Akranes - 01.07.1952, Side 3
f
Tvö merkisafmœli
samvinnuhreyfingarinnar á Islandi
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA 50 ÁRA
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA 70 ÁRA
Mönmun er náttúrlegt að glíma við örð-
ugleika sína og ráða bót á því, sem miður
fer. Margítrekaðar tilraunir Islendingi
allt frá öndverðri ig. öld, til þess að hamla
gegn áhrifum háskasamlegrar, aldagam-
allar verzlunaráþjánar með ýmsum sam-
takatilraunum, var þvi í hæsta máta heil-
brigð og aðkallandi viðleitni góðra manna
til þess að binda endi á óþolandi, þjóð-
hættulegt ástand, sem um aldaraðir ha'fði
legið sem mara á landsfólkinu og byrgt
því sólarsýn bæði í veraldlegum og and-
legum efnum.
Það má með fullum rökum segja, að
varanlegum árangri af myndun verzlun-
arfélaga liér á landi hafi fyrst verið náð
með stofnun Kaupfélags Þingeyinga, að
r--------------------------—------------
Baldvin Þ. Krist-
jánsson, forstöðu-
maður Fræðslu-
og félagsmáladeild
ar SlS, hefur skrif-
að þessa grein fyr-
ir „Akranes."
s________________________________________________y
AKRANES
XI. árg. júlí—sept. 1952. — 7—9 tbl.
Otgefandi, ritstjóri og ábyrgÓarrnaSur:
ÖLAFUR B. BJÖRNSSON
Afgreiðsla: MiSteig 2, Ahranesi
PRENTAÐ I PRENTVERKI AKRANESS H. F.
Þverá í Laxárdal, 20. febrúar 1882. Hvort
sem við þökkum það þroska og festu þing-
eyskra bænda eða guði og lukku, er það
staðreynd, að þessu elzta kaupfélagi lands-
ins, sem í ár heldur hátíðlegt 70 ára af-
mæli sitt, auðnaðist fyrstu allra íslenzkra
verzlunarfélaga að halda velli til lang-
frama, enda að ýmsu byggt á traustari
samvinnumennsku en nokkurt hinn eldri,
axrnars mjög merku fyrirrennara þess. Og
víst er um það, að mennimir, sem i eigin
krafti eða annars æðri gengu hér til verks,
„. . . . þeir léttu af oss oki og neyð,
þótt enn oss meinin saki.“
Islenzk samvinnusamtök, já þjóðin öll,
á Þingeyingum áreiðanlega mikið upp að
unna. Dæmi þeirra um djúptækan félags-
þroska og órofa tryggð við hugsjónir er
fagtrrt og ævarandi. Þeir sáðu til þess mjóa
vísis, sem nú er sprottin af voldugasta fé-
lagshreyfing þjóðarinnar.
Þrjú elztu kaupfélögin — öll úr Þing-
eyjarsýslu — stóðu að stofnun íslenzka
samvinnusamibandsins, að Yztafelli, 20.
febrúar 1902, á tuttugasta afmælisdegi
Kaupfélags Þingeyinga. Stórmannlegra af-
mælistiltæki samvinnumanna, mitt í klíð-
rnn hatrammrar baráttu fyrir tilvem og
frelsi, er vart hægt að hugsa sér. Má það
viðbragð verða munað meðan manndómur,
víðsýni og áræði er nokkurs metið í land-
inu. Upp af frækorni Þingeyinganna hafa
nú vaxið langsamlega fjölþættustu og um-
fangsmestu samtök, sem nokkru sinni hafa
starfað hér á Islandi; Samhand íslenzkra
samvinnufélaga, sem nú á 50 ára starfs-
feril að baki.
En þótt íslenzkir samvinnumenn geti
nú á þessum merku timamótum litið með
stolti yfir farinn veg, og marga unna
þraut, skyldi enginn ætla, að vegur sam-
vinnusamtakanna hér hafi aldrei verið
þyrnum stráður. Margir menn og þekktir
hafa meh- en lagt þróttmikla hönd á plóg-
inn. Þeir hafa, margir hverjir, haft hina
merkustu forystu á höndum; borið hinar
þyngstu byrðar. Nöfn þeirra munu lifa,
ekki aðeins í sögu samvinnusamtakanna,
heldur og þjóðarsögunni. Hinu má held-
ur ekki ganga framhjá né gleyma, að á
AKRANES
75