Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.11.1949, Side 18
54
TÍMARIT V.F.I. 1949
8. mynd. Raufarhólshellir. Hvelfingin.
Fyrsta stjórn Sogsvirkjunarinnar er skipuð þess-
um mönnum:
Fyrir Reykjavíkurbæ:
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri,
Guðmundur H. Guðmundsson, bæjarstjórnarfulltr. og
Einar Olgeirsson, alþingismaður.
Fyrir ríkið:
Sigurjón A. Ólafsson, fyrrv. alþingismaður og
Sigtryggur Klemenzson, stjórnarráðsfulltrúi.
Seinustu áætlanir og útboð.
Jafnhliða samningunum milli ríkis og bæjar var
unnið að endanlegum áætlunum og útboðslýsingum.
9. mynd. Aldeyjarfossgljúfur við Skjálfandafljót. Stuðlaberg
í blágrýtishrauni. Neðst stórir lóðréttir stuðlar, þá óreglu-
legir smástuðiar og efst straumlcgótt hraun.
Gert er ráð fyrir, að Irufoss og Kistufoss verði
virkjaðir í einu orkuveri, sem liggi neðanjarðar rétt
austan við írufoss, með jarðgöngum fyrir frárennsli
í ána kippkorn vestan við Kistufoss.
Vatnsborð ofan við stöðina verður 64,0 m. y.s. I
munna jarðgangnanna verður vatnsborðið 25,5 m y.s.
við 100 teningsmetra rennsli á sekúndu, en 26,0 ni
við 150 m3/sek. Fallhæðin verður því alls 38—38,5 m.
Orkuverið er áætlað fyrir 150 m3/sek., sem skipt-
ast á þrjár samstæður, hverja með 22.000 ha. orku.
I fyrstu lotu verða tvær samstæður settar upp.
Á Irufossbrún verður byggð steinsteypustífla með
botnrásum og yfirfalli. Stíflusporðurinn að vestan
verður með steinsteypukjarna í miðju og jarðfyll-
ingu frá báðum hliðum.
Rétt við stífluna austan árinnar er vatnsinn-
rennslið með ristum og ísrennu. Frá innrennslinu
verða sprengdar þrjár aðrennslisrásir skáhallt niður
að túrbínunum. Rásirnar verða fóðraðar með járn-
bentri steinsteypu, og ef til vill verða járnpípur
steyptar innan í þær.
Inngangurinn í stöðvarhúsið verður um lóðrétt
op með lyftu og krana fyrir þungavöru. Einnig verð-
ur loftop fyrir jarðgöngin.
Sogpípurnar frá túrbínunum sameinast í hólfi við
enda jarðgangnanna.
Ætlazt er til, að jarðgöngin fyllist aldrei alveg af
vatni. Á þann hátt á að komast hjá því að byggja
svelg (reguleringskammer) við stöðina.
Gert er ráð fyrir, að jarðgöngin verði fóðruð með