Ljósmæðrablaðið - 15.12.2009, Síða 33
Húfuverkefni
Kvenfélagasambands íslands
- á 80 ára afmæli sambandins.
Kvenfélagasamband íslands mun á
árinu 2010 gefa öllum nýburum sem
fæðast á Islandi handprjónaðar húfur í
tilefni af því að þá verða 80 ár liðin frá
því að kvenfélagskonur á íslandi stofn-
uðu Kvenfélagasamband íslands, KÍ,
sem sameiginlegan vettvang sinn og
málsvara.
Kvenfélagskonur hafa bæði á vett-
vangi KI og í einstökum kvenfélögum
sl. 140 ár, beitt sér fyrir fjölmörgum
góðum verkefnum ekki síst í þágu bama
og verðandi mæðra. Það fer því vel á
því að kvenfélagskonur minnist merkra
tímamóta Kvenfélagasambandsins með
því að færa nýjurn samfélgsþegnum hlýja
húfu í upphafi lífsgöngu þeirra.
Húfuverkefnið er tvíþætt, annars vegar
er það til þess að láta gott af sér leiða og
gefa öllum bömum handprjónaða húfu
en hins vegar til að vekja athygli á kven-
félögunum í landinu og starfssemi þeirra.
Húfuverkefnið er skipulagt þannig
að kvenfélagskonur um land allt prjóna
húfumar eftir ákveðinni uppskrift sem
Kvenfélagasambandið dreifir til þeirra,
uppskriftina er einnig að finna á vefsíðu
sambandsins www.kvenfelag.is. Húfumar
prjóna þær úr Kambgami frá ístex og
leggur ístex til merkimiða sem fylgja
húfunum með upplýsingum um verk-
efnið og leiðbeiningum um meðhöndlun
húfunnar. Á miðanum kemur fram nafn
þeirrar konu sem prjónaði húfuna og
kvenfélags hennar ásamt hamingjuósum
til foreldranna frá Kvenfélagasambandi
Islands.
Kvenfélögin skipa hvert eina konu sem
húfumeistara félagsins og er það hennar
hlutverk að safna húfunum saman og
koma þeim áfram til viðkomandi héraðs-
sambands KÍ. Innan stjómar KI eru einnig
starfandi húfumeistarar sem vinna með
formönnum héraðssambandanna við að
deila húfunum til fæðingadeilda og ljós-
mæðra á stöðum þar sem tekið er á móti
bömum.
Ljósmæður á hverjum stað afhenda svo
foreldrum nýburanna húfurnar við útskrift
af fæðingardeildum og í hcimahúsum þar
sem fæðingar verða.
Nú þegar er mikill kraftur í húfuprjóni
í kvenfélögunum víðsvegar um landið
enda er það metnaðarmál að nóg sé til
af húfum strax um áramót þegar fyrstu
bömin fá afhentar húfumar sínar. Áætlað
er að allt að 5000 böm fæðist á land-
inu árið 2010 svo verkefnið er nokkuð
umsvifamikið. Konum utan kvenfélaga er
velkomið að taka þátt og er bent á að hafa
samband við kvenfélag á sínu svæði til að
gefa húfu.
Kvenfélagasamband íslands kann Ljós-
mæðrafélagi Islands bestu þakkir fyrir að
taka vel í beiðni sambandsins um að sjá
alfarið um að dreifa húfunum til nýbur-
anna.
Hildur Helga Gísladóttir
framkvæmdastj óri
Kvenfélagasambands Islands
kvenfelag @ kvenfelag.is
Ungbarnahúfa, KÍ 80 ára
Stærð: 0-3 mánaða
Efni: Kambgarn frá ístex
Prjónar: Sokkaprjónar og 40 cm
hringprjónn nr. 3
Húfan: Fitja upp 102 lykkjur á prjóna
nr. 3 og prjóna 5 umferðir perluprjón eða
garðaprjón fram og til baka.
1. umferð:
Tengja í hring og prjóna 15 lykkjur sléttar,
taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur
sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir
þá prjónuðu,
prjóna 15 lykkjur sléttar,
slá upp á prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta,
slá upp á prjóninn,
prjóna 15 lykkjur sléttar.
Endurtaka:
Taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur
sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir
þá prjónuðu,
prjóna 15 lykkjur sléttar,
slá upp á prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta,
slá upp á prjóninn,
prjóna 15 lykkjur sléttar.
Taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur
sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir
þá prjónuðu,
prjóna 15 lykkjur sléttar,
slá uppá prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta, slá
upp á prjóninn (og þá er prjónuð 2. umferð)
ef prjónað er á fjóra prjóna er auðveldast á
flytja fyrstu lykkju yfir á prjóninn, sem verið
var að prjóna og prjóna hana slétt, til að
auðvelda að prjóna úr uppsláttarbandinu í
lok 2. umferðar.
2. umferð: Prjóna slétt.
3. umferð:
Prjóna 15 lykkjur séttar (talið frá miðlykkju
sitt hvoru megin við útaukninguna),
taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur
sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir
þá prjónuðu,
prjóna 15 lykkjur sléttar,
slá uppá prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta, slá
upp á prjóninn,
prjóna 15 lykkjur sléttar.
Endurtaka:
Taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur
sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir
þá prjónuðu,
prjóna 15 lykkjur sléttar,
slá upp á prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta,
slá uppá prjóninn, prjóna 1 lykkju slétt, farið
eins að og lýst er í lok 1. umferðar.
4. umferð: Prjóna sléft.
Eftir 4 umferðir færirðu síðustu lykkju yfir
á fyrsta prjón, alltaf í munstur pr. Endurtaka
þriðju og fjórðu umferð 10 sinnum í viðbót,
alls 12 útaukningar og 12 úrtökur, samtals 24
umferðir.
Úrtaka í kollinn.
I\lú er hætt að auka út (ekki er lengur slegið
uppá prjóninn) haldið áfram að taka úr eins
og áður, en nú er það gert í hverri umferð þar
til 12 lykkjureru eftir.
Prjóna 2 lykkjur saman út umferðina, þá
eru 6 lykkjur eftir.
Slíta bandið frá skilja eftir smá spotta,
þræða spottann gegnum lykkjurnar og
ganga frá. Prjónað band í spíssin á hvorri
hlið: Taka upp 3 lykkjur, prjóna slátt (alltaf
frá sömu hlið) færa bandið aftur fyrir prjón-
inn og prjónið áfram ca 20 - 25 cm.
Ath. Þegar uppskrift byggir á aðferð-
unum að - taka úr og auka út - þarf að auka
út jafn oft og tekið er úr yfir umferðina svo
lykkjufjöldinn breytist ekki.
Ljósmæðrablaðið - Desember 2009 33