Akranes - 01.07.1952, Page 3

Akranes - 01.07.1952, Page 3
f Tvö merkisafmœli samvinnuhreyfingarinnar á Islandi SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA 50 ÁRA KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA 70 ÁRA Mönmun er náttúrlegt að glíma við örð- ugleika sína og ráða bót á því, sem miður fer. Margítrekaðar tilraunir Islendingi allt frá öndverðri ig. öld, til þess að hamla gegn áhrifum háskasamlegrar, aldagam- allar verzlunaráþjánar með ýmsum sam- takatilraunum, var þvi í hæsta máta heil- brigð og aðkallandi viðleitni góðra manna til þess að binda endi á óþolandi, þjóð- hættulegt ástand, sem um aldaraðir ha'fði legið sem mara á landsfólkinu og byrgt því sólarsýn bæði í veraldlegum og and- legum efnum. Það má með fullum rökum segja, að varanlegum árangri af myndun verzlun- arfélaga liér á landi hafi fyrst verið náð með stofnun Kaupfélags Þingeyinga, að r--------------------------—------------ Baldvin Þ. Krist- jánsson, forstöðu- maður Fræðslu- og félagsmáladeild ar SlS, hefur skrif- að þessa grein fyr- ir „Akranes." s________________________________________________y AKRANES XI. árg. júlí—sept. 1952. — 7—9 tbl. Otgefandi, ritstjóri og ábyrgÓarrnaSur: ÖLAFUR B. BJÖRNSSON Afgreiðsla: MiSteig 2, Ahranesi PRENTAÐ I PRENTVERKI AKRANESS H. F. Þverá í Laxárdal, 20. febrúar 1882. Hvort sem við þökkum það þroska og festu þing- eyskra bænda eða guði og lukku, er það staðreynd, að þessu elzta kaupfélagi lands- ins, sem í ár heldur hátíðlegt 70 ára af- mæli sitt, auðnaðist fyrstu allra íslenzkra verzlunarfélaga að halda velli til lang- frama, enda að ýmsu byggt á traustari samvinnumennsku en nokkurt hinn eldri, axrnars mjög merku fyrirrennara þess. Og víst er um það, að mennimir, sem i eigin krafti eða annars æðri gengu hér til verks, „. . . . þeir léttu af oss oki og neyð, þótt enn oss meinin saki.“ Islenzk samvinnusamtök, já þjóðin öll, á Þingeyingum áreiðanlega mikið upp að unna. Dæmi þeirra um djúptækan félags- þroska og órofa tryggð við hugsjónir er fagtrrt og ævarandi. Þeir sáðu til þess mjóa vísis, sem nú er sprottin af voldugasta fé- lagshreyfing þjóðarinnar. Þrjú elztu kaupfélögin — öll úr Þing- eyjarsýslu — stóðu að stofnun íslenzka samvinnusamibandsins, að Yztafelli, 20. febrúar 1902, á tuttugasta afmælisdegi Kaupfélags Þingeyinga. Stórmannlegra af- mælistiltæki samvinnumanna, mitt í klíð- rnn hatrammrar baráttu fyrir tilvem og frelsi, er vart hægt að hugsa sér. Má það viðbragð verða munað meðan manndómur, víðsýni og áræði er nokkurs metið í land- inu. Upp af frækorni Þingeyinganna hafa nú vaxið langsamlega fjölþættustu og um- fangsmestu samtök, sem nokkru sinni hafa starfað hér á Islandi; Samhand íslenzkra samvinnufélaga, sem nú á 50 ára starfs- feril að baki. En þótt íslenzkir samvinnumenn geti nú á þessum merku timamótum litið með stolti yfir farinn veg, og marga unna þraut, skyldi enginn ætla, að vegur sam- vinnusamtakanna hér hafi aldrei verið þyrnum stráður. Margir menn og þekktir hafa meh- en lagt þróttmikla hönd á plóg- inn. Þeir hafa, margir hverjir, haft hina merkustu forystu á höndum; borið hinar þyngstu byrðar. Nöfn þeirra munu lifa, ekki aðeins í sögu samvinnusamtakanna, heldur og þjóðarsögunni. Hinu má held- ur ekki ganga framhjá né gleyma, að á AKRANES 75

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.