Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1935, Qupperneq 9

Freyr - 01.08.1935, Qupperneq 9
F R E Y R 23 inni. Taldi hann, eftir horfum nú, aS bygg yrði fullþroskað 5.—10. sept., en hafrar 15. —20. sept. Ef tíð verður sæmileg og engin sérstök óhöpp koma fyrir, má búast við mikilli uppskeru af korni í Reykholti í haust. Stgr. Stþ. Vanskapaðir kálfar. 1 grein í Búnaðarritinu XLIV. árgangi ritaði eg um erfðir og kynbætur búfjár, og reyndi að skýra fyrir mönnum nokkur af þeim náttúrulögmálum sem erfðir lúta. 1 Frey hefi eg skrifað um sama efni, og í út- varpið hafa þeir náttúrufræðingur Árni Friðriksson og prófessor Ágúst H. Bjarna- son flutt erindi um sama efni. Eg vona því, að almenningur sé farinn að skilja þetta nokkuð, og eg þurfi því ekki nú að hafa neinn sérstakan formála fyrir því, sem eg segi hér um, víkjandi eiginleika hjá okkar kúm, sem gerir það að verkum þegar kálf- arnir fá hann frá báðum foreldrum sínum, að þeir fæðast vanskapaðir. Það var fyrst í fyrrahaust, sem Hafliði Guðmundsson í Búð kom til mín og sagði mér frá því, að fæðst hefði í Þykkvabænum vanskapaðir kálfar. Einn hafði fæðst 1931, en um hann hafði mér ekki verið sagt af neinum. Síðan fæddust nokkrir veturinn 1933 til 1934, og enn nokkrir í vetur sem leið. Nú hefi eg rannsakað þetta, og er alveg Ijóst, að hér er um víkjandi eiginleika að ræða, sem ekki sést, hafi kálfurinn hann bara frá öðru foreldranna, en kemur fyrst í ljós, þegar kálfurinn fær hann frá báðum foreldrum. Eg fékk kálfa senda hingað til Reykja- víkur, myndaði þá og rannsakaði nokkuð í hverju vanskapnaðurinn var fólginn. — Allir eru þeir eins. Hálsinn er stuttur, og kemur það bæði af því, að hálsliðirnir eru ekki nema 5 (í stað 7) og af því, að hver hálsliður er styttri en vanalegir hálsliðir. Hryggurinn er stuttur. 1 brjóstliðina vant- ar tvo og þá skiljanlega líka tvö rifbein, en þess utan eru allir liðirnir óvenju stutt- ir. Háþorn brjósthryggjarliðanna eru mörgum sentimetrum hærri en venjulega, og því kemur mikil kryppa upp úr herð- unum. Bóghlutinn er vel vöðvafylltur og kálfurinn því sver að framan. Hinsvegar er afturhlutinn vöðvarýr. Setbeinið er óvenju- lega langt, sérstaklega er afturhluti set- beinsins langur. Krossliðirnir eru stuttir, og því verður endaþarmsopið upp úr miðjum mölunum. Rófuliðirnir eru fáir og rófan nær ekki nema niður á mitt læri. Kálfarnir hafa verið með öllum litum og ýmist naut eða kvígur. 1 Þykkvabænum hafa þessar kýr átt van- skapaða kálfa: 1. Fræna í Hábæ. M. Depla. F. Fells. 2. Dimma í Hábæ. M. Dúfa á Skinnum. F. Fells. 3. Rönd í Hábæ. M. ? F. Fells. 4. Skraut á Jaðri. M. Rós. F. Fells. 5. Hryggja á Jaðri. M. ? F. Fells. 6. Grána á Skinnum. M. Mimma. F. Fells 7. Toppa á Skinnum. M. Dúfa. F. Fells. 8. Díla á Skarði. M. Búbót. F. Fells. 9. Branda í Dísukoti. M. Díla. F. Fells. 10. Rönd í Vesturholtum. M. Huppa. F. Fells. 11. Síða í Borgartúni. M. Dúfa. F. Fells. 12. Rönd í Búð. M. Ljómalind í Oddsparti. F. Fells. Af þessari upptalningu er augljóst, að allar mæður vansköpuðu kálfanna eru syst- ur að föðurnum eða dætur Fells. Aftur eru þær ekki skildar að mæðrunum yfirleitt, þó svo sé með nokkrar þeirra. Eg hirði því ekki að rekja ættir þeirra á mæðranna hlið. Ellefu af kálfunum eiga að föður naut sem

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.