Einherji - 12.05.1970, Blaðsíða 2
2
EINHERJI
Þriðjudagur 12. maí 1970
SIGLUFJÖRÐUR Á
FRAMTÍÐARMÖGULEIKA
Framhald af 1. síðu
í húfi hvernig til tekst. Að
sjálfsögðu er gott að geta
byggt á reynslu þeirra
manna, sem starfað hafa að
málefnum Siglufjarðar um
langt skeið, og þar höfum við
efstu menn B-listans góða
aðstöðu nú.
— Hvað telur þú vera
stærstu verkefnin, sem leysa
þarf á næsta kjörtímabili ?
— Hvert það byggðarlag,
sem getur vænzt þess, að
eiga þróunar- og framtíðar-
möguleika, verður að byggja
upp atvinnulífið þannig, að
tryggt sé að íbúarnir hafi
næga atvinnu. Þá verður
líka bæjarfélagið þess megn-
ugt að geta sinnt þeirri fyr-
irgreiðslu og verkefnum,
sem framtíðin krefst. Tak-
ist þetta ekki, er hætt við,
að viðkomandi staðir verði
ekki samkeppnisfærir að
skapa sínum íbúum örugga
framtíð. í þessu sambandi
má einnig benda á rnennt-
unaraðstöðu og ýmsa félags-
lega aðstöðu, sem nútíma
þjóðfélag krefst og yngri
kynslóðin þarf að fá í sínu
byggðarlagi, til þess að geta
gegnt því hlutverki, sem
framtíðin leggur henni á
herðar.
— Nú kemur það í þinn
hlut, að vinna að því, ásamt
öðrum er B-listinn fær
kjöma, að í bæjarstjórn
Siglufjarðar náist sem víð-
tækast samstarf bæjarfull-
trúa um ráðningu bæjar-
stjóra og framkvæmd þeirra
mála, er varða Siglufjörð.
— Framsóknarmenn í Siglu-
firði hafa alltaf fylgt þeirri
stefnu og unnið að því eftir
getu, að sem víðtækast sam-
starf tækist innan bæjar-
stjórnar um ráðningu bæj-
arstjóra og samstaða um
framgang málefna Siglu-
fjarðar. En þetta hefur þvi
miður oft gengið erfiðlega
og finnst mér að aðrir aðil-
ar hafi stundum látið póli-
tísk sjónarmið ráða of miklu
um framgang mála.
. .— Jú, mér er vel kunnugt
um það að Framsóknar-
menn í bæjarstjórn Siglu-
f jarðar bafa unnið að þessu
og eru tilraunir þeirra, eftir
síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar gleggsta dæmið þar
um. Ef nú B-listinn fær 3
fulltrúa kjörna, verður ekki
af öðrum hægt að ganga
fram hjá þessu hlutverki
okkar.
Mér sýnist að kosning
7—8 bæjarfulltrúa liggi
nokkuð ljós fyrir.
Spurningin er hver af list-
unum fær þriðja manninn
kiörinn? Fái B-listinn þriðja
manninn verður aðstaða okk
ar svo sterk, að þessi sjón-
armið hljóta að verða ofan
á, og við ásamt öðrum
standa að ráðningu bæjar-
stjóra og sem víðtækustu
samstarfi um framgang Sigl-
firzkra málefna.
Kona Boga er Helga Ste-
fánsdóttir og eiga þau tvö
börn.
Við þökkum Boga spjallið.
J. Þ.
Lausblaðabækur frá Múlalundi úr lituðu
plasti fyrirliggjandi í miklu úrvali.
Margar gerðir, margar stærðir, margir
litir.
Ennfremur vimiubækur fyrir skóla, renni-
lása möppur, seðlaveski, og plastkápur
fyrir símaskrár.
Ur glæru plasti: Mikið úrval af pokum
og blöðum í allar algengari stærðir laus-
blaðabóka, einnig A-4, A-5, kvartó og
folíó möppur og hulstur fyrir skólabækur.
Múlalunjdur
RANDERS
STÁLVÍRAR
Landsþekkt gœðavara
Snurpuvírar
Trollvíiar
Poly-vírar
ávallt fynrliggjandi
Krlstján Ó. Skagfjörð h.f.
Tryggvagötu 4, Reykjavík — Sími 24120.