Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1935, Qupperneq 19

Freyr - 01.08.1935, Qupperneq 19
FEEY-R I 1 ÍSLENSKIR ÞJÓÐHÆTTIR er sú bók íslensk, sem tvímælalaust hefir hlotiö besta dóma. Hér fer á eftir örlítió sýnishorn af umsögnum nokkurra merkra manna: GutSm. Finiiliogason, lamlsbðkavöríSiir, segir í Morgunbla'Öinu 12. des 1934 m. a.: ,.í»etta er mesta merkisrit. Jafnskjótt og’ eg fékk þaö í hendur, fleygði eg frá mér því, sem eg var aö vinna, og settist vi‘ð aö lesa. ... Eg la^ bókina frá upphafi til enda og þótti hún stór- um skemtilegri og hollari lestur en sumar skáld- sögur, sem miki'ö er gumaö af. Síra Jónas, sá ágæti maöur, sem enginn gleymir, sem kyntist honum, segir svo skemtilega og látlaust frá. Hér er í fyrsta skipti heildaryfirlit um þjóðháttu, siðu og þjóðtrú íslendinga á síðari öldum, ritað af manni, sem var óvanalega fjölfróðui. en mundi sjálfur marga þá hluti, sem hann er að lýsa. . . . Efnið kemur því við hverjum íslend- ingi, sem ekki þykist upp úr því vaxinn að vita eitthvað í dag um það, sem gerðist í gær. Nú er alt á hverfanda hveli, líf þjóðarinnar breytist óðfluga, fornir hættir, siðir, vinnubrögð og tæki falla í gleymsku óðar en varir, með þeim mönn- um, sem þektu það alt af sjón og raun, og því er ekki seinna vænna að halda því til haga, safna því í heild og fá yfirlit yfir það“. Ólafur Lárusson, prófessor, segir í Vísi 15. des. 1934 m. a.: ,,í bók þessari fá menn mynd af lífi forfeðra sinna, eins og það var á 18. og fram yfir miðja 19. öld, mynd af lífskjörum þeirra og hugsunarhætti. Hvorttveggja þetta er nú gerbreytt frá því sem áður var. Flest af því, sem bókin segir frá, mun koma unga fólkinu ókunnuglega fyrir sjónir. En ekki trúi eg öðru, en að það lesi bókina með athygli, og þá gefur hún því betri skilning á liðnum tímum, en það hafði áður. Fyrir þeim sem eldri eru, rifjar bókin upp margt, er þeir þektu í æsku sinni, en hafa nú gleymt“. „Það er merkisatburður í þjóðlegum fræðum íslenskum, að bók þessi skuli vera kom- in út. í>ar er bók, sem lengi mun verða í góðu gildi, bók, sem á það skilið, að verða mikið lesin, bók, sem á að skipa virðingarsæti hjá íslenskunn bókamönnum, við hliðina á Þjóðsögum Jóns Árnasonar“. JÓZVAS JÓNASSON frá Hrafnagill Pálmi Hannesson, rektor Mentaskólans, segir 1 Alþýðublaöihu 17. des. 1934 m. a.: „íslenskir þjóðhættir er óvenjulega eiguleg bók, og veldur þar jöfnum höndum efni og frágangur. Eins og ráða má af nafninu, segir bókin frá lífi manna á landi hér, og má kalla að hún taki yfir tvær aldir, þá 18. og 19. En auövitaö er, að höfundurinn leggur mesta rækt við síðari hluta 19. aldar, enda fer það saman, að hann man til lians sjálfur og hefir þaðan flestar heimildir, munnlegar og skráðar. . . . Frágangur allur og útlit er einnig með ágætum, og lýsir bókin óvenjulegri vandvirkni af hálfu útgefenda. Þetta má virðast því merkilegra, þegar vitaö er, að höfundinum sjálfum auðnaðist ekki aö búa hana undir prentun. . . . Bókin er veglegur varði yfir hinn ágæta og f jölfróða mann. En bókin er meira. Hún er merkilegt heimildarrit um menningu og atvinnuhætti þjóðarinn- ar, og hygg eg fyrir víst, að margir muni leita þangað fróðleiks um liðna tíma“- Árni Pálsson, prófessor, segir í Morgunblaðinu 18. des. 1934 m. a.: ,,í>ví er miður, að ókleift er í stuttri blaðagrein að gefa almenningi nokkra hugmynd um hið fjölbreytta efni þessa rits. Það er eins og kveðja frá dauðri eða deyjandi kynslóð, sem lifði fábreyttu lífi við fátækleg efni og var fáskorðuð af ævagömlum venjuni á öllum sviðum. I>að er ekki auðvelt að hugsa sér kyrrstæðara líf heldur en þjóðlíf Islendinga á einokunaröldinni. Alt virtist óumbreytanlegt öldum saman, — búskaparhættir til sjávar og sveita, daglega lífið, húsakynnin, skemtanirnar, verslunarkúgunin, guðsoröiö o. fl. Dr. Einar Ól. Sveinsson var fenginn til þess að sjá um útgáfuna. Einar er góðvirkur maður og vandvirkur, og hefir verk síra Jónasar vissulega ekki spilst í höndum hans, þótt lítt haldi hann því á lofti sjálfur“. Sigurlíur Girðmimdsson, skólameistarl, á Akureyri, segir m. a. í Degi 3. jan. 1935: „Bókin er í því ólík ýmsum fræðibókum vorum, að hún er víða skemtileg. Höf. hefir veriö skopvís, sem ráða má af sögum hans. Kryddar hann einatt lýsingar sínar gaman- sögum og kímni. Málfar hans er lipurt og lifandi, sundurgerðar- og tildurslaust, yfir- leitt vel íslenskt“.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.