Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1958, Síða 18
48
TÍMARIT VFl 1958
Gunnlaugur Briem Páls-
son (V. 1958), f. 19. júní
1932 í Rvík. Por. Páll
Björn, vélstjóri þar, f. 10.
marz 1905, Einarsson,
prests í Reykholti, Borg.,
og víðar, Pálssonar, og k.
h. Gyða, f. 13. febr. 1910,
Sigurðardóttir, skrifst.stj.
í Rvík, Guðmundssonar.
Stúdent Rvík 1950, próf
í vélaverkfræði frá Chal-
mers T. H. i Gautaborg
1956. Verkfr. hjá Svenska
Turbin Aktiebolaget
Ljungström í Norrköping,
Svíþjóð, frá 1956.
K. h. 1. ág. 1953, Inga Ingibjörg, f. 17. nóv. 1934 í Rvík,
Guðmundsdóttir, vélstjóra, Einarssonar, og k. h. Geir-
þrúðar Önnu Gísladóttur, verkam. Gíslasonar. B. þ. 1)
Páll, f. 5. des. 1954 í Gautaborg, 2) Anna Gyða, f. 7.
apr. 1956 í Gautaborg.
Veitt innganga i VFl á stjórnarfundi 14. maí 1958.
H. G.
FRETTIR
13. Alþjóðaráðstefna um atvinmisjúkdónia og
heilsuvernd á vinnustöðum.
(13th. International Congress on Occupational Health)
verður haldin í New York City i júlímánuði 1960.
Á ráðstefnunni verður aðallega fjallað um, hvernig
komið verði i veg fyrir atvinnuslys og atvinnusjúkdóma.
Þátttakendur frá mörgum löndum munu skýra frá eigin
reynslu og rannsóknum bæði á sjúklingum og í rann-
sóknastofum.
Á þessa ráðstefnu er búizt við þátttöku nokkurra
þúsunda lækna, hjúkrunarkvenna og sérfræðinga í holl-
ustuháttum á vinnustöðum frá meira en 40 löndum.
Þetta verður fyrsta alþjóðlega ráðstefnan á þessu
sviði, sem haldin er i Vesturheimi. Allar hinar fyrri hafa
verið i Evrópu, sú fyrsta i Mílanó 1906 og sú síðasta í
Helsingfors í júlí 1957.
Frekari upplýsingar gefur Jón Sigurðsson, borgar-
læknir, Reykjavík.
Deildarþing Alþjóðaorkumálaráðstefnunnar
(AOR) í Montreal 7.—11. september 1958.
Alþjóðaorkumálaráðstefnan (World Power Conference,
WPC) er alþjóðleg samtök um orkubúskap þjóðanna.
Hún heldur aðalþing 6. hvert ár (hið síðasta var haldið
í Vinarborg 1956), en þess á milli eru deildarþing haldin.
Á þing þessi kemur fjöldi fulltrúa frá flestum löndum
heims í vestri og austri. Erindin, sem lögð eru fyrir
slíkar ráðstefnur, fylla margar þykkar bækur, enda má
ýkjulaust segja, að hér sé til umræðu sjálfur grund-
völlur hins tæknivædda nútímaþjóðfélags og frumskil-
yrði efnalegrar og menningarlegrar afkomu þjóðanna,
nefnilega orkan.
Landsnefnd Kanada í AOR sér um deildarþing þetta,
og verður aðalumræðuefni þingsins í suraar: „Efnahags-
legar stefnur í vinnslu, flutningi og notkun eldsneytis og
orku". Umræðum verður síðan skipt í undirflokka:
Vatnsafl, kol, olía, gas, kjarnorka, aðrar orkulindir;
flutningur eldsneytis og orku, iðnaður, samgöngur, land-
búnaður og heimilisnotkun.
Hér á landi er starfandi landsnefnd í AOR. Formaður
hennar er Jakob Gíslason, raforkumálastjóri. Hefur hún
gengizt fyrir þátttöku héðan í þingum AOR undanfarin
ár og fyrir samningu erinda um íslenzk orkumál, er lögð
hafa verið fyrir þau.
Allar frekari upplýsingar um AOR og þingið í sumar
mim formaður íslenzku landsnefndarinnar fúslega veita,
ef þess er óskað.
TlMAltlT VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ISLANDS kemur út eigi sjaldnar en sex sinnum á ári og flytur greinar um verkfrœðileg
efni. Árgangurinn er alls um 100 síður og kostar 100 krónur, en einstök hefti 20 kr. — Ritstjóri: Hinrik Guðmundsson. Rit-
nefnd: Baldur Líndal, Guðmundur Bj Irnsson, Helgi H. Árnason og Magnús Reynir Jónsson. — Útgefandi: VerkfræOingafélag
Island. — AfgreiOsla timaritsins er í skrifstofu félagsins á Skólavöröustíg 3 A, Reykjavík. Sími 19717. Pósthólf 645.
STEINDÓRSPRENT H.F.