Einherji - 01.06.1997, Blaðsíða 7
EINHERJI
JÚNÍ 1997
7
Störf alþingis
Alþingi lauk sínum störfum eftir
áætlun í vor og náðist gott
samkomulag um framgang mála í
þinglokin. Ég vil í þessari grein
fjalla um tvo meginþætti. í fyrsta
lagi að gera grein íyrir störfum
Alþingis nú eftír áramótin í stórum
dráttum og hins vegar að ræða
stjórnmálaviðhorfið eins og það
blasir við okkur nú þegar kjörtíma-
bilið er hálfnað:
1. Störf Alþingis.
Það er óhætt að segja að Alþingi
hafi verið starfssamt og gengið frá
lagasetningu sem mun hafa mikil áhrif
á framgang mála í framtíðinni. Hér mun
aðeins drepið á nokkur stærstu málin:
Málefni Finns Ingólfssonar iðnaðar-
og viðskiptaráðherra voru mörg og
stór á þessu vorþingi. Þar ber hæst
lagsetningu um endurskipulagningu
fjármálastofnana ríkisins, um breytingu
ríkisbankanna í hlutafélög, stofnun
íjárfestingarbanka, stofnun Lánasjóðs
landbúnaðarins og nýsköpunarsjóðs.
Segja má að góð samstða hafi tekist
um þessi mál þrátt fyrir skiptar
skoðanir, og tekist hafi að miðla
málum á þann hátt að hér er tekið
nuðsynlegt skref sem er málamiðlun
milli þeirra sem vildu ganga enn
lengra og þeirra varfærnari. Hér er
formi bankanna breytt á kollsteypu
um sölu þeirra eða eignaraðild og litið
til hagsmuna þeirra fjölmörgu sem
vinna við þessar stofnanir. Breið póli-
tísk samstaða er um að þessi form-
breyting hafi verið nauðsynleg og
brýn nauðsyn var fyrir okkur Fram-
sóknarmenn að hafa sem mest áhrif á
hvernig hún fer fram.
Fjárfestingarbanki á grunni Fisk-
veiðisjóðs og Iðnlánasjóns ætti að geta
veitt atvinnulífinu betri þjónustu.
Sama er að segja um nýsköpunarsjóð
sem ætti að vera þess umkominn að
koma af meiri krafti til móts við nýjar
hugmyndir í atvinnulífinu. Sérstakri
deild hans er ætlað að starfa á lands-
byggðinni með áherslu á nýungar í
hugbúnaði og tengdri framleiðslu.
Löggjöf var afgreidd um stækkun
járnblendiverksmiðju og byggingu
álverksmiðju. Þetta er afleiðing af
auknum áhuga erlendra fjárfesta á
íslandi. Við eigum að nota okkur þau
tækifæri sem með því gefast, jafnframt
því að gera ítmstu kröfur um að
mengunarbúnaður sé fullnægjandi
miðað við okkar aðstæður og tryggja
virkt eftirlit með notkun hans. Um-
hverfisráðherra hefur nú skrifað undir
samkomulag við samtökun „Sól í
Hvalfirði" um samstarf um slíkt eftirlit
hvað varðar starfsemina á Gmndar-
tanga.
í iðnaðrráðuneytinu er ennfremur
unnið að tillögum um skipulag
orkumála. Eignaskiptasamningurinn
um Landsvirkum var einn þátturinn í
því máli, en hann var lögfestur á síðasta
þingi ásamt breytingum á stjórnskipu-
lagi stofnunarinnar.
Félagsmálaráðherra lagði fram og
fékk samþykkt fmmvarp um trygg-
ingarsjóð einyrkja, sem meðal annars
felur í sér að ýmsar stéttir sem höfðu
ekki möguleika á atvinnuleysisbótum
hafa nú slíka möguleika. Rætt hefur
verið sérstaklega um smábátasjómenn,
bændur og vömbílstjóra í þessu sam-
bandi, en þeir hafa hingað til ekki
fengið atvinnuleysisbætur nema skuld-
binda sig til þess að leggja niður rek-
stur sinn. Hér er um nýung að ræða
sem eftir á að koma reynslu á.
Heilbrigðisráðherra fékk samþykkt
lög um lengingu fæðingarorlofs og
réttindi sjúklinga, hvort tveggja mál
sem em réttarbætur fyrir þá sem njóta
þjónustu heilbrigðis- og tryggingar-
kerfisins.
Af málum umhverfisráðherra má
nefna ný skipulags og byggingarlög
sem hafa verið í vinnslu um árabil, en
nú hafa veirð samþykkt. Þetta er dæmi
um mál sem er komið í höfn og hefur
verið áraraðir í vinnslu.
í landbúnaðarráðuneytinu má nefna
nýja löggjöf um búnaðargjald þar sem
innheimta þess er lækkuð. Þá má
nefna löggjöf um Lánasjóð landbú-
naðrins sem tekur við hlutverki Stofn-
lánadeildar og löggjöf um Suður-
landsskóga.
Af fmmvörpum annarra ráðherra
má sérstaklega nefna breytingu á
lögum um Lánasjóð íslenskra náms-
manna til hagsbóta fyrir námsmenn.
Þá má geta um nýja löggjöf um skipu-
lag og starfshætti þjóðkirkjunnar sem
hlaut mikla umræðu í vetur og setur
kirkjunni skýrari starfsramma jafnfram
því að auka sjálfstæði hennar,
fjárhagslegt skipulagslegt. Þá voai ný
veðlög samþykkt, en þau hafa verið í
vinnslu um árabil vegna deilu um
veðsetningu fiskveiðiheimildar. Lög-
gjöfin eyðir réttaróvissu í lánafyrir-
greiðslu til sjávarútvegsins, en hefur
ekkert með eignarhaldið á auðlindinni
að gera. Það kom skýrt fram í vinnslu
málsins.
Hér er aðeins stiklað á stóru og
getið stærstu mála. Geta má þess að
vegaáætlun var samþykkt til tveggja
ára, en ætlunin er að endurskoða hana
til lengri tíma á komandi þingi.
ARVIRKNI
auglýsir!
VIÐGERÐARVERKSTÆÐI:
> Bílaviðgerðir • Dráttavélaviögerðir
'Mótorstillingar
i Uppherslur og eftirlit á nýjum bílum
1 Mælaviðgerðir og skráning
1 Hjólbarðaþjónusta
'Öll smurþjónusta - olíuvörurfrá Esso
1 Olíusíur í miklu úrvali.
1 Þjónustuaðili fyrir HEKLU hf.
Þjónustuaðili fyrir ALFA LAVAL
■ Verslum með varahluti í bíla og vélar.
iVörurtil landbúnaðar og sjávarútvegs
1 Rekstrarvörur • Hreinlætisvörur
' Raflagnavörur og margt fleira.
1 Útvegum varahluti í flestar gerðir
1 bíla og tækja ef við eigum þá ekki á lager
/■ Réttingar • Málun • Skreyting • Bílasmíði
Klæðning • Öryggisgler • Framrúðuskipti
"■ JRJ palla- og ferðahús
Lakkbarfrá GLASSUROT.
•DÓSASÖFNUNARFLÖSKUR
...tilvalið fyrir félagasamtök og verslanir
ÁftVIRKm
BILAVERKSTÆÐI
Norburlandsvegi 5 540 Blönduósi
S: 452 4570 - Lagers: 452 4751
Fax: 452 4755
Jón Kristjánsson
ldVAS 3 iijAH