Akranes - 01.07.1952, Page 2

Akranes - 01.07.1952, Page 2
1 Til fróöleiks og skemmtunar í Ijóðum og lausu máli Símon dalaskáld var eitthvert sinn nætursakir í Saurbæ á Hval- fjarðarströnd í tið sira Jóns Benediktssonar. Þar var þá vinnumaður, Jón Þorsteinsson, siðar bóndi á Glamnastöðum og víðar. Um kvöldið var spilað og voru þeir samspilamenn Siinon og sira Jón, en á móti þeim voru Helgi sonur prestsins og Jón Þorsteinsson, og hallaðist á þá. Kvað þá Símon: Tveir fóstbræður tapa hræðilega, en Símon bæði og sira Jón saman græða eins og ljón. Frá þessu hefur sagt Brynjólfur Einarsson bóndi á Hrafnabjörgum, sem var viðstaddur, er Simon kvað vísuna. Þar er almenningsálitið strangur dómari. Brunaliðsstjóri í borg einni í Englandi notaði — einu sinni — bil brunastöðvarinnar, til þess að komast kvöld eitt út á knattspymuvöll, til þess að horfa á knattspymuleik. Fyrir þetta tiltæki var hann kærður, og út af þessu urðu mikil réttar- höld. Munaði minnstu að hann héldi stöðu sinni fyrir þetta tiltæki. Þetta gerðist fyrir 2—3 árum. Lögregluþjónn i Englandi hafði á ólöglegan hátt komist yfir skömmtunarseðla fyrir nokkrum gall- ónum af bensini. Hann missti stöðu sina fyrir tiltækið. Þetta var nokkmm mánuðum áður en hann átti að hætta störfum fyrir aldurs sakir og njóta eftirlauna, Um leið og hann missti stöðuna, missti hann af eftirlaununum vegna tiltækis sins. Tæknilega standa Svíar framarlega. Sviar eru farnir að þilja fjós — gólf, bása, flór og veggi i axlarhæð — úr rifluðu harð-gúmii. Hvað vera gott að hreinsa það og mjög endingar- gott. 1 rafmagnsleiðslu frá hinu stóra orkuveri Hars- pranget í Norður-Svíþjóð nota þeir 380 þúsund volta spennu. 1 orkuverinu em 3 túrbínur, sem hver framleiðir 117 þúsund k\y- Hvergi i heim- inum mun hafa verið notuð svo há spenna. 'ímis- legt fleira er þó merkilegt við þetta mikla orkuver og leiðslumar frá þvi. Við byggingu þess, hafa þeir t .d. notað 350 mílur af sprengiþræði. Þetta er enginn smáspotti, þvi ef kveikt væri i öðrum enda þessa spotta, mundi liða livorki meira né minna en 2 ár, þar til neistinn næði hinum endan- rnn. Með því að nota þessa háu spennu, geta þeir nú komist af með einn streng í stað fjögurra áður í linuna. Línan er líka ný uppfinning, svokölluð stál-alúminium-gerð. Þessi gerð linunnar er 30% sterkari en kopar eða eirlína, en þó 30% léttari, og er talið að við þetta sparist sem svarar 40% i stofnkostnaði. Er ekki hægt að nota þessar fram- farir i sambandi við Sogsvirkjunina? Gísli J. Johnsen stórkaupmaður og frú hans eru fyrir skömmu komin heim úr miklu ferða- lagi um mörg lönd. Hann sagði mér frá þessu, sem hér var sagt um nýjustu tækni i Sviþjóð. Hann sagði og, að byggingartækni og framfarir í byggingariðnaði Bandaríkjamanna væri stór- kostlegar. Bæði um hraða, hagkvæmt fyrirkomu- lag og, eftir atvikum lágt verðlag á hverri íbúð. Telur Gísli, að við getum lært mikið af þeim í þessu efni. Þá segir G. J. .1. að mikil hreyfing sé uppi vestra, um að „standardisera" búning skólabarna úr góðu ódýru efni án alls „útflúrs," til þess að spara heimilunum sem mest útgjöld fram yfir það, sem eðlilegt er og sómasamlegt. Að lokum segir Gisli: „Ef ég væri yngri, hefði ég mikinn hug á að gera tilraun til að vinna —- aftur — að umbótum ó oliuverzlun landsmanna, því að mér virðist ýmislegt benda til, að olían sé seld hér mun dýrari en hún þyrfti að vera.“ Gisli J. Johnsen er búinn að gjalda torfalögin gagnvart isl. atvinnulifi og framförum með þjóð- inni. En margur mundi verða honum þakklótur, ef hann notaði nú ævikvöldið til þess að lækka þennan gifurlega lið varðandi svo að segja alla framleiðslu landsmanna. Vinnusvik. Ýmiss konar vinnusvik eru orðin æði almenn og margvisleg, við livers konar vinnu sem er, úti og inni, hæga vinnu og óhæga. Á skrifstofum i Reykjavík er það t. d. alvanalegt að sjó fjölda starfsfólks — yfirmenn og undirgefna — lesa dagblöðin á morgnana eitt af öðru. Nýlega sagði þannig einn atvinnurekandi í Reykjavík, að þessi morgunblaðalestur kostaði þetta fyrirtæki a. m. k. 50 krónur á dag. Fyrsta bárujárnsplatan hefur líklega verið flutt til landsins um 1880, af Geir kaupm. Zoega, mun enn vera eitthvað við líði af þessari jámsendingu, a. m. k. á skúr við vesturhlið á hinu gamla húsi Geirs við Vestur- götu 7. Það herbragð dugði. Líklega hefur það verið rétt eftir 1883, sem Geir Zoega flutti fyrstur manna hingað til lands hinar svonefndu ensku húfur, sem á stundum voru kalaðar „six-pensarar.“ Keypti Geir all mikið af þessum húfum i einni ferð sinni til Englands. Gerði hann þegar tilraun til að selja húfumar, en ekkert gekk. Bjóst Geir við þvi, að húfurnar myndu aldrei seljast. En þá datt honum það snjallræði í hug að gefa stúdent einum og læknaskólanema, Birni Blöndal, eina húfu, gegn þvi, að hann notaði hana eitthvað í bænum. Það var auðsótt mál við Björn. Þetta herbragð hreif, nú var þess ekki lengi að bíða, að húfumar seld- ust. Það þurfti fljótlega að panta meiri birgðir og fleiri kaupmenn komu á eftir. Það sannaðist hér sem oftar, að ekki þarf nema einn gikkinn i hverri veiðistöð. Vísindin geta ekki svarað. 1. Hvað er svefninn? 2. Hvemig sér augað? 3. Hvað er rafmagnið? 4. Hvers vegna snýr nál áttavians alltaf i norður? 5. Hvemig verður fræið að tré? 6. Hvemig stendur ó ilmandi lykt af rósum og sumum öðrum blómum? 7. Hvaða breyting verður á jámi, sem segul- krafti er hleypt i? 8. Hvað kemur fuglinum til að búa til fyrsta hreiðrið sitt? 9. Hver er orsök þess, að afkvæmi manna og dýra verður karl- eða kvenkyns? 10. Hvaðan fær sólin hita sinn? Svona má telja endalaust. Tr. G. Langt er siðan Tryggvi Gunnarsson birti þennan lista í þjóðvinafélagsalmanakinu. Hvað af þessum gátum, telja vísindin sig geta leyst í dag? Fyrsta bílferð til Akureyrar. Hinn 3. júlí 1928, kom Þorkell Teitsson, sima stjóri í Borgamesi til Akureyrar í Ford-bifreið frá Borgarnesi. Frá Borgarnesi til Blönduóss var Þorkell í 7 tima. Þaðan var hann 13 tíma til Akureyrar, og fékk menn sér til hjólpar upp á Vatnsskarð og öxnadalsheiði. Verðhækkun á vörum um 12 ára bil. Eftir skýrslum holdsveikraspital- ans i Laugarnesi. Innlendar vörur. 1898, 1912, Af 100 Kindakjöt nýtt pd. 16,5 25,0 55,7 saltað — 18,0 28,6 53,9 hangið — 28,0 45,0 60,7 Nautakjöt nýtt 26,2 34,7 32,5 Fiskur nýr — 4,0 8,0 100,0 saltaður — 10,2 14,0 38,2 Smjör — 60,9 94,0 54,5 Nýmjólk — 17,0 18,0 5,9 Útlendar vörur. Rúgmjöl pd. 7,0 8,2 19,1 Baunir — 12,0 14,6 21,8 Kaffibaunir — 41,2 44,3 6,4 Hvítasykur — 21,0 26,0 24,0 Salt tn. 3,8 4,3 13,3 MáináSarkaup hjúa. Vöku- og þvottakonur 7,5° 11,25 50,00 Vinnukonur 6,25 10,00 60,00 Vinnumenn 16,67 20,90 25,40 Erfiðis- og daglaunamenn klt. 21,20 32,40 52,80 Járnr.miðir 43,80 49,70 14,80 S1 nr.smiðir 37,80 47,70 20,90 Verzlanir á íslandi. Sveitav. Innl Útl. Meðaltal Innl. Erl. 0/ /0 % % 1865—-1870 28 35 44 56 1881—1890 63 40 2 61 39 1891—1900 130 40 17 76 24 1901—1905 223 50 27 82 18 1906—1910 366 50 31 88 12 1911 377 46 23 89 11 1912 421 44 23 91 9 Almanak Þjóðvinafélagsins. Krókódílstár. Það er sagt, að krókódílar ginni til sín menn og mállleysingja, sem þeir ætla að róðast ó og éta, með því að stynja, rétt eins og þeir séu sór- þjáðir. Af þessu er dregið heitið: krókódilstár, sem talið er, að menn felli af litilli einlægni. Forsíðumynd er hús Sambands ísl. samvinnufélaga 52. 74 A K R A N E S

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.