Einherji - 30.11.1970, Page 7
Mánudagur 30. nóvember 1970.
EINHERJI
7
VÍSNAÞÁTTUR
Framhald af 3. síðu
Á haustkvöldi, á heiðum
uppi, kveður Sigurjón:
Látiun vaka vor í sálum
við þinn flöskuháls.
Heyrist enn í heiðarskálum
hljómur stefjamáls.
Veturinn ber að dyrum.
Þormóður Pálsson frá Njáls-
stöðum segir í sinni alkunnu
vísu:
Hrannir æða, fannir fjúka.
Foldar næðir bleika kinn.
Fjöllin klæðir mjöllin mjúka.
Myrkrið flæðir til mín inn.
I fásinni vetrarins, eftir
undangengna ótíð, orkti Sig-
urður Þorfinnsson á Skeggs-
stöðum:
Á ferðinni um dalinn sést
engin sál.
I sannleik er fátt til að
hressa.
Ekkert er skrafað um
Pétur né Pál,
og presturinn hættur að
messa.
Þá brá til betri veðráttu,
og lifnaði yfir mannskapn-
um, og Sigurður kvað:
Kórarnir syngja sín
kröftugu ljóð
við klerkinn og söfnuðinn
valinn.
Sólin fer hækkandi á
himinsins slóð,
og Hjörleifur kominn í
dalinn.
Margir líta til liðins tíma.
Þorsteinn Magnússon, frá
Gilhaga, kvað um roskinn
hónda:
1 fari þessa ferðamanns
fann ég gömlu árin.
Fornleg voru fötin hans,
en fallega hirtur klárinn.
Afstaðan til lífsins og til-
verunnar er óþrotlegt yrkis-
efni. 1 fjórum hendingum
segir prófessor Sigurður
Nordal djúpstæðan sannleik:
Yfir flúðir auðnu og meins
elfur lífsins streymir.
Sjaldan verður ósinn eins
og uppsprettima dreymir.
Að lokum skulum við hafa
í huga vamaðarorð Guð-
mundar skálds Böðvarsson-
ar. Þau em sígild, en höfða
þó einkum til samtíðarinn-
ar:
Grimmur heimur hlær
og lokkar
heiðar feimin álf, —
en hver mun geyma arfinn
okkar
ef við gleymum sjálf?
P. Sig.
Jólahlað
.,Einherja“
kemur út um miðjan des.
Auglýsingar og annað eíni
þarf að berast blaðinu
fyrstu daga í desember.
w
Hafið áhrif á upphæð útsvars
yðar 1971.
AÐEJNS þau útsvör, álögð 1970, sem verða að
fullu greidd fyrir áramót n. k., fást dregin frá á-
lagningarskyldum tekjum viðkomenda á næsta ári.
Skilvísi kemur því fram í verulega lægra útsvari,
en vanskil í hærra útsvari yðar á næsta ári. Það
er því beggja hagur, bæjarsjóðs og yðar, að þér
séuð skuldlaus við kaupstaðinn um áramót. Með
því móti hafið þér áhrif á upphæð væntanlegs út-
svars yðar til lækkunar.
GERIÐ ÞVÍ SKIL á útsvari yðar sem allra fyrst.
Siglufirði, 10. nóvember 1970.
Bæjarstjórinn í Siglufirði
I
\ J
Ný markaskrá
Samkvæmt lögum verður gefin út markaskrá
fyrir Eyjafjarðarsýslu, Akureyri, Ólafsfjörð og
Siglufjörð árið 1971. Handrit af skránni þarf að
vera fullbúið fyrir miðjan desember n. k.
Hólmsteinn Þórarinsson annast söfnun marka
í Siglufjarðarkaupstað og gerð Siglufjarðarkafla
markaskrárinnar. Gjald fyrir hvert mark er kr.
150,00 og fyrir brennimark kr. 100,00, sem greiða
ber til Hólmsteins nú þegar. Markeigendur þurfa
að tilkynna mörk sín, ný og gömul, til Hólmsteins,
fyrir 10. desember n. k.
Þetta tilkynnist hér með viðkomendum.
Siglufirði, 10. nóvember 1970.
Bæjarstjórinn í Siglufirði
Áskorun til skattgreiðenda
Lögtök eru byrjuð fyrir ógreiddum sköttum árs-
ins 1970, svo og sköttum eldri ára.
Er hér með skorað á alla skattgreiðendur í Siglu-
firði að greiða skatta sína nú þegar til skrifstofu
embættisins, svo komizt verði hjá aukakostnaði og
óþægindum þeim, sem af lögtaki leiðir.
Skrifstofu Siglufjarðar, 19. nóvember 1970.
ELlAS I. ELÍASSON
Kaupmenn — Kaupfélög
Vinnuvettlingar, 2 tegundir
Gólfklútar, 3 tegundir
Borðklútar
Bónklútar
Diskaþurrkumar
margeftirspurðu komnar aftur.
Hvergi meira úrval.
Dúkaverksmiðjan h.f.
AKUREYRI — SlMI (96)11508
TILKYNNING
um framlagningu fasteignamats
Hinn 22. október 1970 var lagt fram fasteigna-
mat samkvæmt lögum nr. 28, 29. apríl 1963, um
fasteignamat og fasteignaskráningu og reglugerð
nr. 301 10 desember 1969, um fasteignamat og fast-
eignaskráningu.
Fasteignamatið liggur frammi í einn mánuð, og
er kærufrestur til fasteignamatsnefnda fimm vikur
frá framlagningardegi talið. Eyðublöð fyrir kærur
er unnt að fá á þeim stöðum, þar sem fasteigna-
matið liggur frammi.
Fi*amlagningarstaðir í Norðurlandskjördæmi vestra
eru þessir:
Siglufjörður:
Skrifstofa byggingarfulltrúa Aðalgötu 34.
Sauðárkrókur:
Bæjarþingsalurinn.
I V.-Húnavatnssýslu:
Staðarhreppur, þóroddsstaðir.
Fremri Torfustaðahreppur, Barkarstaðir.
Ytri-Torfustaðahreppur: Staðarbakki.
Hvammst.hreppur: Verzl. Sig. Pálmasonar.
Kirkjuhvammshreppur: Skrifstofa Kaup-
félags V.-Húnvetninga, Hvammstanga.
Þverárhreppur: Ösar.
Þorkelshólshreppur: Víðidalstunga.
I A.-Húnavatnssýslu:
Áshreppnr: Haukagil.
Sveinsstaðahreppur: Sveinsstaðir.
Torfalækjarhreppur: Kagaðarhóll.
Blönduóshreppur: Skrifstofa sveitarstjóra.
Svínavatnshreppur: Höllustaðir.
Bólstaðarhlíðarhreppur: Húnaver.
Engihlíðarhreppur: Holtastaðir.
Vindhælishreppur: Syðri-ey.
Höfðahreppur: Skagavegur 7 (hjá Ingvari
Jónssyni, hreppstjóra).
Skagahreppnr: Örlygsstaðir.
I Skagafjarðarsýslu:
Skefilsstaðahreppur: Keta.
Skarðshreppur: Skarð.
Staðarhreppur: Reynisstaður.
Seyluhreppur: Vellir.
Lýtingsstaðahreppur: Varmilækur.
Akrahreppur: Stóru-Akrar.
Rípurhreppur: Ríp.
Viðvíkurhreppur: Brimnes.
Hólahreppur: Sleitustaðir.
Hofshreppur: Bær.
Hofsóshreppur: Austurgata 3, Hofsósi.
(Hjá Garðari Jónssyni, hreppstjóra).
Fellshreppur: Glæsibær.
Haganeshreppur: Yzti-Mór.
Holtshreppur: Bergland.
I^<l
lkÆ^> j
\ «íí,-<J
Stjúrn verkamannabústaða
í Siglnfiröi auglýsir:
Stjórnin hefur ákveðið að kanna þörf á byggingn
íbúðarhúsnæðis í Siglufjarðarkaupstað, með tilliti
til væntanlegra íbúðarbygginga á vegum Húsnæðis-
málstofnunar ríkisins.— Gert er ráð fyrir að byggð
verði raðhús eða einbýlishús, ef næg þátttaka fæst
tií hér í bæmun. — Lán opinberra sjóða og aðila
nemur allt að 80% byggingarkostnaðar.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu bæjarstjórans
í Siglufirði fyrir 15. desember n. k.
Nánari upplýsingar gefa: Jóhann G. Möller og
Gunnar Rafn Sigurbjömsson.
Siglufirði, 24. nóvember 1970.
Stjórn verkamannabústaða í Siglufirði