær
Arney Þórarinsdóttir og Hrafnhildur Hall-
dórsdóttir í hóp stjórnarkvenna.
Að fundi loknum tók við námskeið
fagdeildar um einyrkjarekstur í
heimaþjónustu þar sem m.a. var farið
yfir faglega og rekstrarlega þætti og
samskipti við stofnanir. Alls tóku 27 ljós-
mæður þátt. Stefnt er að því að endur-
taka námskeiðið reglulega, auk annarrar
sí- og endurmenntunar á vegum fagdeild-
arinnar.
F.h. stjórnarfagdeildar heimaþjónustu,
Berglind Hálfdánsdóttir
r >
Jt* Jólakveðja til Ijósmæðra
7 og fjölskyldna þeirra
Heilbrigðisstofnun
N Þingeyinga
r Jólakveðja til Ijósmæðra og fjölskyldna þeirra íslandsbanki
L J
f > -jjT* Jólakveðja til Ijósmæðra v og fjölskyldna þeirra Heilbrigðisstofnunin ísafjarðarbæ r ■> -jjT* Jólakveðja til Ijósmæðra ** og fjölskyldna þeirra Lyfjaver ehf L >
r > Jólakveðja til Ijósmæðra ^ j og fjölskyldna þeirra St. Franciscuspítalinn Stykkishólmi N J r > ♦j^-^ Jólakveðja til Ijósmæðra r og fjölskyldna þeirra Útfararstofa Kirkjugarðanna ^ J
26 Ljósmæðrablaðið - Desember 2009