Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2004, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2004 Fréttir 0V í haldi fyrir nauðgun Rúmlega fertugur ís- lendingur er nú í haldi lög- reglunnar í Osló sakaður um að hafa nauðgað tveim- ur samstarfsstúlkum sínum um borð í ferjunni M/S Color Festival sem siglir milli Hirtshals í Danmörku og Osló. Báðar eru stúlk- urnar rétt rúmlega tvítugar og átti önnur nauðgunin sér stað s.l. sunnudagsnótt en hin fyrir um viku síðan. Helge Otte Mathisen upplýsingafulltrúi Color Line, útgerðar ferjunnar, segir að ekki sé ástæða til að draga í efa frásagnir stúlknanna enda hafi ís- lendingurinn bókstaflega verið gripinn með buxurn- ar á hælunum. „Þar að auki var hann undir áhrifum áfengis sem er brot á starfs- reglum okkar," segir Helge. Islendingurinn hefur verið til yfirheyrslu hjá Os- lóarlögreglunni í gærdag en ekki var komin ákvörðun um ákæru síðdegis í gær. Tók áskorun Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, menntamálaráð- herra, hefur tekið áskorun Röskvu og mun mæta á opinn fund með stúdent- um næst- komandi þriðjudag í Háskóla Is- lands. Röskva telur nauð- synlegt að nýr mennta- málaráðherra skýri stefnu sína í málefnum Háskólans bæði hvað varðar skóla- gjöld og fjöldatakmarkanir. Loðnuveiðar leyfðar Sjávarútvegsráðuneytið felldi í gær úr gildi tíma- bundið bann við loðnu- veiðum. í rannsóknarleið- angri urðu skipverjar á Árna Friðrikssyni varir við nýja loðnugöngu djúpt NA af landinu, en á þeim slóð- um hefur skipið verið við rannsóknir og mælingar. Þeim er ekki að fullu lokið, en þó liggur fyrir að mati ráðuneytisins að ekki er þörf á veiðistöðvun. Ráðu- neytið segir að fyrir viku- lokin ætti endanlega afla- mark á yfirstandandi vertíð að liggja ljóst fyrir. Átján taldir af Leit hefur verið hætt að skipverjum á flutningaskip- inu Rocknes sem hvolfdi í grennd við Björgvin í Nor- egi í fyrradag. Tólf mönn- um var bjargað. Þrír hafa fundist látnir og fimmtán skipverjar voru í gær taldir af. Af þeim eru 16 frá Fil- ippseyjum, einn frá Noregi og einn frá Þýsklandi. Ríkislögreglustjóri hefur ákært Bjarna Sigurðsson lögfræðing og fyrrverandi fast- eignasala fasteignasölunnar Holts í Kópavogi fyrir einhver mestu fjársvik sem upp hafa komið á siðari árum. Embætti ríkislögreglustjóra hefur ákært Bjarna Sigurðsson lögfræðing fyrir stórfelld fjársvik þegar hann rak fasteignasöluna Holt í Kópavogi. Um er að ræða eitt stærsta fjársvikamál síðari ára og nema svikin alls um 160 milljónum króna. Bjarna er gefið að sök að hafa stundað fjársvik og skjalafals að upp- hæð 96 milljónir. Auk þess er fjár- dráttur Bjarna talinn nema 62 milljón- um króna og honum er jafnframt gef- ið að sök að hafa svikist undan greiðslu virðisaukaskatts að upphæð 2,8 milljónir króna. Bjarni gaf sig fram við yfirvöld í byrjun nóvember árið 2002 og viður- kenndi þá að hafa dregið að sér um 80 milljónir frá viðskiptavinum, í flest- um tilfellum frá seljendum fasteigna. Rannsókn málsins hefur síðan leitt í ljós að upphæðin er mun hærri. Samkvæmt heimildum DV hófust brotin þannig að Bjarni „fékk lán“ hjá ein- um viðskiptavini og velti svo boltanum áfram með því að fá ný og ný lán með keðju- verkandi hætti. Hann mun hafa látið framselja sér húsbréf gegn því að aflétta ýmsum skuld- um af fasteignum. Eftir það fékk hann verðbréfasala til að fjámagna við- skiptin fyrir sig á meðan hann var að aflétta veðun- um. I sumum til- fellum varbréfun- um ekki skilað og heldur ekki peningunum. Bjarni gafsig fram við yfirvöld i byrjun nóvember árið 2002 og viðurkenndi þá að hafa dregið að sér um 80 milljónir frá viðskiptavinum, Kærði til lögreglu Það má segja að málið hafi byrjað þegar einn viðskiptavina fasteignasölunnar kærði Bjarna snemma árs 2002 fyrir skjalafals tengt húsbréfa- viðskiptum sínum. Hann fékk um síðir greitt það sem honum bar en kærði málið engu að síður til lögreglu. Málið hafði verið til rannsóknar hjá lög- reglunni í Kópavogi um átta mánaða skeið þegar önnur mál tengd Bjarna komu upp hjá lögreglu; svo sem vanskil á virðisaukaskatti og fleira. Þá var talið að um 15 manns hefðu verið sviknir en sú tala mun vera nokkuð hærri. Fasteignasalan var úrskurðuð gjaldþrota skömmu síðar og námu kröfur í þrotabúið rúm- um 100 milljónum króna. Skiptafundur í búinu verður á næstu vikum. fbúðalánasjóður ákvað í fyrra að greiða bætur til níu manns sem höfðu orðið fyrir fjárhagstjóni vegna mistaka stofnunar- innar við afgreiðslu fasteignaveðbréfa sem tengj- ast máli fasteignasalans. íbúðalánasjóður, Verð- bréfastofan auk nokkurra fyrri viðskiptavina fast- eignasölunnar leggja fram bótakröfur í málinu. Ákæran yfir Bjarna Sigurðssyni verður þingfest í Héraðsdómi á næstunni. arndis@dv.is Spítalarnir í fýlu! Svarthöfði nær ekki einu sinni að hrista höfuðið yfir fréttum af niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. Það er eins og þetta fólk sem ræðir málið hafi allt farið öfugum megin fram úr rúminu. Auðvitað þarf heil- brigðiskerfið aðhald. Þetta vita allir og síðar í blaðinu má lesa um það að hér á íslandi borgum við helm- ingi meira fyrir lyfin og að Islend- ingar gætu sparað milljarð ef við tækjum rétt á lyfjarisunum. Þetta er mergur málsins. Heilbrigðiskerf- ið er ekki nógu vel rekið. En yfirmenn spítalanna ákveða frekar að fara í fýlu en að horfast í augu við vandamálið og ná tökum á rekstrinum. Þeir minna á hjón sem sitja og rífast yfir matarborðið yfir háum matarreikningum. Kon- an segir kannski að það gangi bara ekki að þau séu að eyða 200 þús- und í mat á mánuði þegar hægt sé að fá það ódýrara. Karlinn lætur eins og hann komi af fjöllum og spyrji hvaða dylgjur þetta séu eig- inlega. Þá horfir frúin djúpt í augun á honum og segir að í næsta mán- uði muni þau bara eyða 100 þús- und. Og karlinn stekkur á fætur og öskrar: „Þá étum við bara ekkert í tvær vikur!" Yfirmenn spítalanna haga sér svona. „Þá rekum við bara 200 manns!“ Engin umræða. Við verð- um bara að loka þessari deild! Það er ekki hægt að bjóða okkur upp á þessa umræðu. Svarthöfði og Svarthöfða myndu ekki láta sér detta í hug að gera annað en setjast niður og ræða málin eins og al- mennileg hjón. Finna út hvar væri hægt að spara. Við myndum alla- vega ekki láta okkur svelta í tvær vikur! Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.