Einherji - 01.06.1997, Page 2
EINHERJI
2
JÚNÍ1997
Eiil
Útgefandi: Kjördæmissamband
Framsóknarmanna á Norðurlandi vestra.
Ritstjórar: Björn Hannesson og
Kristín E. Sigfúsdóttir.
Ábyrgðarmaður: Björn Hannesson.
Upplag: 3600 eintök
Skrifstofa: Gilsbakki 2, Laugarbakka,
sími 451 2606, fax 451 2606.
Umbrot, litgreining og prentun:
HVÍTT & SVART Auglýsingastofa -
Prentsmiðja Sauðárkróki, sími: 453 5711
Fax: 453 6162 - Netfang: hvitt@krokur.is
Ejm/j'jlfjfjub úk K'J
5,95% vextir
Alltaf opin
£?© (bAifí
5,5% vextir +
verðtrygging
Bundin í 24 mánuði
Leiðara Kristjana Bergsdóttir
Um stöðu
ríkisfyrirtækja
Fyrirhuguð sala áburðarverksmiðj-
unnar á dögunum hefur verið talsvert
í umræðunni síðustu vikur. í ljós kom
að þau tilboð sem bárust voru ekki
fullnægjandi að mati Guðmundar
Bjarnasonar landbúnaðarráðherra og
einkavæðinganefndar. Þetta eru því
viss tímamót í einkavæðingarum-
ræðunni.
Það hefur verið gagnrýnt að við
sölu fyrirtækja í eigu íslenska ríkisins,
hafi hagsmuna eigenda, þ.e. alls
almennings, ekki verið nægilega vel
gætt. Þetta vakti mikla athygli á síð-
asta kjörtímabili og ljóst af þeirri
umræðu sem þá varð að almenningi
er umhugað um að aðferðir við slíka
einkavæðingu tryggi hagsmuni eigend-
anna, þ.e. okkar íslendinga allra séu
tryggðir. Kerfið sem notað er verði
bæði gegnsætt og réttlátt og að engin
leynd hvili yfir neinu.
Ljóst er af reynslu annarra ríkja við
sölu ríkisfyrirtækja að verðlagning
þeirra er aðalvandinn. í riti
Alþjóðabankans frá 1992 um
einkavæðingu og lærdóm reynslunn-
ar er fullyrt að mat á verðmæti ríkis-
fyrirtækja til sölu séu ekki nákvæm
vísindi. Jafnvel á þróuðum fjár-
magnsmörkuðum sé sjaldgæft að
tæknilegt mat á markaðsvirði eigna
sem aldrei hafa verið seldar áður sé
rétt.
Ef sala Lyfjaverslunar ríkisins er
tekin sem dæmi er greinilegt að
matsverð var of lágt áætlað í upphafi.
Gengi þeirra var ákveðið í upphafi
1.34. Gengið nú er 3-0 eða meir en
150% hækkun á 2 ámm. Langur
biðlisti myndaðist eftir bréfum sem
seldust upp á nokkmm klukkustundu
og fengu miklu færri en vildu og var
þegnunum þannig gróflega mismunað.
Annað dæmi er sala Síldarverk-
smiðja ríkisins (SR mjöl) en gengi
þeirra bréfa hefur hækkað um 700% á
4 ámm og enn fengu miklu færri en
vildu að kaupa og söluverð greinilega
langt undir því markaðsverði sem
hægt hefði verið að ná með öðmm
vinnubrögðum við sölu.
Ein mjög áhugaverð aðferð hefur
verið reynd til m.a. að forðast mistök
í verðlagningu og um leið að spara
umtalsverðan kostnaða sem oft fylgir
sölu ríkisfyrirtækja en það er svoköll-
uð almannavæðing. Hún felst í því
að afhenda ríkisborgumm (t.d. öllum
lögráða) hlutabréf í viðkomandi
fyrirtæki sem gæti verið ákveðin % af
heildarhlutafé samanber viðtal við
Kjartan Gunnarsson framkvæm-
dastjóra í Viðskiptablaðinu um
hugsanlega sölu Landsbankans frá í
vor. Þetta hefur verið gert m.a. í
Bresku Kólombíu í Kanada og einnig
notað við einkavæðingu ýmissa
fyrirtækja í Rússlandi, Rúmeníu og
Tékklandi. Slík almannavæðing ætti
einnig að vera auðveld í framkcæmd
hjá svo fámennri og vel upplýstri þjóð
sem íslendingum. Ljóst er að slík
afhending þyrfti að fara fram í
áföngum til að aðlaga stjórnkerfi
fyrirtækjanna og hinu nýja almenn-
ingseignarhaldi. Þarna myndi fljótt
myndast raunmarkaðsverð á hlutum í
félaginu sem rikið gæti þá miðað við
í þeim hluta bréfanna sem það seldi
sjálft og að sjáfsögðu yrði það ekki
gert á einu bretti því augljóst væri að
það lækkaði heildarsöluhagnað rik-
isins. Með þessum hugmyndum er
ekki verið að taka almennt afstöðu til
sölu ríkisfyrirtæja. Heldur verið að
finna leið til að hámarka arð ríkisins
af sölu þeirra og finna meira réttlæti
við sölu þeirra. Hafa verður það í
huga að sala ríkisfyrirtækja á
undirverði felur í sér skattlagningu
allra nema kaupendanna sem hljóta í
raun ríkisstyrk..
Því má heldur ekki gleyma að
mikill ávinningur felst í því að sem
flestir landsmenn taki beinan þátt í og
ábyrgð á atvinnurekstri í landinu.
Kristjana Bergsdóttir.