Einherji


Einherji - 01.02.1997, Blaðsíða 5

Einherji - 01.02.1997, Blaðsíða 5
EINHERJI FEBRÚAR 1997 5 KÚNST-HANS & CRÉTA Sigrún Hrönn Pálmadóttir i Kúnst Sigrún Hrönn Pálmadóttir hársnyrtimeistari, er mikil atorkukona. Hún rekur Hársnyrtistofuna Kúnst ásamt bamafataversluninni Hans og Grétu. Fyrir 6 ámm keypti hún hús- næðið að Aðalgötu 9 og setti þar upp Hársnyrtistofuna Kúnst. Með Hrönn vinnur Hreína Bjamadóttir hársnyrti- meistari. Þær bjóða upp á alla almenna hársnyrtiþjónustu ásamt Sebastían og SP hárvörum frá Wella. Hrönn setti upp bamafa- taverslunina Hans og Grétu í öðrum hluta hússins á Aðalgötunni haustið 1994. Kom fljótlega í ljós að hús- næðið var of lítið og hefúr hún flutt verslunina að Kaup- vangstorgi 1, þar sem Verslunin Hegri var áður. I Hans og Grétu fást föt fyrir böm á aldrinum 0 -14 ára og flytur hún mestan hluta fatn- aðarins inn sjálf ffá Hollandi og Bretlandi, en þannig getur hún boðið upp á betra verð. Hrönn leggur mikið upp úr að vera með góðan fatnað frá Amigo, Aribas og fleirum. EFNALAUC SAUÐÁRKRÓKS Cúðrún K. Kristófersdóttir í maí sl. urðu eigendaskipti að Efnalaug Sauðárkróks, þegar Guðrún K. Kristó- fersdóttir og Guðmundur Óli Pálsson festu kaup á henni. Áður hafði Pétur Valde- marsson í Versluninni Hegra rekið Efnalaugina um árabil. Samhliða efnalauginni er rekið þvottahús. Þjónustusvæðið er fyrst og fremst Sauðárkrókur og nærsveitir einnig hefur talsvert borist af fatnaði ffá Hvammstanga og Vestur- Húnavatnssýslu. Á Hvamms- tanga annast Verslunin Mirra afgreiðsluna, en Vöruflutn- ingar Þóris á Blönduósi sjá um flutninginn. „Nokkrar endurbætur hafa átt sér stað á búnaði Efnalaug- arinnar að undanfömu,“ sagði Guðmundur þegar Einheiji leit við í Efnalauginni á dögunum. „Fjármagnskostnaðurinn er mikill, en ég er þó bjartsýnn á reksturinn. Ég er í góðri stöðu sem „léttadrengur" hjá konu minni, hún sér um þvottinn og fatahreinsunina annars vinna þær tvær héma og leggjum áherslu á góða vinnu og vand- aðan ffágang. Ég sé hins vegar um bókhaldið, innkaup og annað smávegis í fritíma minum. Yfir sumarmánuðina er talsvert meira að gera, þar sem Efnalaugin hefúr séð um þvotta fyrir sumarhótelið Áningu.“ Úr pallatima hjá Friðu LÍKAMSRÆKTARSTÖDIN HREYFING Það er alltaf viss spenna sem hrislast um líkamann þegar maður kemur inn í líkamsrækt- arstöð og horfir yfir fúllan salinn af fólki sem hamast í tækjum og tólum, þrammar á pöllunum eða stígur létt spor í fitubrennslutímum. Maður flýtir sér ósjálffátt að fá að taka þátt, vera líka einn af þessum sem fer með betri lifssýn heim, mikla vellíðan og fúllur af bjartsýni. Þetta á sannarlega við í Hreyfingu þar sem Elías Guð- mundsson og Lýður Skarp- héðinsson halda utan um rekst- urinn. Hreyfing hefúr verið starfrækt síðan í september 1994 og kom fljótlega í ljós að húsnæðið var of lítið og effir veturinn var það stækkað. Þeir félagar eru búnir að setja upp vel útbúinn tækjasal til styrktarþjálfúnar og á efri hæðinni er eróbikk salur sem rúmar 30 manns, ljósabekkir og búningsaðstöður með heit- um pottum. Auk Lýðs sjá íþróttakennararnir Guðbjörg og Fríða um eróbikktímana. Mikil og góð aðsókn hefúr verið í Hreyfingu í vetur og eru m.a. tvö fitubrennslunámskeið í gangi núna bæði hjá körlum og konum og er sérstaklega mikil aukning í karlatímana eftir áramót. Hreyfing er opin alla virka daga frá 10-22 og 16 á laugardögum og er boðið upp á bamapössun alla virka daga frá 17-20. Hreyfing rekur einnig ágætis verslun með íþróttafatnað og skó í öllum helstu vöru- merkjunum einnig Moon- goose fjallahjól. í Hreyfingu er greinilegur metnaður í fyrirrúmi. Að sögn Lýðs og Elíasar eru fengnir gestakennarar, fyrirlesarar með ffæðslueftii auk all þess efnis sem þau gera sjálf til að fræða og innleiða betri lifsstíl Skagfirðinga, m.a. vom Lýður og Guðbjörg Finnsdóttir íþróttakennari við Stúdíó Ágústu og Hrafns en hún hefúr tvisvar verið kosin kennari ársins af fólkinu sem sækir stöðina, með fyrirlestur fyrir skömmu og var aðsókn góð. Þá hafa þau haldið sýningar og tvisvar hafa komið verðlaun á Krókinn eftir keppni i Freestile dönsum þar sem stelpumar æfðu í Hreyfingu. OSi CM CÚMMÍMÓTUN Sigurjón Jónsson að störfum við gúmmímótun Einherji náði tali af Sigur- jóni Jónssyni eiganda GM Gúmmímótunar en það fyrirtæki hefur að mottói sínu „Betri fætur - Betra líf á mottum frá okkur." GM Gúmmímótun fram- leiðir mottur fyrir vinnustaði og einstaklinga s.s. útidyra- mottur, mottur í hesthús, i hestakerrur og gripaflutn- ingabíla, allskonar mottur í kerrur og pallbíla. Einnig framleiða þau aurhlífar á flestar gerðir bíla. Bryndís Kristmundsdóttir eiginkona Siguijóns starfar í gúmmíinu flesta daga og Sigurjón í aukavinnu. „Vorið 1994 keyptum við þetta hús. Þá var farið að leita að einhveiju til að starfrækja í því og þetta varð ofan á,“segir Siguijón. Við keyptum þessi tæki úr Hverageiði haustið '94. Hráefnið fáum við frá Hollandi, Þýskalandi og Danmörku þá er sett í vél sem mótar mottuna við hita og pressun. Framleiðslan hefúr selst jafiióðum. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna selur mottur frá okkur í sín frystihús. Bílanaust selur aurhlífar ffá okkur ásamt fleiri fyrirtækjum. Sjálf höfúm við selt mottur í hesthús eftir máli,“ segir Siguijón að lokum.

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.