Einherji - 01.02.1997, Síða 6
EINHERJI
FEBRUAR 1997
Cagnleg ráðstefna um atvinnu-
mál á Norðurlandi vestra
Frá ráðstefnunni
SSNV, INVEST og félags-
málaráðuneytið stóðu fyrir
ráðstefnu um atvinnumál á
Norðurlandi vestra, í Mið-
garði í Skagafirði, miðviku-
daginn 22. janúar síðast-
liðinn. Var ráðstefnan haldin
m.a. vegna starfsloka og
skýrslu sem Atvinnumála-
nefnd í Norðurlandskjör-
dæmi vestra, sem skipuð var
af félagsmálaráðherra, skil-
aði til ráðherra þann 22.
október síðastliðinn og til að
fá viðbrögð við efni skýrsl-
unnar og umræður um
markmið og leiðir sem þar
eru sett fram ásamt almenn-
ri umtjöllun um atvinnumál
í kjördæminu.
í skýrslunni er töluvert saín
upplýsinga um þróun byggðar
og atvinnulifs á Norðurlandi
vestra, ásamt hugmyndum um
hvemig efla megi atvinnulífið
í næstu framtíð.Var ráðstefnan
afar gagnleg hvað varðar upp-
lýsingar um stöðu atvinnulífs-
ins og þá sýn sem menn hafa á
atvinnumálum kjördæmisins.
Flutt voru framsöguerindi
um stöðu atvinnumála í ijórð-
ungnum og lauk ráðstefnunni
með almennum umræðum
sem einkenndust dálítið af
tímaskorti.
Ritstjóri Einherja sat
fundinn og bað tvo fundar-
menn að segja álit sitt um
ráðstefnuna, en það vom þeir:
Skúli Þórðarson bæjarstjóri á
Blönduósi, Jón Magnússon
forstöðumaður Byggðastofh-
unar á Sauðaárkróki.
Skúli Þórðarson
bæjarstjóri á Blönduósi
Það hvort ráðstefha af þessu
tagi skili áþreifanlegum ár-
angri mun tíminn leiða í Ijós,
en að sjálfsögðu þá ræðst
árangurinn að stærstum hluta
til af viðbrögðum heimamanna
og stjómvalda. Skýrsla nefhdar-
innar sem kynnt var á fund-
inum, er um margt almenn
upptalning staðreynda og sem
slík ágætt uppflettirit og til
fróðleiks. Sé litið á helstu
niðurstöður nefhdarinnar þá
má einnig segja að flest sé þar
almennt orðað og geti átt við
um alla landshluta, ekki ein-
ungis Norðurland vestra.
Þannig finnst mér að hefði
mátt draga niðurstöðumar í
færri áþreifanlegri og mark-
vissri tillögur, sem sérstaklega
beindust að hagsmunum
kjördæmisins.
Þrátt fyrir mörg ágæt erindi
á ráðstefnunni þá óttast ég að
hvorki þau, starf nefndarinnar
né skýrsla hennar marki
tímamót fyrir atvinnulífið í
kjördæminu, en orð em til alls
fyrst og það er sannarlega þörf
á umræðu um atvinnumál
landsbyggðarinnar. Ekki síst
þess vegna er ég ánægður með
ráðstefnuna og vil þakka skip-
uleggjendum hennar fyrir
frumkvæðið.
Ég hef áður komið þeirri
skoðun minni á ffamfæri að
það skortir stefnumörkun gagn-
vart málefhum landsbyggðar-
innar og þar á ég við opinbera
stefnumörkun ríkis og sveitar-
félaga. Þetta er fyrsta atriðið
sem nefht er til úrbóta í
tillögum nefndarinnar og þarf
það ekki að koma á óvart. Um
mörg undanfarin ár hafa
aðgerðir stjórnvalda i mál-
efnum landsbyggðarinnar ein-
kennst stefnuleysi og af handa-
hófskenndum vinnubrögðum
og þar þarf breytingu á.
Núverandi „byggðastefna“
hefur með öllu bmgðist og
þörf er á algerri skipulags-
breytingu. Að treysta búsetuna
og lífskjör fólks á landsbyggð-
inni verður að vera for-
gangsmál.
Á Norðurlandi vestra em til
staðar fjölmörg sóknarfæri í
uppbyggingu atvinnulífs, en
einnig traustur gmnnur til að
byggja á. Nú þegar verður að
hefja aðgerðir til að styrkja
grunn atvinnulífsins, treysta
lífsafkomu og stöðva fólks-
flóttann. Það er skoðun mín að
kjördæmið þoli ekki og geti
ekki staðið undir frekari
fækkun íbúa, sú þróun er farin
að ógna tilveru okkar og því
verður að snúa vöm i sókn.
Jón Magnússon
forstöðum. Byggðastofnunar
Atvinnumálaráðstefnan í
Varmahlíð var haldin í beinu
ffamhaldi af störfum atvinnu-
málanefndar kjördæmisins á
liðnu ári og var liður í kynn-
ingu á skýrslu nefndarinnar.
Skýrslan er nokkuð góð
samantekt á stöðu einstakra
atvinnugreina, styrkleika þeirra
og veikleika ásamt fram-
tíðarhorfum í atvinnulífinu.
Einnig er að finna í skýrslunni
markmið. Það skal þó ávallt
haft í huga að skýrslugerðir og
skýrslur einar sér leysa ekki
vanda, hvort sem er í atvinnu-
legu tilliti eða við lausn á
öðrum aðsteðjandi vamda-
málum. Þannig mun þessi
skýrsla ekki leysa atvinnu-
vandamál í kjördæminu, né
heldur inniheldur hún tæmandi
lausnir eða leiðir að lausnum
vandamála.
Skýrslur em í sjálfu sér ein-
ungis verkfæri og gagnsemi
þeirra byggist á kunnáttu og
útsjónarsemi þeirra sem með
þau fara. Þessi skýrsla er sett
ffam sem verkfæri í hendur
heimamanna til þess að
auðvelda störf.þeirra. Á sama
hátt leysa ráðstefnur ekki
vandamál líðandi stundar,
heldur vettvangur til ffóðleiks
og skoðanaskipta.
Á atvinnumálaráðstefhunni í
Varmahlíð voru flutt mörg
ffóðleg erindi um nánast öll
svið atvinnulífsins í kjör-
dæminu og var fjallað um þær
af kunnáttufólki hvert á sínu
sviði. Þar komu vissulega ffam
ábendingar um þau vandamál
sem við er að glíma, en athygli
vakti hvað fólk horfir ffam á
veginn með ríkulegar hug-
myndir til úrbóta í uppbygg-
ingu atvinnulífins. Ráðstefnan
veitti þannig mjög gagnlegar
upplýsingar til okkar sem star-
fa að atvinnumálum kjördæm-
isins og er það skylda okkar að
móta þeim farveg á komandi
misserum. Það verður þó ein-
ungis ffamkvæmanlegt með
skipulögðum vinnubrögðum á
breiðum samstarfsgrunni.
Nauðsynlegt er að ná ffam
viðhorfum heimamanna,
þannig að hægt verði að setja
ffam mismunandi áherslusvið
fyrir uppbyggingu atvinnulífs
á einstaka svæðum hér í
kjördæminu.
Ég held, ef draga ætti ein-
hveija niðurstöðu af ráðstefn-
unni, voru flestir sammála
um, að skortur á samvinnu
stæði uppbyggingu atvinnulifs-
ins helst fyrir þrifum. Rætt um
samstarf á milli svæða innan
kjördæmisins, hugsanlega
sameiningu sveitarfélaga og
þann vanda sem hrepparígur
hefur skapað í allri umræðu
hér í kjördæminu. Mér dettur
ekki í hug að halda, að viðhorf
heimaaðila til nágrannasvæða
muni breytast á einni nóttu,
enda held ég að þar verði um
EFLUM VERSLUN
t HEIMABYGGÐ!
Afgreið slutími er:
mánud. - fimmtud.
kl. 9.00 - 18.00
föstud. kl. 9-00 - 19.00
Laugard. kl. 11.00 - 20.30
KAUPFÉLAG VESTUR-HÚNVETNINGA
HVAMMSTANGA
S: 451 1370