Einherji


Einherji - 01.05.1997, Blaðsíða 4

Einherji - 01.05.1997, Blaðsíða 4
EINHERJI 4 MAÍ 1997 Hvernig efnir Framsókn kosningaloforðin? Páll Pétursson félagsmálaráðherra: Stjórnarandstæðing- ar, öfundssjúkir vegna góðrar stöðu Fram- sóknarflokksins í síð- ustu kosningum, halda því stöðugt fram að Framsóknarmenn í ríkisstjórn hafi svikið þau kosningaloforð sem við gáfum fyrir síðustu kosningar. Þetta er ekki rétt eins og glöggt sést ef málið er athugað. Við lofuðum að koma lagi á ríkisfjármálin. Á tveimur árum hefur okkur tekist að eyða 8 mill- jarða ríkissjóðshalla og fjárlög þessa árs eru afgreidd með dálitlum tekjuafgangi. Við iofuðum að stuðia að auknum hagvexti. Hagvöxtur sl. ár var 5,5% sem er helmingi meira en í nágrannalöndum og spáð er 3 - 4% árlegum hagvexti næstu ár. Við lofuðum að reyna að vinna bug á atvinnuleysinu. Atvinnuleysi var 6 - 7 % í kosningabaráttunni. Skráð atvinnuleysi er komið niður í 3 - 4 % og þegar ný löggjöf um vinnumarkaðsaðgerðir og atvinnuleysistryggingar er komin til íramkvæmda, má reikna með að staðan batni en ffekar. Þar er gert ráð fyrir að landið verði eitt vinnuvæði, stórbættri vinnumiðlun og mjög aukinni aðstoð við atvinnuleitendur. Við lofuðum að vinna að því að skapa 12.000 störf. þegar hefur störfum fjölgað um rúm 6000 og allar líkur á að störfum Qölgi um a.m.k. 13.000 á kjörtímabilinu. Okkur mun að vísu reynast torvelt að manna þau öll. Nú þegar verðum við að flytja vinnuafl til landsins og hér eru í dag hátt á annað þúsund útlendingar við vinnu. Við lofuðum að vinna að skattalækkunum einkum jaðarskatta á síðari hluta kjörtímabilsins. Ákveðið hefur verið að lækka tekjuskatt um 4% í þrepum á næstu þremur árum. Hátekjuskattur hækkar hins vegar strax um 2% en lækkar síðan smkvæmt tekjuskatti. 1. janúar 1999 hefúr venjulegur tekjuskattur lækkað um 4% en hátekjuskattur lækkað um 2%. Bamabætur hækka hjá fjöl- skyldum með meðaltekjur eða lægri en lækka hjá þeim sem hafa meira en meðaltekjur. Hátekjufólk fær engar bama- bætur. Við lofuðum að hækka skattleysismörk. Ákveðið hefur verið að hækka skattleysismörk um 2.5 % árlega næstu þrjú árin . Við lögðum áherslu á að lægstu launataxtar þyrftu að hækka sérstaklega. í kjarasamningum 1994 var samið um lægstu taxta 43 þúsund á mánuði. Um næstu áramót verða lægstu taxtar 70 þúsund. Við lögðum áherslu á aukinn kaupmátt launa. Þjóðhagsstofnun telur að kaupmáttur aukist um 21 % á árunum 1995 - 1999 sem er helmingi meira en i ná- grannalöndum. Við lofuðum að endur- skoða vinnulöggjöfina. Vinnulöggjöfin var endur- skoðuð sl. vor. Þeir kjara- samningar sem nú eru að takast em vafalaust þeir bestu sem gerðir hafa verið. Þeir eru lengri en áður, flestir til 3 ára og það skapar stöðugleika. Þeir gefa um 13% hækkun á samningstímanum og veru- lega meira fyrir þá lægst launuðu. Vinnulöggjöfin nýja hefúr reynst mjög vel. Þeir kjarasmningar sem nú era að takast eru þjóðfélaginu mjög hagstæðir og gefa launa- mönnum sanngjarnar launa- bætur og mjög mikla kaup- máttaraukningu. Við lögðum áherslu á að verðbólgunni yrði að halda í skefjum. Verðbólga hefur verið minni hér nágrannalöndum sl. 2 ár. Þjóðhagsstofnun spáir 2 - 3 % árlegri verð- bólgu á næstu þremur árum. Við lögðum áherslu á að standa vörð um hag þeirra sem minnst mega sín. Ákveðið er að bætur almannatrygginga, ellilífeyrir og atvinnuleysisbætur hækki til samræmis við meðal- hækkun launa. Bætur þeirra sem búa einir og hafa ekki aðrar tekjur en bætur almanna- trygginga hafa raunar þegar hækkað um 12,98 % í tíð núverandi ríkisstjómar. Heild- arútgjöld almannatrygginga hafa á síðustu 20 mánuðum hækkað úr 15.830 milljónum í 18.081 milljónir eða um 14,22 %. Eldri en 67 ára eru um 10% þjóðarinnar. Hluti þeirra er sem betur fer vel settur og hefúr nóg fyrir sig að leggja af eignatekjum og ffá lífeyrissjóðum. Því var ákveð- ið að þeir sem hófðu yfir 75 þúsund i tekjur á mánuði eða ættu yfir 2,5 milljónir í peningum eða verðbréfúm skyldu ekki fá svokallaða „ffekari uppbót “ á ellilífeyri. Nú hefúr verið ákveðið að hækka þetta þak í 80 þúsund á mánuði. Þeim bótaþegum sem lægstar hafa tekjur hefur ekki einungis verið hlíft við skerðingum heldur hlutur þeirra bættur sérstaklega. Hvað varðar málefúi fatlaðra hafa verið gerðar í þeim verulegar úrbætur. Ný sambýli fatlaðra hafa verið tekin í notkun og nokkur til viðbótar verða byggð á árinu. Til þessa málaflokks er nú varið veralega meira fé árlega en í tíð fyrrverandi ríkis- stjómar. Við lofuðum að vinna að jafnrétti kynjanna. Ákveðið hefur verið að framkvæma kynhlutlaust starfsmat í fjóram stofúunum og fyrirtækjum. Það ætti að verða gott tæki til að eyða kynbundnum launamun. Endur- skoðun jafnréttis áætlunar er að hefjast og efni ég til fúnda víða um land með kven- félögum, jafnréttisnefndum og öðrum er láta sig þau mál varða þessar vikumar til að safna hugmyndum að endur- bótum á jafnréttisáætluninni. Þá er ákveðið að setja á stofn Lánatryggingasjóð kvenna en hann mun ábyrgjast helming bankalána er konur taka til stofnunar smáatvinnurekstrar. Við lofuðum að breyta húsnæðiskerfinu og greiða fyrir því að ungt fólk gæti eignast eigið húsnæði. Lánshlutfall húsbréfa til þeirra sem kaupa eða byggja sína fyrstu íbúð var hækkað úr 65% í 70 %. Húsnæðisstofú- un verður endurskipulögð og afgreiðsla húsbréfa svo og greiðslumat og veðmat verður fært til bankanna. Lögum um Húsnæðisstofnun hefúr verið breytt. Lánstími húsbréfa er orðinn sveigjanlegur 15, 25 eða 40 ár. LögfestaV voru heimildir til að fresta afborgunum tímabundið og að breyta vanskilum í lán. Vextir af hlutaverðtryggðum lánum við Byggingasjóð voru lækkaðir úr 9,75% í 6%. Úrræði vora sköpuð til að létta byrði sveitarfélaga vegna félagslegra íbúða. Endurskipu- lagning félagslega húsnæðis- kerfisins stendur yfir með það að markmiði að sníða af því agnúa, einfalda það og gera það tekjulágu fólki raunhæft úrræði og bærilegt fyrir sveitarfélögin. Við lofuðum að breyta lögunum um Lánasjóð ísl- enskra námsmanna. Samkomulag hefúr tekist við sjálfstæðismenn um breytingu á lögum um L.Í.N. Endurgreiðsluhlutfall af tekj- um lánþega að námi loknu, lækkar úr 7% tekna í 4,75%. Þetta leiðir af sér að hjón með tvær milljónir í árstekjur sem greiddu 140 þúsund fyrir breytingu, greiða 95 þúsund eftir breytingu og hún er einn- ig afturvirk. Samtímagreiðsla námslána verður tekin upp í stað eftirágreiðslna. Þetta gerist í gegnum banka og sparisjóði en L.Í.N. greiðir þann vaxta- og lántökukostnað sem annars hefði fallið á námsmanninn. Þetta er mun betra fyrirkomulag fyrir námsmenn, sérstaklega þá sem ekki búa í Reykjavík. Þá eru ákvæði gerð hvað varð- ar tafir í námi. Við lögðum áherslu á hættuna af skuidum heimi- lanna. Hagdeild Seðlabankans hefúr að beiðni félagsmála- ráðuneytisins gert mjög vandaða úttekt á skuldum heimilanna byggða á öllum skattffamtölum ársins 1994. í ljós kemur að 42% ffamtala era skuldlaus. Heildarskuldir heimilanna eru um 300 millj- arðar og er það um það bil sama upphæð og inneign heimilanna í lífeyrissjóðum. Eignir heimilanna aðrar en eignir í lífeyrissjóðum voru framtaldar 770 milljarðar. Um það bil 5% heimila eiga í skuldabasli og 2400 fjöl- skyldur skulda 10 milljónir eða meira. 1-2% fjölskyldna eru með vonlítinn fjárhag. 1,1% heimila er með 1 milljón eða meira í van- Páll Pétursson

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.