Einherji - 01.02.1997, Side 3
FEBRUAR 1997
EINHERJI
SAUÐARKRÓKUR
l «1 -fólk f atvinnusköpun
® Merkisbræður
Á dögunum voru rit-
stjórar Einherja á ferð um
Sauðárkrók og litu við í
nokkrum fyrirtækjum.
Sum þeirra eru gróin
fyrirtæki en önnur hafa
starfað um skamma hríð.
Fyrst var skoðuð aðstaða
hjá Merkisbræðrum.
Merkisbræður sf, er nafn á
þjónustufyrirtæki sem er
eina sinnar tegundar á
Norðurlandi vestra. Þeir
bræður Jóhann og Margeir
Friðrikssynir settu á stofn
Merkisbræður 1993 og keyp-
tu sér þann tölvu- og tækja-
búnað sem til þurfti fyrir
merkingar með límstafi
og/eða skreytingum ýmis-
konar.
Er merkingarnar tölvunnar
og hafa þeir margar gerðir af
litum, letri og stöfum í öllum
stærðum. Einnig geta þeir
skannað inn hvaða merki
sem er. Mikið er beðið um
merkingar innan á glugga og
er þá notuð spegilskrift einn-
ig skreyta þeir bíla. Merkis-
bræður útbúa auglýsinga-
skilti bæði stór og smá og
skera þá út limstafi og
skraut. Húsnæðið sem
Sf.
Merkisbræður hafa til
umráða fyrir fyrirtækið er
aðeins eitt herbergi en þar
rúmast þau tæki sem til
þurfa. Jóhann sagði í samtali
við Einherja að þeir hefðu
lítið auglýst sig utan
Sauðárkróks en þeir gætu
auðveldlega þjónað stærra
svæði. Þeir hafa í mörgum
tilfellum gengið frá uppsetn-
ingu merkjanna sjálfir hvort
sem um húsamerkingar eða
bílmerkingar væri að ræða.
Bræðumir Margeir og Jóhann
Mikligarður.
Ný gistiaðstaða
Mikligarður við Kirkjutorg
Hjónin Ingólfur Guðmundsson og Björk
Sverrissdóttir fluttu utan af Strönd sl. sumar og
keyptu húsið Miklagarð. Þau innréttuðu stóra
íbúð á mið hæðinni og eru að setja upp gisti-
aðstöðu á neðstu hæð hússins. Þar verða 4 her-
bergi með snyrtingu og eldunaraðstöðu. Þetta er
stórt hús i hjarta bæjarins og yfirleitt gengur það
undir nafninu Rússland, sem kom til af því, að
þegar húsið var byggt var yfirsmiðurinn
yfirlýstur kommúnisti, og var reyndar fyrsti
sósíalistinn sem kosinn var í hreppsnefhd á
íslandi.
Ingólfur og Björk eru búin að taka allt húsið
í gegn. og eru að leggja lokahönd á kjallarann
þar sem gistiaðstaðan verður. Allt var endumý-
jað; þak, gluggar, lagnir og allt húsið einangrað
þar sem húsið var klætt áður klætt með panel
og einangrað með spæni. Verður gistiaðstaðan
hin glæsilegasta með sér inngangi.
Mjög hefur vantað gistiaðstöðu á Króknum í
veturþegarHótel Mælifell leigði gistiaðstöðuna
til Fjölbrautarskólans. Verður því þessi aðstaða
vafalaust kærkomin fyrir ferðafólk og þá sem
leggja leið sína á Sauðárkrók í vetur.
BÆNDUR - HESTAMENN
Enn er hægt aö tryggja sér grasköggla á lækkuöu veröi!
Um er aö ræöa takmarkaö magn-
Helstu útsölustaðir d Norðurlandi vestra:
§ Kaupfélug V - Húnvetninga, Hvammstanga
& Kaupfélag Húnvatninga Btönduósi
5Fóðurvörudeild KS Sauðárkróki
Nánari upplýsingar í síma 453 8233
WMDQröQona