Akranes - 01.04.1952, Blaðsíða 32
K. F. U. M.
Yfir 40 ár hefur sr. Bjarni verið for-
maður í K. F. U. M. Alla þá tíð hefur
hann unnið þar mikið starf, auk síns
prcstsembættis. Það he'fur verið honvun
ánægjulegt starf, af því að það hefur ver-
ið árangursríkt, bæði beint og óbeint. Það
hefur haft blessunarrik áhrif á líf og lífs-
stefnu fjölda einstaklinga, en samhliða
hefur starf K. F. U. M. skapað kjarna
hins stóra safnaðar.
Hér hefur aðeins verið minnzt á störf
sr. Bjarna sjálfs, en þess má sannarlega
geta. að hann hefur ekki verið einn i starfi.
Þar sem kona hans er, 'frú Áslaug Ágústs-
dóttir, á hann ekki aðeins framúrskarandi
eiginkonu, heldur förunaut, sem vakir yf-
ir honum, styður og styrkir i hinu marg-
þætta starfi utan kirkju og innan. Frú
Áslaug aðstoðar við öll prestsverk á heim-
ilinu og oft utan þess með hljóðfæraleik
ofl. Skyldi t. d. nokkur prestskona hér á
landi hafa mætt við fleiri jarðarfarir en
frú Áslaug?
Ekki alveg hættur.
Eftir að sr. Bjami lét af embætti, fór
hann og frú hans fljótlega til Englands,
þar sem þau dvöldu nokkurn tima. 1 hvert
sinn, sem nýr prestur kom að dómkirkj-
unni fór sr. Bjarni til útlanda, til þess að
gefa hinum nýju prestum aukin tækifæri
til starfs og kynningar með söfnuðinum.
Nú mun hann hafa farið þessa utanför
sérstaklega til þess að minna á, að hann
væri hættur prestsskap, og það væri eðli-
legast að sínu starfi væri þar með lokið
við venjuleg prestsstörf.
Þetta hefur farið allt á annan veg en til
var stofnað. Síðan hann kom heim aftur
eru nú um f jórir mánuðir, en á þeim tíma
hefur hann haldið 20 guðsþjónustur og
erindi, eða sem svarar meira en einni á
viku. Auk þess fær hann fjölda heimsókna
vegna hinna margvíslegu vandamála og er
beðinn að koma til margra, sem sálusorg-
ari enn í dag. Síra Bjarni vildi helzt
setjast í helgan stein, að þvi er tekur til
almennra prestverka, eins og „afdönkuð-
um“ presti hæfir bezt, en hvemig getur
ástsæll prestur og sálusorgari sett slag-
brand fyrir þær dyr, sem um tugi ára
hafa staðið opnar nótt sem dag í gleði og
sorg þúsunda sóknarbarna. En sr. Bjami
vonar að þetta fjari fljótlega út.
Vegna fyrri kynna og í sambandi við
þetta samtal, skilst mér betur en ella, það
sem maður einn í Reykjavík sagði við mig
fyrir nokkrum árum, er við áttum tal um
trú- og kristindómsmál. Hann sagði: „Ef
ég ætti nú að velja mér sálusorgara hér
í Reykjavík, mundi ég engan fremur velja
en sira Bjama.“ Mér þótti þetta þá dá-
lítið einkennilegt vegna kynna minna af
afstöðu þessa vinar míns til þessara mála
Betri ending!
Minna vélaslit!
Fullkomin atvinnu- og vis-
indatækni kom því til leið-
ar, að bifreiðaolían SHELL
X-100 fullnægir öllum þeim
kröfum, sem áður var talið
ótækt að gera til nokkurrar
smurningsolíu.
Hinn vandláti velur SHELL X-100!
68
■■ ■ ■ -11
AKRANES