Einherji - 01.06.1997, Síða 5
EINHERJI
JÚNÍ 1997
5
UPPBYGGING VARIMA GEGN OFANFLÓDUM
- áœtlun ríkisstiórnarinnar
Ríkisstjómin hefur nýlega
samþykkt áætlun, sem Guð-
mundur Bjarnason umhverfis-
ráðherra, lagði fram um for-
gangsröðun og tímaáætlun
framkvæmda varðandi up{>
byggingu brýnustu varna
gegn ofanflóðum. Áætlunin er
byggð á skýrslu um þörf fyrir
snjóflóðavarnarvirki á íslandi,
sem unnin var fyrir umbverfis-
ráðuneytið og sveitarfélög af
nefnd innlendra og erlendra
sérfræðinga auk þess sem
tekið er mið af niðurstöðum
viðræðna við sveitarstjómir.
Áætlunin er tvíþætt,
annarsvegar er um að ræða
framkvæmdaáætlun fyrir árin
1997 - 1998 og hins vegar
rammaáætlun til ársins 2010
en hún verður endurskoðuð
fyrir lok næsta árs. Heildar-
kostnaður við fyrirhugaðar
framkvæ mdir gæti numið allt
að 7,5 milljörðum króna.
Samkvæmt rammaáætlun-
inni er fyrirhugað að gerð
varnarvirkja á Siglufirði ljúki
árið 2008 en heildarkostnaður
er talinn verða um 1,9 millj-
arður króna. Gert er ráð fyrir
að frumathugun vama undir
Strengsgili og Jörundarskál
ljúki nú í júní. Athugunin er
unnin af Verkfræðiskrifstofu
Siglugjarðar í samráði við
erlenda ráðgjafa og skipulags-
og landslagsarkiktekta. Gert er
ráð fyrir að verkjönnun geti
fari fram í lok ársins, sam-
þykkti ofnaflóðanefnd og
verkkaupi framkvæmdina,
sem þá verði boðin út í byrjun
næsta árs. Jafnframt er fyrir-
hugað að ráðast síðsumars í
undirbúningsframkvæmdir
vegna leiðigarða í Strengsgili
en færa þarf leiðslur, jarð-
strengi og háspennulínu.
Kostnaður í ár verður um 20
milljónir króna. Á næsta ári er
gert ráð fyrir að ljúka að
mestu framkvæmdum í
Jörundarskál og Strengsgili, en
frágangur kannaða bíða til
ársins 1999 og er heildarkostn-
aður árætlaður um 300
AIIGLÝSTNG
Það verður enginn
svikinn af þvf
að koma við í Pakkhúsinu
á Hvammstanga
þar sem gamli
og nýi tfminn mætast á
skemmtilegan hátt.
Aðgangseyrir að safninu
er 150 kr. fyrir 14 ára
og eldri. Opið er
alla daga yfir sumarið,
mánudaga-föstudaga
kl. 10-18 og laugardaga
og sunnudaga kl. 11-17.
milljónir á árinu 1998.
Samkvæmt rammaáætlun-
inni er gert ráð fyrir að reisa
stoðvirki og þvergirðingar í
Gimbruklettum á árunum
1999 - 2002 og stoðvirki í
Fífladal á árunum 2002 - 2007,
en kostnaður vegna þeirra er
áætlaður rúmur 1,1, milljarður
króna. Á árinu 2006 er fyrir-
hugað að hefja framkvæmdir í
Gróuskarðshlíð og er gert ráð
fyrir að þeim ljúki á árinu
2008. Miklar breytingar hafa
orðið á skipulagi og fram-
kvæmd snjóflóðavama undan-
farin tvö ár, í kjölfar snjó-
flóðanna á Súðavík og Flat-
eyri. Snjóflóðamál og Ofan-
flóðasjóður hafa verið færð
alfari. undir stjóm umhverfis-
ráðuneytisog Veðuratofunnar.
Vöktun snjóflóða hefur verið
efld til muna og rýmingaráætl-
anir gerðar fyrir öll sveitar-
félög sem búa við snjóflóðavá,
sem eiga að auka öryggi íbúa
þeirra á meðan unnið er að
því að koma upp viðeigandi
varnarvirkjum . Rannsóknir á
upptökum, eðli og tíðni
snjóflóða hafa verið efldar.
Ráðnir hafa verið sérstakir
starfsmenn Veðurstofu íslands
í þeim sveitarfélögum sem
búa við snjóflóðahættu. Nú er
lokið uppkaupum fasteigna á
snjóflóðahættusvæði í Hnífs-
dal, flutningi Súðavíkur lýkur
væntanlega síðar á árinu og
byggingu varnarvirkja á Flat-
eyri ætti að vera lokið að
mestu á þessu ári. Stefnt er að
því að lúka minniháttar
framkvæmdum í Ólafsvík,
Bíldudal og Patreksfirði, auk
Silujarðar á þessu ári. Með
samþykkt ríkisstjórnarinnar er
stefnt að því að Ijúka eftir
föngum því verki sem hafið er
við aða efla vöktun snjóflóða
og avarnir gegn þeim. Á
næstu 2 - 3 ámm er gert ráð
fyrir að hættu mat fyrir helstu
þéttbýlisstaði verði tilbúið og
umfangsmiklar framkvæmdir
hafnar við varnarvirki á fsa-
firði, Seyðisfirði og Neskaups-
stað, auk Siglufjarðar.
Aukin þjónusta hjá RKS
RKS Ríiítíckni/Tölvutækni
Sauðárkróki bætir enn frekar
þjónustu sína og nú hefur Hannes
Valbergsson hafið störf hjá
fyrirtækinu en hann er menntaður
rafeindavirki með reynslu í
þjónustu á siglinga-, fiskleitar- og
fjarskiptatækjum og þjónustar
hann útgerðir og skipaeigendur
eins og frekast er kostur. Hannes
starfaði áður hjá Friðrik A. Jónsson
ehf. Með þessu skrefi í átt að fjöl-
breyttari þjónustu getur RKS enn
ferkar komið til móts við þarfir
viðskiptavina sinna.
RKS hefur á að skipa fjölmörg-
unt iðn- og tæknimenntuðum
starfsmönnum sem em reiðubúnir
að takst á við hin ýmsu verkefni
og má þar nefna; alhliða rafeinda-
virkjun, hönnun, uppsetningu og
viðhald eldvarna, innbrota og
myndavélakerfa, ljósritunarvéla-
þjónustu, alhliða tölvu- og intemet-
þjónustu, hverskyns rafmagns-
og raflagnavinnu, heimilistækja-
viðgerðir, rafmótorviðgerðir og
rafmótorvindingar, uppsetningar
og viðhald á kæli og frystikerfum,
kælitækjaviðgerðir og ýmis konar
stýringar.
RKS Raftækni Tölvutækni
INTERNET ÞJÓNUSTA___
LJÓSRITUNARVÉLAR
HÖNNUN
RÁÐGJÖF
ÞJÓFA- OG BRUNAVARNIR
KÆLITÆKI
TÖLVUKERFI
SIGLINGA- OG
FISKLEITARTÆKl______
Borgarteigur 27 - 550 Sauðárkrókur
Sími: 455 4550 - Fax: 455 4551