Ísfirðingur - 02.10.1990, Page 1
40. árg.
Þriðjudagur 2. október
8. tbl.
Kjördæmisþing
Dagana 8. og 9. september
s.l. var kjördæmisþing fram-
sóknarmanna í Vestfjaröakjör-
dæmi haldið að Núpi.
Varaformaður Framsóknar-
flokksins, Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra, var
gestur þingsins og flutti hann
fróðlegt erindi um stjórnmála-
viðhorfið í landinu.
Auk Halldórs fluttu ávörp
sem Siv Friðleifsdóttir, nýkjör-
inn formaður SUF, Bjarney
Bjarnadóttir, fulltrúi Lands-
sambands framsóknarkvenna
og Egill Heiðar Gíslason fram-
kvæmdastjóri Framsóknar-
flokksins.
Þingforsetar voru þeir
Guðmundur Hagalínsson frá
Hrauni á Ingjaldssandi og
Guðmundur Ingvarsson frá
Þingeyri.
Þingið var starfssamt, um-
ræður líflegar og rædd þau mál
sem efst eru á baugi um þessar
mundir.
Formaður flokksins, Stein-
grímur Hermannsson gat ekki
setið kjördæmisþingið að þessu
sinni og mun það vera í fyrsta
sinn í um aldarfjórðung sem
hann situr ekki kjördæmisþing
framsóknarmanna á Vestfjörð-
um.
Hér inni í blaðinu eru álykt-
anir þingsins um helstu mála-
flokka.
Miklar umræður urðu um
framboðsmál til næstu Alþing-
iskosninga. Var ákveðið að
efna til skoðanakönnunar með-
al félagsmanna í framsóknar-
félögum á Vestfjörðum. Kosin
var fimm manna nefnd sem
annast framkvæmd skoðana-
könnunarinnar og gerir síðan
tillögu til aukakjördæmisþings
að framboðslista til Alþingis-
kosninga.
Stefnt er að því að framboðs-
listinn liggi fyrir seinni hluta
nóvember næstkomandi.
Stjórn kjördæmissambands-
ins var endurkjörin cn hana
skipa: Sveinn Bernódusson,
Bolungarvík, formaður,
Magnús Björnsson, Bíldudal,
varaformaður og aðrir í stjórn:
Sigurgeir Magnússon, Patreks-
firði, Bcrgþóra Annasdóttir,
Pingeyri, Einar Hreinsson, ísa-
firði, Eðvarð Sturluson, Suður-
eyri ogElíasOddsson, ísafirði.
Fulltrúar í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins voru kosin:
Magdalena Sigurðardóttir, ísa-
firði, GuðmUndur Hagalíns-
son, Hrauni, Sigurgeir Magn-
ússon, Patreksfirði, Guðbrand-
ur Björnsson, Smáhömrum og
Magnús Björnsson, Bíldudal.
Af hálfu ungliða voru kosin:
Björgvin Valdimarsson, Bol-
ungarvík, Óskar Torfason
Drangsnesi og Sesselja Bern-
ódusdóttir, Bolungarvík.
Dýrafjarðarbrúin
Smíði brúar yfir Dýrafjörð er
að mestu lokið og verður grafið
undan henni síðar í haust, en
ennþá stendur hún á þurru.
Vel hefur gengið að fylla
undir veginn að vestanverðu en
fyllingin verður nú látin jafna
sig og síga en verkinu síðan
lokið næsta sumar.
Dýrafjarðarbrú verður mikil
samgöngubót, einkum að
vetrarlagi, því snjóþungt er á
þeim kafla sem hún tekur af.
Myndin er tekin af brúnni
snemma í september.
framsóknarmanna 1990
Fundarsalurinn í grunnskólanum að Núpi er hinn vistlegasti. Hér má sjá hluta þingfulltrúa.
Stjórnmálaályktun
Kjördæmisþing fram-
sóknarmanna í Vestfjarða-
kjördæmi haldið að Núpi
8.-9. september 1990 fagn-
ar þeim árangri sem náðst
hefur í baráttunni við verð-
bólguna, sem nú er minni
en verið hefur um áratuga
skeið.
Standa verður vörð um
þjóðarsátt í kjaramálum og
þann jákvæða árangur sem
náðst hefur í efnahagsmál-
um.
Vaxandi fjöldi gjald-
þrota fyrirtækja og einstak-
linga bendir til þess að
raunvextir séu of háir. Af-
nema þarf vísitölubindingu
og veita bönkum og pen-
ingastofnunum strangt að-
hald hvað snertir rekstrar-
kostnað og fjárfestingar.
Byggðaröskun er stærsta
vandamál þjóðarinnar,
jafnt fyrir landsbyggð sem
höfuðborgarsvæði, þar sem
tæpast hefst undan að búa
vaxandi íbúafjölda þau
skilyrði sem þarf.
Þingið skórar á ríkis-
stjórnina að -velja nýju ál-
veri stað utan suðvestur-
hornsins í stað þess að auka
enn á ójafnvægi með bygg-
ingu þess á höfuðborgar-
svæðinu.
Vestfirðingar krefjast
þess að fá sanngjarnan
skerf af þjóðartekjum til
uppbyggingar atvinnulífs,
til dæmis með aukinni hlut-
deild í sjávarafla í stað
stóriðju.
Kjördæmisþingið vekur
athygli á mikilli manneklu
í mennta- og heilbrigðis-
störfum á landsbyggðinni.
Aðstöðu og kostnaðar-
mun landsntanna til þessar-
ar þjónustu verður ríkik-
valdið að jafna í stað þess
að leggja sífellt þyngri
byrðar á herðar sveitar-
félaga og einstaklinga af
þessum sökum.
Pingið áréttar þá stefnu
Framsóknarflokksins að
aðild að EB komi ekki til
greina, en styður áfram-
haldandi sgmninga, svo
sem-um lækkun og afnám
tolla af fiskafurðum.
Kjördæmisþingið fagnar
opnun skrifstofu Byggða-
stofnunar á Vestfjörðum
og komu iðnráðgjafa til
starfa hér og væntir mikils
árangurs af störfum þeirra
fyrir Vestfirðinga.
Við búum í góðu landi
með gjöfulum auðlindum
sem við þurfum að nýta af
forsjálni.
Jafnframt því sem nýting
orkulinda og aukning
ferðamanna skilar okkur
vaxandi gjaldeyristekjum
verðum við að auka um-
hverfisvernd og umgangast
landið af virðingu.
Etla þarf stórlega nteng-
unarvarnir, gróðurvernd
og uppgræðslu örfoka
lands.
Heimili og heilbrigt fjöl-
skyldulíf eru hornsteinar
samfélagsins. Stuðla verð-
ur að því að sem flestir geti
stundað atvinnu sína og
menntað börn sín í heima-
byggð, svo ekki þurfi að
sundra heimilum af þeim
sökum.