Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1958, Síða 3
TIMARIT
VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
3. hefti 19 58 43. árg.
Byggingarefnarannsóknir
iðnaðardeildar 1957
Ársskýrsla með fylgiritum
Eftir Harald Ásgeirsson, verkfræðing.
Rannsóknarbeiðnir, sem á árinu bárust byggingarefna-
rannsóknum, voru samtals 488 um prófanir á 523 sýnis-
hornum, og hafa aðteknar rannsóknir þannig verið álíka,
eða ívið minni en á árinu 1956.
Sýnishornunum má skipta niður i flokka samkvæmt
venju á eftirfarandi hátt:
1. Steypuefni. Prófað var fyrir kornastærðardreifingu
og lífrænum óhreinindum i 154 sýnishornum, en þar
af var 31 prófun eingöngu fyrir lífrænum óhrein-
indum. Auk þessa voru sex sýnishorn veðrunarþols-
prófuð.
2. Steinsteypa. Steyptar voru 20 prófsteypur, en þar
af voru sjö aðsendar. Auk þessa voru svo steyptar
allmargar prófsteypur í sambandi við sjálfstæðar
rannsóknir við stofnunina.
3. Burðarþolsmælingar. 156 beiðnir um prófanir á
217 samstæðum af sýnishornum. Plest sýnishornin
voru af 10 sm teningum, steyptum í trémótum, eða
140 samstæður með um þrem teningum í hverri, en
þó fjölgaði sivalningum mikið (62 samstæður af
tveim), og 20 sm teningar, steyptir í stálmótum
voru aðeins 13.
4. Sement. Prófuð voru 24 sýnishorn.
5. Steypuvörur. Prófuð voru níu sýnishorn af stein-
steyptum rörum og þrjú af hleðslusteinum.
6. Asfalt og maliiik. 30 sýnishorn voru afgreidd, en
af þeim voru tíu aðeins til kornastærðarákvarðana.
1 þennan flokk koma eðlilega „gjallbiksrannsóknir"
þær, er framkvæmdar voru fyrir Vestmannaeyja-
kaupstað.
7. Ofaniburöur. Aðeins 14 sýnishom voru prófuð í
þessum flokki, ef ekki eru taldar með hinar sérstöku
ofaníburðarrannsóknir, sem stofnunin framkvæmdi
á árinu fyrir vegamálastjóra. Mikilvægustu prófan-
irnar í þessum flokki hafa eflaust verið prófun á
þjöppun á fylliefnum í Miklubrautinni, — Proctor-
prófanir.
8. Málmar. Afgreiddar voru 24 beiðnir um mismun-
andi málmprófanir, en þó aðallega togþolsprófanir
á stáli til steypustyrktar.
9. Einangrunarefni. Aðeins þrjú sýnishorn bárust, en
með því að aðeins var leitað eftir almennum upp-
lýsingum um þau, voru prófanir ónauðsynlegar.
10. önnur rannsóknarverkefni voru skrásett alls 43.
Helzt þessara rannsókna voru: 1) Prostaþol steypu
í sambandi við byggingu reykháfs fyrir sements-
verksmiðjuna á Akranesi, 2) Rannsókn á vatnsþörf
steypuefna, framkvæmd í félagi við Stefán Ólafsson,
verkfræðing Steypustöðvarinnar h.f., 3) Rannsóknir
á vikursteypum fyrir vikurefnanefnd VPl — skoð-
anir á sandnámum, skemmdum byggingarhiutum,
hafinn undirbúningur að nákvæmum prófunum á
pozzolaneiginleikum móbergs o. s. frv.
Til frekari skýringa á hinum einstöku rannsóknalið-
um eru eftirfarandi íhuganir settar fram.
1. 1. Á síðustu árum hefur framleiðsla steinsteypu
þokazt jafnt úr því að vera ígripavinna bygg-
ingameistara í það að verða sérgrein fárra, nú að-
allega þriggja aðila, sem þá nota til framleiðsl-
unnar stórtækar vinnuvélar. Jafnframt er að verða
tilfinnanlegur skortur á fylliefnum (aðallega
sandi) af þeim gæðum, sem hingað til hafa verið
talin aðgengileg í næsta nágrenni Reykjavíkur.
Hættan á svipuðum steypuskemmdum, sem þeim
er komu fram á árinu 1955, vofir því enn
yfir byggingariðnaðinum, — enda hefur eftirlit
með steypugæðum enn ekki verið tekið upp, annað
en það, að Steypustöðin h.f. hefur nú komið sér
upp fullkominni rannsóknarstofu til eftirlits og