Mjölnir - 12.08.1939, Blaðsíða 1
*
Útgefandi: SÓSÍALiSTAFÉLAG SIGLUF3ARÐAR.
2. árg.
Sigluftrði, laugardaginn 12. ágúst 1939.
18. tbl.
V erksmiðjumálið
Eins og skýrt var frá í síðasta
blaði fóru tveir menn úr Rauðku-
stjórninni til Reykjavikur til við-
tals við ríkisstjórnina og höfðu
með sér nákvæma kostnaðaráætl-
un uin endurbyggingu »Rauðku«.
En þá voru Þormóður og skóþurkur
hans í ríkisverksmiðjustjórninni,
nýbúnir að afhenda ríkisstjórn
mjög furðulegt plagg, þar sem
slegið er föstu, að 500 mála af-
kastaaukning verði 500 þús. kr.
ódýrari hjá ríkisverksmiðjunum en
»Rauðku«.
Nákvæmir útreikningar sérfræð-
inga sýna, að plagg þetta er hin
herfilegasta blekking, enda eru út-
reikningar ríkisverksmiðjanna ekki
gerðir af sérfróðum mönnum, held-
ur af Jóni Gunnarssyni og Þor-
móði. Að auka afköst Rauðku upp
i 5000 mál verður mun ódýrara
en sama aukning hjá rikisverk-
smiðjunum.
Rikisstjórnin tók svo enn á ný
þetta Rauðkumál til »athugunar«,
en ekkert svar hefir borizt ennþá.
Meirihluti rikisVerksmiðjustjórn-
ar, þeir Pormóður og skóþurkur
hans, Sveinn Ben. og Þorsteinn
M., berjast með hnúum oghnefum
gegn stækkun Rauðku og hafa
fært fram til þess margar ástæður.
Einu sinni töldu þeir óþarfa að
auka afköst síldarverksmiðjanna í
landinu. Þegar það var hrakið
með ómótmælanlegum rökum,
töldu þeir, að lánskjörin, sem
Rauðku byðust væru svo óhag-
stæð, að ekki mætti veita henni
leyfið þessvegna. Það var sýnt
fram á, að þessi lánskjör væru
þau beztu, sem nokkurt fyrirtæki
gæti fengið nú á tímum og þá
varð »röksemd'« Þormóðs og
drengja hans, að ríkisverksmiðj-
urnar gætu stækkað jafnmikið hjá
sér fyrir 800 þús. kr. minna en
Rauöka.
Það er margt fleira, sem Þor-
móðsklíkan hefir fært fram gegn
Rauðku og það hefur verið föst
regla, að þegar óyggjandi rök hafa
verið færð fram gegn einni stað-
hæfingunni, hefur annarri enn-
þá fáránlegri verið logið upp.
Þetta mál er nú þann veg komið,
að svo að segja hver maður skilur
aðalgang þess og veit hvilíkt reg-
inhneyksli það er orðið.
Eftir hverju hefur ríkisstjórnin
beðið með svar sitt? Jú, segja
Sjálfstæðismennirnir. »ÓIafur er
með málinu, en Framsóknarmenn
eru á móti«. Það er vitað, að
Hriflu-Jónas og ýmsir Framsóknar-
menn eru málinu andvígir, en þeir
sömu menn voru á móti að veita
Eimskipafélaginu leyfi fyrir 4 til 5
sinnum meiri gjaldeyti íil að
byggja skip, en það leyfi varveitt
þó Jónasarklíkan væri því andvíg.
Var þá ekki eins hægt að veita þetta
leyfi í andstöðu við »Framsókn«.
Þáttur Sveins Benediktssonar í
þessu máli er mjög athyglisverður.
Fyrir nokkrum árum skrifaði Sveinn
ýtarlegar lýsingar á Þorm. Eyjólfs-
syni í »Morgunblaðið«. Virtist
Sveinn enga nýta taug flnna hjá
honum og bar á hann þungar sak-
ir um sviksemi í starfi fyrir ríkis-
verksmiðjurnar, sjálfum sér til fjár-
hagslegs framdráttar. Greinarnar
voru stórorðar og ruddalegar, eins
og Sveini er lagið, en þær virtust
vera ritaðar af heilagri vandlæt-
ingu yfir því, að menn í trúnaðarstöð-
um misnoti embætti sín í eiginhags-
munaskyni. Og Sveinn hafði sóma
af, en nú virðist sem menn hafi
gert sér skakkar skoðanir um
manndóm Sveins, þegar hann ger-
ist handbendi Þormóðs Eyjólfsson-
ar, þessa manns, sem Sveinn fyrir
nokkru gat varla fundið nógu
sterk orð til að lýsa fyrirlitningu
sinni á. Sveinn hefir að vísu ekki
verið i miklu áliti á Siglufirði, en
hann hefir þó haft það álit, að
hann væri stórbrotinn en ekki
lítilsigldur maður, en eftir að hann
gerist rakki hjá Þorm. Eyólfssyni
og lætur hann siga sér á hvað
sem er, verður víst lítið úr því á-
liti og þykir flestum Iítið hafa
lagst fyrir kappann.
Endanlegtsvar um Rauðkumálið er
væntanlegt frá ríkisstj. 16. þ.m. og
mun málið ekki verða rætt hér í
blaðinu, fyr en að þeim tíma
liðnum.
Húfur
Axlabönd
Ermabönd
Sokkabönd
Sprotar
Belti
víð yðar hæfi hjá
Gesti Fanndal.