Einherji - 31.03.1970, Side 1
Auglýsing í Einher ja
skapar aukin viðskipti.
EINHERJI
Pósthólf 32 — Sauðárkróki
Blaö Framsóknarmanna í Norðurlandskjördœmi vestra.
2. tölublað. Þriðjudagur 31. marz 1970. 39. árg.
Myndavélar — Sýningarvélar
Filmur — Flassperur
Myndarainmar
Ljósmyndastofa
St. Petersen
Sauðárkróki
,Setid fyrír svörum'
Frá vinstri: Stefán Guðmundsson, Guðjón Ingimundarson, Guttormur Óskars-
son fundarstjóri, Hákon Torfason bæjarstjóri og Marteinn Friðrilcsson.
Ljósm.: St. Petersen
Framsóknarfélag Sauðár-
króks hefur undanfarna
vetur haidið fundi mánaðar-
lega. Á þessum fundum
hafa aðallega verið rædd
bæjanmál, sem efst hafa
verið á baugi hverju sinni.
Mánudaginn 16. febr. s.l. var
einn slíkur fundur haldinn
í Framsóknarhúsinu á Sauð-
árkróki. Þessi fundur var
með nokkuð öðru sniði en
venjulega. Framsöguræður
voru ekki fluttar, hinsvegar
sátu fyrir svörum bæjar-
stjórinn Hákon Torfason og
bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins: Guðjón Ingimund-
arson, Marteinn Friðriksson
og Stefán Guðmundsson.
Fjölmargir fundarmenn
beindu fyrirspurnum sínum
til bæjarfullltrúanna og bæj-
arstjórans og svöruðu þeir
greiðlega öllu, sem spurt
var Um. Komu fram spurn-
ingar um nýjar iðngreinar,
skóla og íþróttamál, skipu-
lags- og byggingamál, hita-
veituframkvæmdir og efna-
hagsmál bæjarins o. fl.
Þá kom fram á fundin-
um, að hið unga Útgerðar-
félag Skagfirðinga hefur á-
formað að láta smíða 500
—600 tonna skuttogara,
þegar nauðsynleg leyfi
stjórnarvalda eru fengir..
Útgerðairfélagssltjórnin hefur
þegar látið gera teikningar
af skipinu. Þá hafa forstöðu
menn Útgerðarfélag Akur-
eyringa og Útgerðarfélags á
Neskaupstað ákveðið að
byggja skip eftir sömu
teikningu. Mun þvi smíði
þriggja skipa af sömu stærð
verða boðin út samtímis.
Áætlað verð hvers skips er
um 70 millj. króna.
Fundarstjóri var Guittorm-
ur Óskarsson, en fundarrit-
ari Magnús Sigurjónsson.
Skíðamót íslands 1970
Trausti Sveinsson
Siglufirði, skírdag.
Skíðamót Islands stendur
nú yfir hér í Siglufirði. Mót-
ið átti að byrja á þriðjudag,
en vegna slæmra veðurskil-
yrða varð að fresta því til
miðvikudags. 1 gær, mið-
vikudag, fór fram 15 km
ganga karla og 10 km ganga
17—19 ára. Keppendur í 15
km voru 14, en í 10 km 9.
Úrsht urðu þessi:
15 km ganga:
1. Trausti Sveinsson F 49,56
2. Frímann Ásm.son F 53,34
3. Kristján R. Guðm. I 53,40
4. Halldór Matth.son A 53,58
10 km ganga 17—19 ára .
1. Magnús Eiríksson F 35,20
2. Sigurður Steingr.s S 35,35
3. Sigurður Gunnars. 1 36,28
1 dag fór fram boðganga
4x10 km. Þrjár sveitir voru
sikráðar til leiks, Fljótamenn
Siglfirðingar og Isfirðingar.
Sveit F. varð fyrst, Siglfirð-
ingar nr. 2 og ísfirðingar
nr. 3.
Þá var einnig keppt í stór-
svigi karla og kvenna í dag.
Barbara Geirsdóttir A sigr-
aði í kvennaflokki og Guðm.
Frímannsson A í karlaflokki.
Gert er ráð fyrir að stökk
og svigkeppni fari fram á
laugardag og 30 km ganga
á sunnudag.
Fljótamenn sigruðu í öh-
um flokkum í göngu, sem
búnir eru og mjög líklegt að
þeir sigri líka í 30 km göng-
unni. Er frammisítaða þeirra
mjög glæsileg og næstum
furðulegt, að lítið sveitar-
félag skuli eiga 8 eða 9
keppnismönnum í göngu á
að skipa.
Trausti Sveinsson hefur
þegar orðið fslandsmeistari
í göngu þrisvar í röð.
Báða dagana var óhag-
stætt veður, einkum á mið-
vikudag. Snjór er nægur, en
samgöngur mjög erfiðar.
Móltsstjóri er Helgi Sveinsson
Fyrirspurn um sjónvarpsmál og till.
til þingsál. um flugvöll í Siglufirði
Einherja hefur borizt tilL
birtingar fpá Jóni Kjartans-
syni alþm. um flugvallargerð
á Siglufirði. Einnig fyrir-
spum til menntamálaráðh.
um sjónvarpsmál Fljóta-
manna. Varðandi sjónvarps-
málið átti Einherji stutt sím
tal við skólastjórann á Barði
Svavar Jónsson og spurði
hann frétta um þetta mál.
Sagði hann, að sjónvarp sæ-
ist ekki í Holtshreppi, Haga-
neshreppi og bæjunum undir
fjöllunum í Sléttuhlíð. Hafði
fólk á þessum slóðum feng-
ið sér sjónvarp í þeirri trú,
að geta fylgzt með dags'krá
þess, eins og aðrir Skagfirð-
ingar, en sér nú ekkert
nema svartan skerminn.
Ekki er að efa, að mennta
málaráðheria muni bæta úr
þessum aðstöðumun, svipað
og hann er vanur að gera,
fljótt og vel, bæði þar og
annars sltaðar, þar sem eins
er ástatt!
Fyrirsp. Jóns til mennta-
málaráðherra er þannig:
„Hvenær má vænta þess, að
sjónvarp nái til austustu
hreppa Skagafjarðarsýsiu,
þannig að gagn sé að?“
Þingsályktunarltill. Jóns um
framhaldsframkvæmdir við
flugvöll 1 Siglufirði er svo
hljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórinni að hlutast til
um, að flugmálastjórnin láti
ljúka hið fyrsta gerð flug-
vallar 1 Siglufirði."
I
Greinargerð :
Fyrir rúmum áratug hófst gerð
flugvaUar í Siglufirði. Fram-
kvæmdir miðuðust fyrst í stað
við lítinn fiugvöU, er aðeins væri
nothæfur fyrir sjúkraflugvélar,
en gerð slíkra vaUa hófst J>á viða
um landið.
Bæjarstjóm Siglufjarðar vann
að því á þessum árum, að at-
lmgun færi fram á gerð stærri
flugvallar austan fjarðarins, og
á Alþingi var samþykkt 5. apríl
19G0 svo hljóðandi þingsályktim:
„Alþingi ályktar að fela rílcis-
stjórninni að láta fara fram at-
hugun á, með hvaða hætti fiug-
samgöngur verða helzt tryggðar
við Siglufjörð. Skal athugun þess-
ari vera lokið, áður en reglulegt
Alþingl 1960 kemur saman.“
Niðurstaða rannsókna þeirra
sérfræðinga, er mn mál þetta
fjöUuðu, leiddi í Ijós, að unnt
væri að hyggja á þessu svæði
flugvöU að stærð ca. 1300 m á
lengd og 50 m á breidd (ca.
6500 m«).
Á árinu 1962 hófst vtnna við
framkvæmd þessa flugvaUar.
Unnið var fyrir ca. 250.000,00 kr.
Áætlað var að vinna að þessu
mannvirki í áföngum, en stefnt
var. að því, að flugvöUurinn yrði
eigi mimii en að framan greinii-,
svo að stærri flugvélar gætu at-
hafnað sig þar.
Þegar þetta er ritað, eru Uðin
8 ár, frá því að skipulagðar fram-
kvæmdir hófust við þessa flug-
vallargerð, en þrátt fyrir það er
lengd vaUarins í dag aðeins helm-
ingur af því, sem fyrirhugað var,
og er því aðeins nothæfur fyrir
litlar flugvélar.
Á sama tíma og þessi mUdi
dráttur hefur orðið á framkvæmd
um á SiglufjarðarflugveUi hafa
flugveUir á öðrum stöðum verið
stækkaðir og Iagfærðir og ný-
byggingar reistar og þær lag-
færðar sem fyrir voru. — Um
þetta er gott eitt að segja. En
þá er ekki óeðlilegt, að þess só
Framhald á 7. síðu
Efnileg íþróttakona
Edda Lúðvíksdóttir.
Ljósm.: St. Petersen
Á innanhússmóti í frjáls-
um íþróttum, er haldið var
á Sauðárkróki fyrir skömmu
vann hin unga og efnilega
íþróttakona, Edda Lúðviks-
dóttir frá Sauðárkróki það
afrek að stökkva 1,55 m. í
hástökki, sem er nýtt ísl.
met. Garnla mdtið átti Anna
L. Gunnarsdóttir, Reykjavík
og var það 1,53 m. Edda fór
methæðina léttilega í fyrstu
umferð og má því búast við
enn betri árangri áður en
langt um líður.
Á meistaramóti Islands,
er fram fór í Reykjavík 7.
—8. marz, bætti Anna Lilja
meltið aftur og stökk 1.56
m. Edda varð nr. 2, stökk
1,53. Edda sigraði aftur á
móti í 40 m. hlaupi á smá-
móti.